Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísfélagið á 76 milljarða króna en forstjórinn varar við „slátrun“ vegna veiðigjalda

Hagnaður Ísfélags hf. í Vest­manna­eyjum var 2,2 millj­arðar króna eftir alla skatta. Félagið greiddi 665 millj­ónir í veiði­gjald

Ísfélagið á 76 milljarða króna en forstjórinn varar við „slátrun“ vegna veiðigjalda
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir Fjöl­skylda hennar fer með tæp­lega helm­ing eign­ar­halds í Ísfé­lag­inu.

Hagnaður Ísfélags hf, útgerð­ar­fé­lags­ins með höf­uð­stöðvar í Vest­manna­eyjum, var 2,2 millj­arðar eftir skatta í fyrra. For­stjóri félags­ins, sem á stóran hlut í Morg­un­blað­inu, lýsir þungum áhyggjum.

Í upp­gjöri félags­ins fyrir síð­asta ár, sem var birt í dag, kemur fram að Ísfé­lagið býr yfir gríð­ar­legum eignum. Heild­ar­eignir eru 107,5 millj­arður króna, en skuldir og skuld­bind­ingar 31,4 millj­arðar. Þannig var eigið fé félags­ins 76 millj­arðar króna.

Ísfé­lagið gerir upp í Banda­ríkja­dal. Eigið fé félags­ins árið 2021 var þannig rúm­lega 150 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 20 millj­arðar króna miðað við gengi dollar­ans í dag. Eig­in­fjár­hlut­fall var þá 51% en er núna komið upp í 70,8% eftir að hafa verið 68,9% árið áður. Árið 2022 sam­ein­að­ist Ísfélag Vest­manna­eyja Ramma hf. og hét þar eftir aðeins Ísfélag hf.

Rekstr­ar­tekjur félags­ins í fyrra umreikn­aðar yfir í íslenskar krónur voru 23,6 millj­arðar króna, EBITDA 6,6 millj­arðar króna, rekstr­ar­hagn­aður 4,5 millj­arðar króna en hagn­aður eftir skatta 2,2 millj­arðar króna.

Fram kemur í yfir­liti Fiski­stofu að Ísfé­lagið greiddi 665 millj­ónir króna í veiði­gjöld á árinu 2024 og var það fjórða hæsta á land­inu í þeirri skatt­lagn­ingu.

Ísfé­lagið hagn­að­ist um rúm­lega 5,3 millj­arða króna 2023 ef miðað er við sama gengi Banda­ríkja­dals og tæp­lega 8,5 millj­arða króna árið 2022.

Verri afkoma nú en árin áður skýrist fyrst og fremst af því að ekki voru stund­aðar loðnu­veiðar í fyrra­vetur og mak­ríl­veiðar síð­asta sumar gengu ekki vel, sam­kvæmt skýr­ingum félags­ins.

Varar við slátrun

Þrátt fyrir mikla eigna­söfnun síð­ustu ár boðar for­stjóri félags­ins að blikur séu á lofti vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar. Í skýrslu Stefáns Frið­riks­sonar for­stjóra er lýst áhyggjum af álagn­ingu á útgerð­ina.

„Stjórn­völd hafa lagt fram frum­varp um gríð­ar­lega hækkun á veiði­gjöldum þrátt fyrir að ljóst sé að afkoma grein­ar­innar megi ekki við frek­ari kostn­að­ar­hækk­unum þegar tekið er til­lit til nauð­syn­legra fjár­fest­inga og eðli­legrar afkomu grein­ar­innar. Engar til­raunir hafa verið gerðar til að skoða áhrif þess­ara skatta­hækk­ana á atvinnu­grein­ina og sam­keppn­is­hæfni hennar,“ segir Stefán í skýrslu sinni. Frum­varpið sem hann vísar til er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og er verið að leita umsagna. Til­gangur frum­varps­ins er að breyta útreikn­ingi veiði­gjalda með þeim hætti að þau taki mið af raun­veru­legu afla­verð­mæti, fremur en að stýr­ast af verð­lagn­ingu útgerð­ar­fé­laga í við­skiptum við eigin fisk­vinnslu. Með því hefðu veiði­gjöld orðið 10 millj­arðar króna í heild­ina í fyrra, eða tvö­falt hærri en þau voru.

„Hærri skattar á fyr­ir­tæki minnka mögu­leika þeirra á að fjár­festa í betri rekstri og draga úr getu fyr­ir­tækja til að gera betur. Þarna eru því áform að slátra mjólk­ur­kúnni,“ segir þar.

Þá varar hann við áhrifum þess að fjölga strand­veiði­dögum fyrir smá­báta í 48. „Gangi þessi áform eftir mun þorskafl­inn innan fárra ára aukast langt fram úr veiði­ráð­gjöf­inni og það er ekki far­sælt ef mark­miðum um sjálf­bærar veiðar er varpað fyrir róða.“

Ísfé­lagið er að helm­ings­hluta í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og fjöl­skyldu hennar. Félagið var skráð á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar í des­em­ber 2023.

Ísfé­lagið á 16,4% hlut í útgáfu­fé­lagið Morg­un­blaðs­ins, en sömu­leiðis á ísfé­lags­fjöl­skyldan 18,5% hlut í gegnum annað félag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara