Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Félagið Ísland-Palestína fundaði með Þorgerði Katrínu

„Án aðgerða er sam­talið einskis virði“

Félagið Ísland-Palestína fundaði með Þorgerði Katrínu
Frá fund­inum Full­trú­arnir eru ánægðir með fund­inn. Mynd: Aðsend

Full­trúar Félags­ins Ísland-Palest­ína fund­uðu með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra fyrir stuttu þar Félagið kom á fram­færi kröfur mót­mæl­anda sem stutt hafa mál­stað Palest­ínu allt frá því að þjóð­ar­morð Ísraels hófst í októ­ber 2023.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá Félaginu Ísland-Palest­ína að Félagið hafi lagt fram á fund­inum skýrslur og rann­sóknir alþjóða- og mann­rétt­inda­stofn­ana á þjóð­ern­is­hreins­unum, þjóð­ar­morði og stríðs­glæpum Ísraels, sem og bráða­birgða­úr­skurði Alþjóða­dóm­stóls­ins varð­andi kæru Suður-Afríku, brot Ísraela á vopna­hléssam­ingni og ábyrð Íslands sam­kvæmt alþjóða­lögum. Er Þorgerði Katrínu þakkað fyrir að leggja fram sjálf­stæða grein­ar­gerð til Alþjóða­dóm­stóls­ins um laga­legar skyldur Ísra­ers­stjórnar til að tryggja við­veru og starf­semi meðal ann­ars Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu. Er hún enn­fremur hvött til þess að gera það sama varð­andi kæru Suður-Afríku á hendur Ísrael.

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að kveðið hefði við nýjan tón þegar Þor­gerður Katrín tók við utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við stjórn­ar­skiptin, þegar snýr að mál­efnum Palest­ínu en Félagið minnti ráð­herr­ann á þær efndir sem stjórn­ar­liðar lof­uðu í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna, en þau lof­orð snéru meðal ann­ars að við­skipta­þving­unum áhendur Ísrael. Þá var einnig minnt á nið­ur­stöður könn­unar sem félagið gerði í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem sýndi að yfir­gnæf­andi meiri­hluti þátt­tak­enda væru hlynnt við­skipta­þving­unum á Ísrael og svip­aður meiri­hluti væri fyrir því að Íslands sliti stjórn­mála­sam­starfi við Ísrael.

Fram kemur einnig í til­kynn­ing­unni að orð án aðgerða séu einskis virði og að félagið muni halda áfram að þrýsta á yfir­völd og gefa í, þar til geng­ist hefur verið við vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar.

Hér má lesa frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni:

„Full­trúar Félags­ins Ísland-Palest­ína fund­uðu með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra, aðstoð­ar­mönnum hennar og sér­fræð­ingum hjá Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í síð­ustu viku. Félagið kom þar á fram­færi kröfum mót­mæl­enda sem hafa mót­mælt fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fundi og mætt í mót­mæla­göngur síð­ustu vikur, og raunar allt frá því að þjóð­ar­morð Ísraels á Gaza hófst í októ­ber 2023.

Félagið lagði fram skýrslur og rann­sóknir alþjóða- og mann­rétt­inda­stofn­ana á þjóð­ern­is­hreins­unum, þjóð­ar­morði og stríðs­glæpum Ísraels, bráða­birgða­úr­skurði Alþjóða­dóm­stóls­ins er varða kæru Suður-Afríku, brot Ísraela á vopna­hléssamn­ingi og ábyrgð Íslands sam­kvæmt alþjóða­lögum.

Ráðherra var þakkað fyrir að leggja fram sjálf­stæða grein­ar­gerð til Alþjóða­dóm­stóls­ins um laga­legar skyldur Ísraels til að tryggja við­veru og starf­semi m.a. Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu (UNRWA). Ráð­herr­ann var að sama skapi hvött til að gera slíkt hið sama varð­andi kæru Suður-Afríku á hendur Ísra­els­ríkis fyrir brot á sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um ráð­staf­anir gegn og refs­ingar fyrir þjóð­ar­morð. Þar eru fjórir mán­uðir til stefnu.

Jafn­framt var rætt um hvað stjórn­ar­liðar innan Sam­fylk­ingar og Við­reisnar, þ.á.m. for­sæt­is­ráð­herra höfðu sagt í aðdrag­anda þing­kosn­inga og lögð áhersla á efndir. Um þau lof­orð má lesa í grein­inni Loka­við­vörun til rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur sem er í fyrstu athuga­semd. Auk þess var ráð­herra minnt á nið­ur­stöður könn­unar félags­ins frá sept­em­ber sl. þar sem 77% aðspurðra sögð­ust hlynnt við­skipta­þving­unum með og án fyr­ir­vara og 70% fylgj­andi slitum á stjórn­mála­sam­bandi við Ísrael með og án fyr­ir­vara. Þar var nán­ast algjör stuðn­ingur meðal kjós­enda Við­reisnar og Sam­fylk­ingar. Ítrekað var að það verður að grípa til aðgerða taf­ar­laust. Sú krafa verður að telj­ast sann­gjörn þar sem stjórn­ar­liðar rík­is­stjórn­ar­innar viðr­uðu sjálf hug­myndir um slíkar aðgerðir allt síð­asta ár.

Við þökkum Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur kær­lega fyrir fund­inn, þann fyrsta sem Félagið Ísland-Palest­ína á með utan­rík­is­ráð­herra Íslands síðan í októ­ber 2023. Það hefur kveðið við nýjan tón í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eftir stjórn­ar­skipti og munar sann­ar­lega um að hafa þar ráð­herra sem sýnir vilja til við­ræðna um aðgerðir til að stöðva þjóð­ar­morðið.

Eftir stendur að án aðgerða er sam­talið einskis virði. Áætlanir Ísraels eru ljósar og rík­is­stjórn Net­anyahu fer ekki leynt með þær lengur. Nóg hefur verið rætt, nægir úrskurðir alþjóða­dóm­stóla verið gefnir út, fjöl­margar álykt­anir SÞ og mat sér­fræð­inga. Allt þetta liggur fyrir. Þjóð­ar­morð er yfir­stand­andi og orð mega sín lít­ils til að stöðva það. Síðan fund­ur­inn með utan­rík­is­ráð­herra átti sér stað hefur Ísra­els­her orðið upp­vís að aftökum á 15 sjúkra­liðum palest­ínska Rauða hálf­mán­ans og for­sæt­is­ráð­herra Ísraels grímu­laust lýst yfir að hann muni fylgja eftir áætlun Trump Banda­ríkja­for­seta um að þjóð­ern­is­hreinsa Gaza strönd­ina og full­komin yfir­ráð Ísraels yfir svæð­inu. Þar skipti til­vera Hamas engu, þetta segir Net­anyahu berum orðum. Endalaus skrif­finnska kostar manns­líf og hjálpar aðeins Ísrael að halda áfram þjóð­ar­morði sínu og stríðs­glæpum. Við munum því halda bar­áttu okkar og þrýst­ingi á rík­is­stjórn­ina áfram af enn meiri krafti þar til gripið er til þeirra aðgerða sem þjóðin hefur kallað eftir frá upp­hafi. Við bindum vonir við að utan­rík­is­ráð­herra hafi þor og dug til að fylgja eftir vilja þjóð­ar­innar í þessu máli með því að standa með alþjóða­laga­kerf­inu og mann­rétt­indum í verki.

Lifi frjáls Palest­ína!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi