Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Njáll Torfason er látinn

Njáll Torfason er látinn

Njáll Torfason afl­rauna­maður lést þann 1. apríl, á Maspal­omas á Kanarí­eyjum, 75 ára að aldri.

Njáll fædd­ist 28. febr­úar 1950 en for­eldar hans voru Torfi Bryn­geirs­son, afreks­maður í frjálsum íþróttum og Jóhanna Pét­urs­dóttir hús­freyja.

Fram kemur í frétt mbl.is um and­látið að Njáll hafi unnið við ýmis störf um ævina, stund­aði sjó­mennsku um ára­bil, starf­aði einnig sem heil­ari, nudd­ari og rak hótel og sölu­skála í Breið­dals­vík um tíma, þar sem hann bjó með konu sinni, Kristínu.

Njáll varð þjóð­þekktur fyrir margs­konar afl­raunir og sló hann þar nokkur Íslands­met. Hann keppti og kom fram á sýn­ingum bæði hér á landi og erlendis.

Njáll bjó yfir ein­stökum hæfi­leikum en meðal þeirra afl­rauna var að draga bíla og rútu með ein­ungis löngu­töng og einnig gat hann losað sig úr fjötrum, gengið ber­fættur á gler­brotum og glóðum og lyft níð­þungum hlutum, þar á meðal 278 kílóa Lauf­ás­steini með annarri hendi. Þá virt­ist hann nota hug­ar­ork­una til þess að festa á sig hluti, til dæmis úr postu­líni og járni. Þá er einnig þekkt þegar hann reif tíu síma­skrár í sundur á 16 sek­úndum.

Hann starf­aði í Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Íslands og tók til að mynd að sér að reka óvætti úr húsum en í við­tali við Morg­un­blaðið árið 2013 sagð­ist hann aldrei hafa kallað sig miðil en að hann væri þó skyggn.

Njáll gift­ist þrisvar sinnum en eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans er Kristín G. Ársæls­dóttir, fædd 1953. Þau hafa verið búsett á Kanarí­eyjum und­an­farin ár. Dóttir þeirra er Jóhanna, fædd 1982 og sonur Krist­ínar er Einar Geirsson, fæddur 1972. Njáll eign­að­ist tvö börn með Aðal­heiði L. Ara­dóttur, fædd 1951, þau Arnheiði Hönnu, fædd 1970 og Njál Heiðar, fæddur 1972. Börn Njáls og Kol­brúnar Björns­dóttur, fædd 1952, eru einnig tvö, þau Jón Björn Njálsson, fæddur 1974 og Harpa Hrund Bjarna­dóttir, fædd 1978. Barna­börnin eru 16 og eitt barna­barna­barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi