Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét hefur fengið nóg af andstyggilegum lygum og áróðri

Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi tekur stöðu með hinsegin sam­fé­lag­inu

Margrét hefur fengið nóg af andstyggilegum lygum og áróðri
Margrét var þing­maður 2009 til 2013 Hefur gefið út verð­launa­bók­menntir

Margrét Tryggva­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður, hefur fengið nóg af nei­kvæðri umræðu um trans fólk en hún gerir slíkt að umtals­efni í nýrri færslu sem hún setti á sam­fé­lags­miðla í gær.

„Karlar sem beita konur ofbeldi gera það bara þar sem þeim sýn­ist. Þeir gera það á heim­ilum, skemmti­stöðum, á víða­vangi, í almenn­ings­görðum, bílum, í stiga­göngum og á vinnu­stöðum, “ skrifar Margrét.

Hún segir að ætli karl sér að beita konu ofbeldi hafi hann ótal tæki­færi til þess á hverjum degi, í flestum til­fellum.

„Karl sem ætlar að beita konu ofbeldi þarf ekki að dul­búa sig sem konu til að kom­ast á kvennakló­sett eða önnur sér­rými kvenna og myndi senni­lega aldrei gera það. Hann hefur ótelj­andi aðrar leiðir til að nálg­ast konur og vinna þeim mein. Óskil­virkasta leiðin fyrir hann væri alltaf að klæða sig í kjól og háa hæla.

Helstu rök TERF og ann­arra trans­fó­bískra radda gegn til­veru trans­fólks eru að sís konum standi ógn af trans konum. Sú ógn er full­kom­lega órök­rétt og ekki studd neinum gögnum,“ heldur rit­höf­und­ur­inn áfram.

„Ég veit ekki um eina ein­ustu konu sem ein­hvern tím­ann hefur ekki fund­ist sér ógnað af sís karli eða hrein­lega orðið fyrir ofbeldi af hendi sís karls og því miður oft fleiri en einum. Og auð­vitað geta konur líka beitt ofbeldi. Mann­skepnan er því miður skað­ræði. Ekkert bendir þó til þess að trans fólk sé ofbeld­is­fyllra en aðrir en rann­sóknir sýna að það er marg­fallt lík­legra til þess að verða fyrir ofbeldi en annað fólk, sér­stak­lega trans konur.“

Þá segir hún að henni standi ekki ógn af trans fólki eða mann­rétt­indum þess.

„Þvert á móti líður öllum betur í umburð­ar­lyndu sam­fé­lagi þar sem öll fá rými til að lifa í friði sam­kvæmt eigin kyn­vit­und og kyn­hneigð.

Látum ekki hræða okkur með and­styggi­legum lygum og áróðri,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi