Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óttast að sundmaður sé látinn eftir hákarlaárás við strendur Ísraels

„Við biðjum almenn­ing að forð­ast að nálg­ast hákarla“

Óttast að sundmaður sé látinn eftir hákarlaárás við strendur Ísraels
Hákarlar geta verið hættu­legir. Hákarl mynd­aður nærri gestum við Hadera-strönd­ina

Lögregla og björg­un­ar­að­ilar leita nú að manni sem ótt­ast er að hafi farist í hákarla­árás við Hadera-strönd­ina í norð­vest­ur­hluta Ísraels. Atvikið átti sér stað fyrir framan fjölda áhorf­enda, sem sáu mann­inn berj­ast í sjónum áður en sjór­inn varð skyndi­lega rauður.

„Við fengum til­kynn­ingu um að sund­maður hefði orðið fyrir árás hákarls,“ sagði tals­maður neyð­ar­þjón­ust­unnar Magen David Adom. „Við höfum ekki enn fundið mann­inn, en leit stendur yfir með þyrlum og vatna­skútum.“

Hákarll­inn sást fyrst nálægt fólki í grunn­sævi, og sumir hlupu í land í skelf­ingu. Samkvæmt vitnum sást hákarl ráð­ast á mann­inn við Orot Rabin-orku­verið, þar sem sjór­inn lit­að­ist rauður og ekk­ert var hægt að gera til aðstoðar.

Ziv Demeter, björg­un­ar­sér­fræð­ingur hjá Magnus-leit­ar­þjón­ust­unni, sagði við Channel 12: „Ef mað­ur­inn var ekki í kaf­ara­bún­ingi, getur lík hans hafa skol­ast burt og þá getur leit tekið marga klukku­tíma eða jafn­vel daga.“

Sjáv­ar­líf­fræð­ing­ur­inn Dr. Adi Barash, sem stýrir verk­efn­inu Hákarlar í Ísrael, sagði í við­tali við Ynet:

„Aðstæður í sjónum voru óheppi­legar til sunds, en fjöldi fólks safn­að­ist samt saman kringum hákarl­ana. Það er ábyrgð­ar­laust og getur leitt til árása.“

Barash sagði jafn­framt að ítrekað hafi sést til fólks toga í sporða hákarla og jafn­vel fara út í sjó með börn til að „leika“ sér með dýrin.

Umhverf­is­stofnun Ísraels ítrekar nú fyrri við­var­anir:

„Við biðjum almenn­ing að forð­ast að nálg­ast hákarla. Þeir eru vernduð dýr og geta brugð­ist ófyr­ir­sjá­an­lega við.“

Hákarlar eru algengir á svæð­inu frá nóv­em­ber til maí, en eru sjaldan árás­ar­gjarnir. Und­an­farið hefur þeim þó fjölgað við strendur Hadera og Beit Yanai, meðal ann­ars vegna hlýn­unar sjávar og dauðra fiska sem skolað hefur á land.

Strönd­inni hefur nú verið lokað og almenn­ingi ráð­lagt að halda sig fjarri sjónum.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­skeið af hákarla­árásinni en við­kvæmir eru varaðir við áhorf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife