Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan kannast ekki við hópnauðgun hælisleitenda á 16 ára stúlku

Frettin.is, vef­mið­ill Mar­grétar Frið­riks­dóttir, full­yrti að lög­reglan væri með upp­tökur af frels­is­svipt­ingu 16 ára stúlku.

Lögreglan kannast ekki við hópnauðgun hælisleitenda á 16 ára stúlku
Margrét Frið­riks­dóttir Margrét seg­ist bíða eftir svörum lög­regl­unnar.

Lög­reglan hefur ekki fengið á borð til sín upp­lýs­ingar um hópnauðgun níu hæl­is­leit­enda á 16 ára stúlku, sem vef­mið­ill­inn Frettin.is full­yrti að hefði átt sér stað um pásk­ana. Fréttin fór í mikla dreif­ingu um helg­ina, meðal ann­ars eftir að rit­stjóri mið­ils­ins deildi henni í Facebook-hóp­inn Stjórn­mála­spjallið, sem hún stýrir einnig. Að minnsta kosti ein röng stað­hæf­ing er í frétt­inni og annað fæst ekki stað­fest.

Í frétt­inni sagði að „sam­kvæmt heim­ildum var 16 ára stúlka á göngu heim til sín úr miðbæ Reykja­víkur, þegar að erlendir menn nálg­uð­ust hana á fólks­bíl, hrifsuðu upp í bíl­inn og frels­is­sviptu.“ Auk þess segir Fréttin: „Upptökur af frels­is­svipt­ing­unni liggja fyrir hjá lög­reglu sam­kvæmt sömu heim­ildum.“

Frétt Frétt­ar­innarSkjáskot af fyr­ir­sögn frétt­ar­innar.

Mannlíf hefur fengið stað­fest hjá kyn­ferð­is­brota­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að full­yrð­ingin sem Fréttin vitnar til um að upp­tökur „liggi fyrir hjá lög­reglu“ stand­ast ekki. Þá hafnar lög­reglan því að meint hópnauðgun hafi verið til­kynnt til lög­reglu.

Hófst með ummælum á Facebook

Upp­haf­leg dreif­ing upp­lýs­inga um atburð­inn virð­ist hafa átt sér stað í ummælum á Facebook, þar sem því var lýst að „níu hæl­is­leit­endur“ hafi nauðgað 16 ára stúlku í sam­tals 10 klukku­stundir. Skjáskot af ummæl­unum hefur verið í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga.

Athuga­semdinSkjáskot af athuga­semd kon­unnar.

Í frétt Frétt­ar­innar.is kemur þó fram full­yrð­ing um að mið­ill­inn hafi heim­ildir frá mann­eskju sem „teng­ist stúlkunni fjöl­skyldu­böndum“ og er haft eftir við­kom­andi að ger­end­urnir séu „hæl­is­leit­endur frá Palest­ínu og Tyrkir“.

Ítarlegar lýsingar

Lýsingar vef­mið­ils­ins Frettin.is á meintri nauðgun eru nokkuð ítar­legar. Þar kemur fram að stúlkan hafi verið á leið heim til sín fót­gang­andi frá mið­borg Reykja­víkur þegar þrír hæl­is­leit­endur hafi rænt henni upp í fólks­bíl. Þeir hafi síðan ekið henni á ótil­greindan stað þar sem þeir nauðg­uðu henni í þrjár klukku­tíma. Þeir hafi síðan farið með hana í íbúð í Vest­ur­bænum þar sem enn fleiri brutu á henni, í sjö klukku­tíma til við­bótar.

„Henni var kippt upp í leigu­bíl þar sem henni var hópnauðgað í þrjá tíma“
Ummæli á Facebook sem urðu að frétt

Segir mið­ill­inn að menn­irnir séu hæl­is­leit­endur frá Palest­ínu og Tyrk­landi og hefur það eftir „heim­ild­ar­manni sem teng­ist stúlkunni fjöl­skyldu­böndum“. Mið­ill­inn full­yrðir enn fremur að upp­tökur af frels­is­svipt­ing­unni liggi fyrir hjá lög­regl­unni, sam­kvæmt heim­ildum mið­ils­ins. Margréti Frið­riks­dóttir, rist­jóri Frétt­ar­innar, stað­festir að fréttin teng­ist ummælum sem dreift var af Facebook. Lýsingar þar eru að mestu leyti sam­hljóða. „Henni var kippt upp í leigu­bíl þar sem henni var hópnauðgað í þrjá tíma, svo skutlað í íbúð í Vest­ur­bænum þar sem fleiri biðu eftir henni og hópnauðgu henni í sjö klukku­tíma. Hvernig heldur þú að henni líði í dag? Þetta var þaul­skipu­lagt af þeim, hún hafði ekk­ert val og var frels­is­svipt allan tím­ann meðan mamma hennar og pabbi hringdu stans­laust án þess að fá svar, því það [var] verið að hópnauðga dóttur þeirra af hæl­is­leit­endum mörgum í hóp að skipt­ast á,“ segir í ummæl­unum, sem sama konan hefur birt á fleiri en einum stað.

Mannlíf náði ekki sam­bandi við kon­una sem skrif­aði ummælin til að spyrja hana út í heim­ildir hennar. Af sam­fé­lags­miðlum kon­unnar að dæma er hún þjóð­rækin og and­stæð­ingur múslima. Ummælum hennar fylgja síðan spurn­ingar: „Hvernig í ósköp­unum get­urðu stutt Palest­ínu og þessa hæl­is­leit­endur? Lærðu að skamm­ast þín fyrir að standa ekki með íslenskri þjóð og stelpu, kyn­systur þinni og for­eldrum hennar.“

Lögreglan andmælir fréttinni

Ekki fæst stað­fest að frá­sagnir af meintri hópnauðgun séu með nokkrum hætti sann­leik­anum sam­kvæmar, þar sem lög­reglu hafa ekki borist neinar til­kynn­ingar um slíkt mál.

Bylgja Hrönn Bald­urs­dóttir, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­reglu segir í sam­tali við Mannlíf að lög­reglan kann­ist ekki við málið. Hún hafi þó séð frétta­flutn­ing­inn um helg­ina. „Það hefur ekk­ert slíkt borist á borð lög­regl­unnar,“ svar­aði Bylgja Hrönn aðspurð hvort lög­reglan væri með slíkt mál í rann­sókn.

Bylgja Hrönn hafn­aði því einnig að lög­regl­unni hafi borist upp­tökur af frels­is­svipt­ingu stúlkunnar. „Það hefur ekk­ert slíkt borist á borð lög­regl­unnar,“ end­ur­tekur hún.

Fréttir af öðrum hópnauðg­unum hafa hins vegar vakið athygli. Fleiri en ein hópnauðgun hafa verið til rann­sóknar hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farið.

Mannlíf sagði nýlega frá til­kynntri hópnauðgun sem þrír evr­ópskir karl­menn eru grun­aðir um á Höfða í Reykja­vík.

Tvær hópnauðg­anir sem áttu sér stað í sömu íbúð í Vest­ur­bænum, eru til rann­sóknar, þar sem þrír menn eru grun­aðir. Fram hefur komið að eig­endur skemmti­staða vari við mönn­unum og því fylgi að þeir séu „spænsku­mæl­andi“. Lögregla fór ekki fram á gæslu­varð­hald yfir mönn­unum.

Þá var erlendur leigu­bíls­stjóri nýlega dæmdur fyrir að nauðga kven­kyns far­þega í febr­úar í fyrra, í slag­togi við annan mann. Báðir eru hæl­is­leit­endur og fengu tveggja og hálfs árs dóm fyrir verkn­að­inn.

Fréttin vakti miklar tilfinningar

Frétt frétt­ar­innar af hópnauðgun níu hæl­is­leit­enda á 16 ára stúlku vakti miklar til­finn­ingar á sam­fé­lags­miðlum um helg­ina. Stofnuð var ný Facebook-síða sem bein­ist að því að senda útlend­inga og sér­stak­lega múslima úr landi vegna fjölda nauð­gana.

Frétt Frétt­ar­innar.is var síðan end­ur­flutt á vefnum Frétta­tím­inn.is, þar sem hún vakti sömu­leiðis mikla athygli og leiddi af sér kröfur um brott­flutn­ing hæl­is­leit­enda og múslima úr landi, ásamt fleiri refs­ingum. Frétta­tím­inn var áður viku­legt dag­blað, en vöru­merki hans var keypt úr þrota­búi útgáfu­fé­lags­ins og mið­il­inn gef­inn út í breyttri mynd.

Þegar leitað er að hópnauðgun á Google kemur frétt Frétta­tím­ans, sem byggir á frétt­inni á Frettin.is, efst upp í leit­ar­nið­ur­stöðum og upp­haf­lega fréttin sú þriðja.

Fékk fyrst upplýsingar í ummælum

Margrét Frið­riks­dóttir segir við fyr­ir­spurn Mannlífs að hún hafi fyrst séð upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun í fyrr­greindum ummælum á Facebook. Hún seg­ist þó hafa frek­ari heim­ildir.

„Heim­ild­ar­maður sem ég er bundin trún­aði við og segir að upp­tökur liggi fyrir og hafi náðst úr örygg­is­mynda­vélum ...“
Margrét Frið­riks­dóttir, rit­stjóri á Fréttin.is

„Heim­ild­ar­maður sem ég er bundin trún­aði við og segir að upp­tökur liggi fyrir og hafi náðst úr örygg­is­mynda­vélum, segir líka að verið sé að yfir­heyra menn­ina en málið sé enn á við­kvæmu stigi og engin verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald.“

Þá seg­ist hún bíða svara lög­reglu við fyr­ir­spurn Frétt­ar­innar.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi