Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landsbankinn græddi þúsund krónur á sekúndu

Bankinn hagn­ast meira en í fyrra.

Landsbankinn græddi þúsund krónur á sekúndu
Banka­stjóri Lands­bank­ans Lilja Björk Ein­ars­dóttir hefur leitt Lands­bank­ann í vax­andi hagnað. Mynd: Landsbankinn

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 7,9 millj­arða króna eftir skatta á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, sem er aukn­ing úr 7,2 millj­örðum króna á sama tíma í fyrra.

Arðsemi eigin fjár eykst þónokkuð, úr 9,3% á sama tíma í fyrra í 10% nú. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum. Lands­bank­inn er í eigu íslenska rík­is­ins.

Afkomu­töl­urnar sýna að hagn­að­ur­inn var 86 millj­ónir á hverjum degi. Hann var 3,6 millj­ónir á klukku­stund og 60 þús­und krónur á hverri mín­útu. Og þar af leið­andi hagn­að­ist Lands­bank­inn um þús­und krónur á hverja sek­úndu, alla daga og allan sól­ar­hring­inn á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins.

Banka­stjór­inn, Lilja Björk Ein­ars­dóttir, segir að afkoman hafi verið „traust“.

„Traustur rekstur bank­ans gerir okkur kleift að við­halda 2,1% vaxta­mun heim­ila en skila jafn­framt ásætt­an­legri arð­semi í rekstri bank­ans og greiða hlut­höfum jafnan arð. Bankinn er með ánægð­ustu við­skipta­vini meðal við­skipta­bank­anna. Árangur bank­ans er góður og starfs­fólk leggur sig fram við að veita við­skipta­vinum fram­úr­skar­andi þjón­ustu. Þrátt fyrir krefj­andi ytra umhverfi er bank­inn í sterkri stöðu til að styðja við íslenskt sam­fé­lag.“

Hreinar vaxta­tekjur, sem eru munur á inn­láns- og útláns­vöxtum, voru 14,8 millj­arðar króna en þær námu 14,4 millj­örðum króna á sama tíma­bili 2024. Helst það rétt tæp­lega í hendur við þróun verð­lags á sama tíma­bili.

Sterk afkoma kemur þrátt fyrir að „óró­leiki á mörk­uðum og óvissa í alþjóða­málum [hafi sett] mark sitt á fjórð­ung­inn með ýmsum hætti.“

Láns­hæf­is­mat Lands­bank­ans styrk­ist nýverið. „Á mánu­dag­inn var til­kynnt um að alþjóð­lega mats­fyr­ir­tækið S&P hefði hækkað láns­hæf­is­mat bank­ans upp í A-flokk, úr BBB+ í A-,“ segir banka­stjór­inn.

Á aðal­fundi Lands­bank­ans í mars var sam­þykkt að greiða 18,9 millj­arða króna í arð til hlut­hafa vegna rekst­urs síð­asta árs. Íslenska ríkið á meira en 98% hluta­fjár í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara