Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Faðir Virginia Giuffre trúir ekki að hún hafi framið sjálfsvíg

„Hún svipti sig ekki lífi, ein­hver náði til hennar“

Faðir Virginia Giuffre trúir ekki að hún hafi framið sjálfsvíg
Sky Roberts Faðir Virginiu telur að dóttur sín hafi verið myrt.

Faðir Virginia Giuffre efast um opin­beru frá­sögn­ina um and­lát dóttur sinnar og segir úti­lokað að hún hafi tekið eigið líf, hann telur ein­hvern hafa komið henni fyrir katt­ar­nef.

Sky Roberts ræddi við Piers Morgan í dag og lýsti miklu áfalli og sorg sem fjöl­skyldan gengur nú í gegnum. „Mikið hefur verið um tár og van­trú á dauða Virginíu,“ sagði hann.

Hann bætti við: „Og svo segja þau að hún hafi svipt sig lífi, það er engin leið að það sé satt. Einhver náði til hennar.“

Virginia GiuffreHennar er minnst sem „ódrep­andi bar­áttu­konu gegn kyn­ferð­is­of­beldi og man­sali.“

Virginia fannst með­vit­und­ar­laus á heim­ili sínu í Ástralíu í síð­asta mán­uði. Neyð­ar­við­bragðs­að­ilar reyndu að veita fyrstu hjálp, en hún var úrskurðuð látin á vett­vangi.

Fjöl­skyldan gaf út yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að Virginia hefði tekið eigið líf og var hennar minnst sem „ódrep­andi bar­áttu­konu gegn kyn­ferð­is­of­beldi og man­sali.“

Sky hafði áður látið í ljós efa­semdir um að dóttir hans hefði svipt sig lífi. Hann sagði að hún hefði birt mynd­bönd þar sem hún sagð­ist ekki vera í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum og að ef eitt­hvað kæmi fyrir hana, ættu yfir­völd að rann­saka málið. Slíkar færslur birti hún meðal ann­ars sex árum áður en hún lést.

Færsla frá 2019Árið 2019 var Virginia að minnsta kosti ekki í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum.

Roberts krefst þess nú að and­lát Virginíu verði rann­sakað betur, þó yfir­völd hafi þegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert grun­sam­legt hafi átt sér stað.

Virginia Giuffre var ein af fyrstu kon­unum sem steig fram opin­ber­lega gegn Jeffrey Epstein og lýsti því hvernig hún hefði aðeins 16 ára gömul verið fönguð í umfangs­mikið man­sal, þar sem Ghislaine Maxwell, sem nú afplánar fang­els­is­dóm, hafi haft lyk­il­hlut­verk.

Virginia var 41 árs gömul.

Í þess­ari grein er fjallað um sjálfs­víg. Fólki með sjálfs­vígs­hugs­anir er bent á upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is, Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins s.1717, á net­spjallið 1717.is og á Píeta sím­ann s.552-2218. Þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi er bent á stuðn­ing í Sorg­ar­mið­stöð s. 551-4141, upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is og á Píeta sím­ann s.552-2218.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife