Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Massive Attack sýnir Kneecap stuðning vegna gagnrýni á Ísrael

„Þögnin er hinn raun­veru­legi skandall“

Massive Attack sýnir Kneecap stuðning vegna gagnrýni á Ísrael
Massive Attack í Lebanon Hljóm­sveitin stendur með Kneecap. Mynd: Maya HAUTEFEUILLE / AFP

Breska trip-hop hljóm­sveitin Massive Attack hefur lýst yfir stuðn­ingi við norður-írska hiphop-tríóið Kneecap, eftir að umtals­verð gagn­rýni hefur fallið á þá vegna yfir­lýs­inga þeirra í þágu Palest­ínu.

Í gær birti Massive Attack yfir­lýs­ingu á Instagram þar sem hljóm­sveitin gagn­rýndi hversu mikla for­dæm­ing Kneecap hefur sætt, sér­stak­lega í ljósi þess hve lítið er gert úr alvar­legum mann­rétt­inda­brotum á Gaza-strönd­inni.

„Ef hátt­settir stjórn­mála­menn hafa hvorki tíma né orð til að for­dæma, segjum sem svo, morð á fimmtán sjálf­boða­liðum á Gaza, eða ólög­lega hung­ur­her­ferð gegn almennum borg­urum sem stríðs­að­ferð, eða fjöldamorð á þús­undum barna á sama svæði, af hálfu ríkis sem býr yfir nákvæm­ustu vopnum heims, hversu miklu máli skiptir sið­ferð­is­leg ráð þeirra þegar kemur að því hvaða tón­list­ar­menn eiga að fá að koma fram á tón­list­ar­há­tíðum?“ skrif­aði hljóm­sveitin.

„Við höfum í yfir þrjá­tíu ár talað opin­ber­lega gegn ólög­legur her­námi, aðskiln­að­ar­stefnu og refsi­leysi gagn­vart fjöldamorðum á Palest­ínu­mönnum. Við vitum því full­vel bæði hvað þögn kostar per­sónu­lega og hvaða afleið­ingar það getur haft í atvinnu­líf­inu að sýna sam­stöðu með kúg­uðu fólki.“

Kneecap vakti mikla athygli þegar hljóm­sveitin kom fram á Coachella-tón­list­ar­há­tíð­inni í apríl, þar sem þau birtu kröftug skila­boð gegn Ísrael á svið­inu. Þau héldu því fram að þau hefðu verið rit­skoðuð helg­ina áður. Skila­boðin sem birt­ust á skjá við flutn­ing þeirra voru meðal ann­ars:

„Ísrael fremur þjóð­ar­morð á palest­ínsku þjóð­inni. Banda­ríkja­stjórn styður þetta með vopnum og fjár­magni, þrátt fyrir stríðs­glæpi Ísraels. Fokk Ísrael, frjáls Palest­ína.“

Við­brögðin létu ekki á sér standa. Sharon Osbourne kall­aði eftir því að vega­bréfs­á­rit­anir hljóm­sveit­ar­innar yrðu aft­ur­kall­aðar áður en hóp­ur­inn færi í aðra tón­leika­ferð um Norður-Ameríku síðar á árinu. Fljót­lega eftir það slitn­aði sam­starf þeirra við bók­un­ar­skrif­stof­una Independent Artist Group.

Nýverið báð­ust Kneecap afsök­unar á gömlu mynd­bandi þar sem þeir virð­ast kalla eftir dauða breskra þing­manna. Mynd­bandið var tekið upp á tón­leikum í Lundúnum í nóv­em­ber 2023 og sýnir einn með­lim hóps­ins segja: „Eini góði Íhalds­mað­ur­inn er dauður Íhalds­maður. Dreptu þing­mann­inn þinn.“

Massive Attack brugð­ust við: „Málfar skiptir vissu­lega máli. Við höfum séð skelfi­leg morð á kjörnum full­trúum eins og Jo Cox og David Amess. Það gefur ekki rými fyrir kæru­leysi. En hafa stjórn­mála­menn og hægri­s­inn­aðir fjöl­miðla­menn, sem skipu­lega skapa sið­ferð­is­legt hneyksli út frá orðum ungrar pönk­hljóm­sveitar, en hunsa eða hylma yfir með þjóð­ar­morði sem fer fram í beinni, þar með talið fjöldamorð á blaða­mönnum, raun­veru­lega sið­ferð­is­legan rétt til að hafa áhrif á það hverjir megi koma fram á hátíðum?“

Hljóm­sveitin hélt áfram: „Kneecap eru ekki fréttin. Gaza er fréttin. Þjóð­ar­morðið er fréttin. Og þögn, sam­þykki og stuðn­ingur við þessi glæpa­verk af hálfu breskra stjórn­valda er hinn raun­veru­legi skandall. Við stöndum með öllum lista­mönnum sem hafa sið­ferð­is­legt hug­rekki til að tala gegn stríðs­glæpum Ísraels og áfram­hald­andi ofsóknum og fjöldamorðum á palest­ínsku þjóð­inni.“

Í kjöl­far yfir­lýs­ingar Massive Attack gaf útgáfu­fyr­ir­tækið Heavenly Recordings í Lundúnum einnig út sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu sem var und­ir­rituð af fjölda tón­list­ar­manna og hljóm­sveita, þar á meðal Fontaines D.C., Pulp, The Pogues, Thin Lizzy, Sleaford Mods, Paul Weller og öðrum.

„Síðasta vika hefur sýnt skýra, sam­ræmda til­raun til að rit­skoða og í raun þagga niður í hljóm­sveit­inni Kneecap,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Í Westminster og breskum fjöl­miðlum hafa stjórn­mála­menn opin­ber­lega reynt að færa þá úr sviðs­ljós­inu með duldum hót­unum, meðal ann­ars varð­andi frammi­stöður þeirra á tón­leikum og hátíðum eins og Gla­ston­bury.“

„Í lýð­ræð­is­ríki ættu hvorki stjórn­mála­menn né stjórn­mála­flokkar að ákveða hverjir mega koma fram á tón­list­ar­há­tíðum. Hvort fólk sé sam­mála póli­tískum skoð­unum Kneecap skiptir ekki máli, það er grund­vall­ar­at­riði fyrir alla lista­menn að tján­ing­ar­frelsi sé virt í sam­fé­lagi sem metur menn­ingu. Þessi árás verður að vera for­dæmd og hæðst að henni.“

Að lokum segir: „Þá er það líka skylda leið­toga innan tón­list­ar­brans­ans að verja tján­ing­ar­frelsið, ekki að reyna að þagga niður í röddum sem eru þeim ekki að skapi.“

Rolling Stones sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta