Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þaulvanur fallhlífastökkvari hrapaði til bana í Bretlandi

Skyldi eftir sjálfs­vígs­bréf.

Þaulvanur fallhlífastökkvari hrapaði til bana í Bretlandi
Jade Damarell Jade var aðeins 32 ára. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fall­hlífa­stökkvar­inn Jade Damarell lést með hörmu­legum hætti eftir að hafa fallið 10.000 fet úr flug­vél án þess að opna fall­hlíf sína. Lög­reglan telur nú að um sjálfs­víg hafi verið að ræða, eftir að hafa fundið skila­boð sem hún hafði skilið eftir fyrir stökkið.

Jade, sem var 32 ára gömul, hafði lokið yfir 400 vel heppn­uðum stökkum áður en hún lést síð­ast­lið­inn sunnu­dag er hún féll til jarðar úr 10.000 feta hæð.

Jade í stökkiJade hafði áður stokkið 400 sinnum úr flug­vél.

Upp­haf­lega var talið að atvikið væri hörmu­legt slys, en fall­hlífa­fé­lagið hennar SkyHigh Skydi­v­ing stað­festi síðar að lög­reglan hefði upp­lýst þau um að Jade hefði vís­vit­andi valið að opna ekki fall­hlíf­ina. Bréf fannst sem sýndi fram á áform hennar.

Nigel Wreford, 56 ára starfs­maður á bóndabæ, sem býr nálægt vett­vangi slyss­ins í Peterlee í County Durham, sagði í sam­tali við Mirror: „Ég hef heyrt frá nokkrum að hún hafi vitað hvað hún var að gera, hún átti víst að hafa skilið eftir kveðju­bréf.“

Nigel rifj­aði upp augna­blikið þegar annar fall­hlífa­stökkvari, sem hafði verið með Jade í stökki hennar, kom örmagna og í áfalli að heim­ili hans.

„Það er óhugs­andi hversu skelfi­legt þetta hlýtur að hafa verið,“ bætti hann við. „Hann var mjög ringlaður og gat varla tjáð sig. Þetta er hræði­legt. Ég get ekki hætt að hugsa um stúlk­una og fjöl­skyldu hennar.“

Jade og móðir hennarFjöl­skylda Jade syrgir sáran.

Vinur Jade stað­festi einnig grun lög­reglu og fall­hlífa­deild­ar­innar: „Þetta var ekki slys. Við trúum því miður að hún hafi ætlað sér að binda endi á líf sitt. Hún kaus að opna ekki fall­hlíf­ina og lenti á bak­inu.“

SkyHigh Skydi­v­ing sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau sögðu:

„Það er með mik­illi sorg sem við stað­festum að hörmu­legt atvik átti sér stað 28. apríl 2025, sem varð með­limi í sam­fé­lagi okkar að bana. Öll merki frá lög­reglu og British Skydi­v­ing benda til þess að þetta hafi verið vís­vit­andi gjörð til að binda endi á eigið líf.

Þessar hörm­ung­ar­fréttir hafa haft djúp­stæð áhrif á alla sem þekktu hana og hugur okkar er hjá fjöl­skyldu hennar og vinum á þessum ósegj­an­lega erf­iða tíma. Við biðjum um frið og sam­kennd fyrir þá sem syrgja.“

Þau bættu við: „Ef þú ert að glíma við erf­ið­leika eða til­finn­inga­lega van­líðan, þá skaltu vita að þú ert ekki einn. Hjálp er til staðar. Við hvetjum alla í neyð að tala við ein­hvern eða leita til fag­að­ila í geð­heil­brigð­is­málum. Jafnvel í myrk­ustu stundum er til von og stuðn­ingur.“

Við­bragðs­að­ilar komu á vett­vang nálægt Wrefords Farm í County Durham en ekki tókst að bjarga henni og hún var úrskurðuð látin á staðnum.

Ljóst er að rann­sókn mun fara fram þar sem málið hefur verið fært til dán­ar­dóm­ara.

Í þess­ari grein er fjallað um sjálfs­víg. Fólki með sjálfs­vígs­hugs­anir er bent á upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is, Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins s.1717, á net­spjallið 1717.is og á Píeta sím­ann s.552-2218. Þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi er bent á stuðn­ing í Sorg­ar­mið­stöð s. 551-4141, upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is og á Píeta sím­ann s.552-2218.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta