Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Efling krefst bráðaaðgerða stjórnvalda

Djúp hús­næð­iskreppa og skamm­tíma­leiga í lyk­il­hlut­verki

Efling krefst bráðaaðgerða stjórnvalda
Sólveig Annar Jóns­dóttir Efling krefst aðgerða. Mynd: Bára Huld Beck

Stétt­ar­fé­lagið Efling krefur stjórn­völd um taf­ar­lausar og rót­tækar aðgerðir vegna alvar­legrar stöðu á hús­næð­is­mark­aði. Ný skýrsla Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), Vegvísir leigu­mark­aðar 2025, sýnir fram á víð­tæka kreppu, sér­stak­lega á leigu­mark­aði, og spáir enn frek­ari leigu- og verð­hækk­unum.

Samkvæmt skýrsl­unni eru um 9.000 íbúðir á land­inu í skamm­tíma­leigu til ferða­manna, þar af 4.000 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í mið­borg Reykja­víkur eru um fimmt­ungur íbúða í slíku leigu­fyr­ir­komu­lagi. Þetta dregur úr fram­boði til búsetu og ýtir undir óeðli­legar verð­hækk­anir.

„Verð og leiga íbúða hefur hækkað meira á Íslandi en í öllum Evr­ópu­ríkjum á síð­asta ára­tug - og gerir enn. Staðan hér hefur því verið óvenju­lega alvar­leg. Að mati HMS eru nú horfur á enn frek­ari hækk­unum leigu á næstu miss­erum, að óbreyttu. Íbúða­verð og leiga hafa hækkað langt umfram árs­laun verka­fólks (sjá með­fylgj­andi mynd). Þannig grefur ástand hús­næð­is­mál­anna stór­lega undan mögu­leikum launa­fólks á að koma sér upp íbúð­ar­hús­næði og rýrir kaup­mátt. Það leggst með mestum þunga á fólk í lægri tekju­hópum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Eflingu.

Stétt­ar­fé­lagið bendir á að hús­næð­is­stuðn­ingur rík­is­ins hafi verið of ómark­viss og að stjórn­völd hafi brugð­ist hlut­verki sínu. HMS segir aðgerðir hingað til hafa ekki dugað til og kallar sjálft eftir rót­tækum breyt­ingum.

Krafa Eflingar: Fjórar aðgerðir tafarlaust

Efling leggur til fjögur brýn inn­grip stjórn­valda:

  1. Veru­legar tak­mark­anir á skamm­tíma­leigu íbúða á borð við AirBnB, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og eftir þörfum í öðru þétt­býli. „Það eru þær aðgerðir sem virka hrað­ast til að slá á misvægi fram­boðs og eft­ir­spurnar sem orsakar óeðli­legar verð­hækk­anir.“
  2. Leigu­bremsa verði lög­fest til að hemja óhóf­legar hækk­anir leigu­verðs og draga úr verð­bólgu. „Ísland þarf að nálg­ast grann­ríkin í þessum efnum svo um munar. Leigu­bremsa er líka mik­il­vægt verk­færi í bar­átt­unni við verð­bólg­una.“
  3. Aukið fram­boð íbúða fyrir tekju­lægri hópa, meðal ann­ars með efl­ingu óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
  4. Bættur hús­næð­is­stuðn­ingur – meðal ann­ars með hækkun og verð­bótum leigu­bóta sem hafa rýrnað vegna verð­bólgu. „Bæði til að auka enn frekar fram­boð íbúða til lægri tekju­hópa á vegum óhagn­að­ar­drif­inna aðila og létta byrðar heim­ila.“

Efling bendir á að til­mæli HMS sýni svart á hvítu að Ísland sé meðal þeirra landa innan OECD sem bjóði leigj­endum hvað minnstu vernd gegn hækk­unum. Þá sé það ein­kenn­andi fyrir íslenskan markað að hann sé laus við þá stjórn sem tíðkast í nágranna­ríkjum, jafn­vel Banda­ríkj­unum.

„Umtals­verð tak­mörkun á skamm­tíma­leigu íbúð­ar­hús­næðis í þétt­býli til ferða­manna og inn­leið­ing alvöru leigu­bremsu kosta stjórn­völd ekk­ert. Vilji til aðgerða er allt sem þarf,“ segir Efling í yfir­lýs­ing­unni og bætir við að lokum:

„Skýrsla HMS, Vegvísir leigu­mark­aðar 2025, útlistar fleiri mik­il­vægar umbóta­að­gerðir í hús­næð­is­mál­unum sem grípa þarf til. Kreppa hús­næð­is­mál­anna og dökkar horfur framundan eru slíkar að enga bið þolir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi