Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Takist Ísrael að vinna Eurovision með svindli, þá drepa þeir keppnina“

Íslenskur ráð­gjafi rýnir í mögu­leg véla­brögð Ísraela.

„Takist Ísrael að vinna Eurovision með svindli, þá drepa þeir keppnina“
Marínó G. Njálsson. Ráð­gjaf­inn telur lík­legt að átt hafi verið við atkvæðin í Eurovision. Mynd: Facebook

Marínó G. Njálsson, ráð­gjafi og sam­fé­lags­rýnir skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann segir frá athuga­semd sinni við færslu Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns, um grun­sam­lega töl­fræði kosn­ingu Eurovision-söngvakeppn­innar í ár, líkt og í fyrra.

„Í athuga­semd við færslu Egils Helga­sonar um Eurovision skrif­aði ég eft­ir­far­andi:

"Töl­fræðin segir að átt hafi verið við kosn­ing­una bæði núna og í fyrra. Ég hef hins vegar ekki áhyggjur af úrslitum þess­arar skraut­sýn­ingar, heldur að detti mönnum í hug að hag­ræða úrslitum hennar, hverju geta þeir áorkað með því að hag­ræða ein­hverju öðru?".“

Marínó birti því næst útskýr­ingar sínar sem hann bætti við í athuga­semd­inni við færslu Egils. Nefnir hann fjóra punkta, óskilj­an­legar sveiflur á milli stiga­gjafa dóm­nefnda og svo almenn­ings, töl­fræði­legan ómögu­leika, aðför að lýð­ræði ríkja og þá stað­reynd að ef tölvu­kerfi Evr­ópu­ríkja voru hökkuð, þá muni hakk­ar­arnir gera eitt­hvað alvar­legra í fram­tíð­inni. Hér má lesa punkt­ana í heild sinni:

„1. Tvö ár í röð hafa orðið óskilj­an­legar sveiflur þar sem dóm­nefndir gefa engin stig meðan almenn­ingur gefur 10 og 12 stig. Þetta hefur gerst áður, en ekki í því mæli sem var þessi tvö ár. Séu skoð­aðar tíur og tólfur sem almenn­ingur á að hafa gefið, þar sem dóm­nefndir gáfu engin stig, þá hefur fjöldi stiga sem þannig hefur feng­ist almennt verið undir 100. Á þessu eru fjórar und­an­tekn­ingar. Árið 2019 fékk Noregur 118 slík stig, 2022 fékk Úkraína líka 118 slík stig (Úkraína fékk 10 og 12 stig frá almenn­ingi í öllum löndum það ár). Í fyrra fékk Ísrael 184 slík stig og 138 í ár. Látum það alveg liggja á milli hluta að slíkt gæti gerst einu sinni [í þessu mæli], en hjá sömu þjóð tvisvar í röð er töl­fræði­lega mjög, mjög ólík­legt, sér­stak­lega þegar haft er í huga hve mörg stigin eru. Úkraína var líka með flest slík stig árið 2021, en þau voru bara 54.

2. Hin hliðin á pen­ingnum er, að í fyrra fékk Portúgal 139 stig frá dóm­nefnum en bara 13 stig frá almenn­ingi. Lagið var almennt vin­sælt og því hefði mátt búast við að það fengi t.d. stig frá almenn­ingi á Spáni, sem það fékk ekki [sem er í fyrsta sinn á þess­ari öld]. Það lítur því út fyrir að tals­verður hluti atkvæða almenn­ings til portú­galska atrið­is­ins hafi horfið. Í ár gerð­ist nokkuð sem hafði ekki gerst áður frá því að farið var að birta tölur almenn­ings og dóm­nefnda sjálf­stætt [árið 2016]. Atriði sem fékk yfir 100 stig frá dóm­nefndum fékk ekk­ert stig frá almenn­ingi. Það sem meira er, að það fékk yfir 200 stig frá dóm­nefndum. Árið 2017 fékk Aust­ur­ríki 93 stig frá dóm­nefndum án þess að fá eitt ein­ast stig frá almenn­ingi. En núna fékk Sviss 214 stig. Ég vil leyfa mér að full­yrða, að slíkt er töl­fræði­lega nán­ast ómögu­legt. Því er mun lík­legra að átt hafi verið við atkvæða­tölur almenn­ings.

3. Þessi nið­ur­staða tvö ár í röð, er lík­lega til að láta svo líta út, að almenn­ingi í Evrópu sé alveg sama um hernað Ísraela á Gasa og sner­ist ekki um að vinna keppn­ina, því ég er nokkuð viss um, að þá færi keppnin ekki aftur fram. Það er því verið að falsa almenn­ings­á­litið, sem er aðför að lýð­ræð­inu í þessum löndum.

4. Ég hef ekki mestar áhyggjur af því, að tölum hafi verið hag­rætt í keppn­inni, heldur eru þau kerfi sem notuð er hluti af mik­il­vægum innviðum sam­kvæmt tveimur NIS (net­ör­yggis) til­skip­unum. Kerfin eiga því að vera vel varin. Hafi hökk­urum tek­ist að brjót­ast inn í þessi kerfi, þá eru þeir örugg­lega búnir að koma sér upp bak­dyrum, sem hægt er að nota síðar. Til hvers þær verða not­aðar í fram­tíð­inni er það sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Að falsa úrslit í þess­ari keppni er smá­sál­ar­legt".“

Marínó segir síðan frá því að hann hafi í fyrra bent RÚV og CERT-ÍS á lík­lega hag­ræð­ingu stiga­gjafar í Eurovision og að Vodafone, sem er sam­skipta­að­il­inn við EBU, hafi gripið til aðgerða og því séu ekki merki um að átt hafi verið við síma­at­kvæði hér á landi.

„Þegar ég sá hvernig stigin skipt­ust í fyrra, þá hafði ég sam­band við bæði RÚV og CERT-ÍS til að benda þeim á þessa mjög svo lík­legu hag­ræð­ingu stiga­gjafar, sem gat ekki farið fram án þess að hakka mik­il­væga inn­viði fjöl­margra Evr­ópu­ríkja. Stefán Eiríks­son tjáði mér að RÚV hafi látið Vodafone vita sem er síðan sam­skipta­að­il­inn við EBU vegna kosn­ing­anna, en ég veit ekki hver urðu örlög ábend­ingar minnar til CERT-ÍS. Ég held að Vodafone hafi gripið til aðgerða hér á landi, því ekki eru merki um að átt hafi verið við atkvæði almenn­ings á Íslandi í ár.“

Því næst segir Marínó frá því að í haust hafi aðilar frá EBU hafst sam­band og boðið honum að sækja um stöðu þar.

„Svo merki­lega vildi til, að haft var sam­band við mig frá EBU í haust og mér boðið að sækja um stöðu Senior Information Security Officer, sem ég gerði. Komst því miður ekki í hóp þeirra sem tekin voru í við­töl, því þá hefði ég notað tæki­færið og vakið athygli á þessu.“

Að lokum segir Marínó áhyggjur sínar ekki snú­ast um að ein­hver vilji skemma Eurovision en bendir þó á að tak­ist Ísrael að sigra Eurovision með véla­brögðum, sé keppnin dauð.

„Bara svo það sé á hreinu, þá snúa áhyggjur mínar ekki af því að ein­hver vilji eyði­leggja Eurovision. Þarna er hins vegar verið að búa til falska ímynd af afstöðu Evr­ópu­búa til hern­aðar Ísraela á Gasa og það er verið að hakka kerfi sem telj­ast mik­il­vægir inn­viðir. Takist Ísrael að vinna Eurovision með svindli, þá drepa þeir keppn­ina. Svo ein­falt er það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi