Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ákváðu óvænt að lækka vextina

Pen­inga­stefnu­nefnd ein­róma um vaxta­lækkun, sem eru góðar fréttir fyrir fólk með óverð­tryggð hús­næð­is­lán.

Ákváðu óvænt að lækka vextina
Pen­inga­stefnu­nefndin Pen­inga­stefnu­nefnd var ein­róma um vaxta­lækkun. Hún er nú skipuð þannig: Ásgeir Jónsson, for­maður, Þórarinn G. Pét­urs­son, stað­geng­ill for­manns, Tómas Brynj­ólfs­son, Herdís Stein­gríms­dóttir og Ásgerður Ósk Pét­urs­dóttir. Mynd: Seðlabankinn

Stýri­vextir lækka um 0,25% í dag, sam­kvæmt ein­róma ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands og verða þeir 7,5%, sem þó er hátt í sögu­legu til­liti.

Grein­endur höfðu margir hverjir búist við því að engin lækkun yrði á vöxtum í dag, vegna þess að verð­bólgu­tölur höfðu hækkað. Seðla­bank­inn spáir því nú að verð­bólga hald­ist vel fyrir ofan við­mið á árinu. Það þýðir að verð­tryggð lán hækka um sam­svar­andi hlut­fall. „Verð­bólga var 4,2% í apríl og hefur minnkað tölu­vert frá því sem hún var mest fyrir tveimur árum. Samkvæmt nýbirtri spá Seðla­bank­ans mun hún hald­ast nálægt 4% út árið en taka síðan að hjaðna í mark­mið,“ skýrir pen­inga­stefnu­nefnd í yfir­lýs­ingu sinni.

Vísitala neyslu­verðs, sem er grunnur verð­bólgu­mæl­inga, hækk­aði meira en búist var við í apríl. Hluti af ástæð­unni er hærra mat­væla­verð. Verð­lags­eft­ir­lit Alþýðu­sam­bands Íslands greindi frá því að verð mat­væla hafi farið ört hækk­andi á þessu ári og að nauta­kjöt hefði í ein­hverjum til­fellum hækkað um 20% á einu ári.

„Þótt verð­bólga hafi hjaðnað og verð­bólgu­vænt­ingar lækkað síð­ustu miss­eri er verð­bólgu­þrýst­ingur enn til staðar,“ segir pen­inga­stefnu­nefnd. „Þær aðstæður hafa því ekki skap­ast að hægt sé að slaka á núver­andi raun­vaxta­að­haldi pen­inga­stefn­unnar. Ljóst er að frek­ari skref til lækk­unar vaxta eru háð því að verð­bólga fær­ist nær 2,5% mark­miði bank­ans.“

Vegna þess að verð­bólga jókst umfram vænt­ingar í apríl spáðu grein­inga­deildir Lands­bank­ans og Íslands­banka því að engin vaxta­lækkun yrði í dag. Arion banki spáði hins vegar 0,25% lækkun.

Næsta ákvörðun um stýri­vexti verður ekki tekin fyrr en 20. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara