Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Safnaði nægum pening til að hjálpa 30 fjölskyldum á Gaza

„Ég get eig­in­lega ekki lýst því hversu þakk­lát ég er.“

Safnaði nægum pening til að hjálpa 30 fjölskyldum á Gaza
Eyrún Björk Jóhanns­dóttir Aust­firska flug­freyjan hljóp heila 67 kíló­metra til að safna fyrir Gaza-búum. Mynd: Facebook

Eyrún Björk Jóhanns­dóttir gerði sér lítið fyrir og safn­aði rétt rúmri milljón krónum þegar hún hljóp Bak­garðs­hlaupið á dög­unum. Hljóp hún hvorki meira né minna en 67 kíló­metra.

Að sögn Eyrúnar Bjarkar, flug­freyju og aðgerð­ar­sinna, hefur sú upp­hæð sem safn­að­ist til stuðn­ings fjöl­skyldum á Gaza, nú verið komið í hend­urnar á 30 fjöl­skyldum. Eyrún sagði frá þessu á Facebook en hún segir að allar fjöl­skyld­urnar 30, séu fjöl­skyldur sem búið er að stað­festa að búi við hörmu­legar aðstæður.

„Þessir pen­ingar nýtt­ust þessum fjöl­skyldum vel og eru jafn­vel enn að nýt­ast. Sumir eru í betri aðstöðu en aðrir, aðrir hafa neyðst til að yfir­gefa tjöld sín enn einu sinni og fara út í óviss­una með ekk­ert á bak­inu, til að bjarga börn­unum sínum. Allir eru enn í sárri neyð og þurfa enn okkar stuðn­ing.“

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Eyrún Björk að henni hefði ekki dottið í hug að hún gæti safnað svona hárri upp­hæð en sé þó ekki hissa á því hversu margir vildu styrkja. „Ég var mjög hissa hvað ég náði að safna miklu og mjög þakk­lát. Ég get eig­in­lega ekki lýst því hversu þakk­lát ég er.“

En hvað fékk Eyrúni Björk til þess að byrja söfn­un­ina?

„Ég hef núna verið nokkuð lengi að reyna að gera hvað ég get gert [í sam­bandi við árásir Ísraela á Gaza], en hver og einn getur bara gert lítið. Ég vildi bara gera það sem ég gæti til að hjálpa þessu fólki við þessar hörmu­legu aðstæður. En já, ég er hissa en samt ekki hissa á stuðn­ingnum því ég veit að það er fullt af fólki sem vill hjálpa og finnst þetta auð­vitað alveg ömur­legt og vill gera eitt­hvað en kemur því ekki við í sínu dag­lega lífi. Og veit í raun ekki hvert það eigi að snúa sér.“

Eyrún Björk segir að fólki finn­ist mörgum erfitt að bera sig að ef það vill styðja Gaza-búa beint enda getur það verið nokkuð flókið og svo hafa svika­hrappar einnig nýtt sér ástandið.

„Þess vegna hef ég verið að deila á Facebook-síð­unni minni hvaða fjár­öfl­un­ar­síðum fólk getur treyst alveg pott­þétt því ég veit að fólk er að fá vina­beiðnir frá fólki en venju­legt fólk hefur ekki burði til að kanna bak­grunn þeirra,“ segir Eyrún Björk og bæti því við að það séu þó nokkrir ein­stak­lingar, til dæmis á Akureyri og í Reykja­vík, sem hafa verið að ræða við fólk í neyð á Gaza í gegnum mynd­bands­sím­töl, til þess að fá stað­fest­ingu á raun­veru­legri neyð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi