Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjarna úr Harry Potter í bráðaaðgerð vegna öndunarörðugleika

„Vil ekki hræða eða valda áhyggjum.“

Stjarna úr Harry Potter í bráðaaðgerð vegna öndunarörðugleika
Stan­islav dansar við Emmu Watson. Leik­ar­inn var hætt kom­inn en er nú á bata­vegi.

Stan­islav Yanevski, sem lék búlgarska Quidditch -leik­ar­ann Viktor Krum í Harry Potter og Eld­bik­ar­inn, hefur upp­lýst að hann hafi verið fluttur á sjúkra­hús vegna önd­unarörð­ug­leika og þurft að gang­ast undir bráða­að­gerð.

Leik­ar­inn, sem er 39 ára, birti mynd og stöðu­færslu á Instagram þar sem hann lá í sjúkra­hús­rúmi með umbúðir yfir nef­inu. Hann reyndi að brosa til mynda­vél­ar­innar og deildi fréttum af ástandi sínu með fylgj­endum sínum:

„Sæl elsku­legu dömur og herrar. Nú er komið að því að deila frétt­unum, en fyrst: TAKK fyrir allar ynd­is­legu afmælis­kveðj­urnar! Ég þakka fyrir hvert ein­asta inn­legg, hverja ein­ustu kveðju og ég fann virki­lega fyrir stuðn­ingi ykkar á þessum mik­il­væga degi í lífi mínu.“

Stan­islav á sjúkra­hús­inu.Stan­islav er enn með íhluti í nef­inu.

Hann bætti við að hann hefði fengið mik­inn stuðn­ing frá fjöl­skyldu sinni og þeim fáu sem hann hafði sagt frá veik­ind­unum. Hann sagði að bata­ferlið gengi vel:

„Ég mun geta sofið án vand­ræða, náð bata með rólegum svefni og verið brátt kom­inn til fulls styrks. Ég er þó enn með nokkra íhluti í nef­inu, svo ég get ekki tjáð mig alveg frjáls­lega.“

Hann bað þá sem hafa keypt sér per­sónu­leg mynd­skeið frá honum á Cameo að sýna þol­in­mæði þar til hann væri búinn að ná sér að fullu.

„Lækn­ir­inn minn sagði í dag að ég væri að jafna mig ótrú­lega vel og var raunar hissa á fram­förum mínum. Ég held að hollt matar­æði, æfingar, sjálfsagi og trú hjálpi mikið í svona aðstæðum.“

Hann útskýrði að myndin sem hann deildi hafi verið tekin rétt eftir að hann kom út af skurð­stof­unni:

„Fljót­lega eftir afmælið mitt var ég lagður inn vegna þess að ég gat ekki andað. Ég fór í aðgerð og þessi mynd var tekin rétt eftir það. Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá geng ég í gegnum erf­ið­leika í hljóði, vil ekki hræða eða valda áhyggjum.“

Að lokum þakk­aði Stan­islav aðdá­endum sínum fyrir ást­ina og stuðn­ing­inn og óskaði þeim „töfr­andi helgar“. Aðdá­endur streymdu í athuga­semdir til að senda honum bata­kveðjur. Einn skrif­aði:

„Djöf­ull­inn maður! Passaðu þig og náðu bata fljótt. Þú ert stríðs­maður.“

Annar sagði:

„Góða bata, bróðir! Sendi hlýju og bata­óskir.“

Og einn aðdá­andi bætti við:

„Nú skil ég af hverju þú afboð­aðir þátt­töku á við­burðum, var farin að hafa áhyggjur. Gangi þér allt í hag­inn og gleði­legt afmæli, þrátt fyrir allt.“

Stan­islav lék Viktor Krum í kvik­mynd­inni Harry Potter og Eld­bik­ar­inn frá árinu 2005. Hann kom einnig fram í klipptum senum í Harry Potter og dauða­djásnin – hluti 1 og lék í mynd­unum Hostel: Part II, Resistance og The 11th Grade.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta