Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ók óvart í gegnum rúðu á skólanum

Ökumenn lentu í óförum. Maður í Kópavogi bank­aði í stiga­gangi og mætti svo með múr­stein.

Ók óvart í gegnum rúðu á skólanum
Hafn­ar­fjörður Lög­reglan í Hafn­ar­firð­inum segir frá óförum öku­manna á mis­mun­andi far­ar­skjótum. Mynd: Shutterstock

Aðili á mót­or­hjóli ók í gegnum rúðu í skóla í Hafn­ar­firði í gær­kvöldi, sam­kvæmt fréttum lög­regl­unnar af atburðum lið­innar nætur. Hann gerði það fyrir slysni og slapp með minni­háttar áverka.

Annar missti stjórn á raf­hlaupa­hjóli og olli skemmdum á tveimur öku­tækjum. Þar var óför­unum ekki lokið, því lög­regla stóð hann að því að vera undir áhrifum áfengis. Hann var hand­tek­inn, en fluttur á slysa­deild með áverka á and­liti og hendi.

Þriðji aðil­inn á svæði lög­regl­unnar í Hafn­ar­firði var á bif­reið. Hann ók ítrekað utan í vegrið og á veg­kanta á ferðum sínum. „Hann var vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins,“ segir í dag­bók­ar­skýrslu lög­regl­unnar.

Fögnuður og tryllingur í Reykjavík

Í mið­borg Reykja­víkur var meira um mis­brest í sam­skiptum en mis­heppn­aðar sam­göngur. Þar var „nokkuð um hávaða­út­köll, ölv­aða ein­stak­linga og slags­mál í mið­borg­inni enda mikið um að vera, bæði skipu­lagða við­burði og margir að fagna útskriftum.“

Aðrir fögn­uðu síður. Einn maður kaus að „ganga í skrokk á öðrum“ og lét ekki þar við sitja, heldur braut rúður í nokkrum bílum. Eins og lýs­ingin ber með sér reynd­ist hann í ann­ar­legu ástandi og var vistaður í fanga­klefa.

Lengst gekk nóttin þegar sér­sveitin var kölluð út. Þá var til­kynnt um mann ógna öðrum með hníf í heima­húsi. Hann var hand­tek­inn af sér­sveit­inni, fluttur á lög­reglu­stöð­ina og vistaður í fanga­klefa.

Maður bankar á hurðar - er með múrstein

Í Kópa­vog­inum var einnig maður við hnífa­burð, en hann slapp. „Tilkynnt um mann á gangi með hníf í hendi, aðil­inn fannst ekki þrátt fyrir mikla leit,“ segir lög­reglan. Annar maður á Kópa­vogs­svæð­inu var ekki svo hepp­inn með sitt athæfi. Þá var til­kynnt um „aðila í ann­ar­legu ástandi á stiga­gangi að banka á hurðar“. „Þegar að lög­regla kom á vett­vang tók aðil­inn á móti lög­reglu með múr­stein í hendi. Aðilinn reyndi að flýja lög­reglu en án árang­urs og var mað­ur­inn vistaður í fanga­klefa,“ segir lög­reglan.

„Þegar þetta er ritað gista fjórir í aðilar fanga­klefa,“ skrif­aði full­trúi lög­reglu í dag­bók hennar í morgun. Fram­an­greind voru aðeins nokkur af 80 málum sem bókuð voru í kerfi lög­regl­unnar í nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi