Myndband náðist af eiginkonu Emmanuel Macron, forseta Frakklands, slá eiginmann sinn í andlitið þegar þau voru stödd í flugvél í Víetnam en atvikið átti sér stað síðustu helgi.
Talsmenn forsetans tjáðu sig upphaflega ekki um málið en forsetinn hefur síðan sagt að þau hjónin hafi verið að bregða á leik og gerði lítið úr högginu en hann hefur verið giftur Brigitte Trogneux síðan 2007.
Heimsókn hans til Víetnam er hluti af ferðalagi forsetans um Suðaustur-Asíu. Hann mun einnig heimsækja Indónesíu og Singapúr í ferðinni.





















Athugasemdir