Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frumkvöðlakonur styrktar

Alls fengu 19 verk­efni styrk þetta árið

Frumkvöðlakonur styrktar
Inga Sæland með styrk­þegum Arna Sigrún Har­alds­dóttir ætlar að fram­leiða fatnað fyrir hreyfi­haml­aða Mynd: Robert Z

Styrkjum til atvinnu­mála kvenna var úthlutað á dög­unum og veitti Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þá. Greint er frá þessu í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu.

Styrkjum til atvinnu­mála kvenna hefur verið úthlutað frá 1991 og eru þeir ætl­aðir konum sem eru frum­kvöðlar eða fyr­ir­tækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrk­veit­inga eru að verk­efnin séu í meiri­hluta­eigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af ein­hverju tagi. 

Í ár bár­ust 239 umsóknir og alls fengu 19 verk­efni styrki að fjár­hæð sam­tals 38.000.000 kr. 

Hæstu styrkir námu fjórum millj­ónum og hlutu fjögur verk­efni þá upp­hæð:

Guðrún Heim­is­dóttir og Erna Niluka Njáls­dóttir fyrir hönd Hvað nú?
Styrkur vegna verk­efn­is­ins Hvað nú? Markmið þess er að vera fyrsta heild­stæða stuðn­ings­kerfið fyrir syrgj­endur á Íslandi sem tryggir að þeir fái skýrar leið­bein­ingar og aðstoð við að vinna úr þeim verk­efnum sem fylgja ást­vina­missi.

Ragn­hildur Sig­urð­ar­dóttir fyrir hönd Góðir dagar ehf.
Styrkur vegna verk­efn­is­ins Heyband en mark­mið þess er að finna lausnir á end­ur­vinnslu á not­uðu hey­neti sem fellur til í veru­legu magni hvar­vetna þar sem land­bún­aður er til staðar.

Rósa Dögg Þor­steins­dóttir fyrir hönd Visttorg ehf.
Styrkur vegna verk­efn­is­ins „Þróun sjálf­virkrar gagna­öfl­unar og gervi­greind­ar­lausna fyrir Vistbók“ en Vistbók er gagna­drifin lausn sem mun bjóða upp á sjálf­virka gagna­öflun, raun­tíma­grein­ingu og miðlun vist­vænna gagna inn í aðfanga­kerfi bygg­ing­ar­geirans.

Arna Sigrún Har­alds­dóttir
Styrkur til að vinna að vöru­þróun og fram­leiðslu á fatn­aði sem hentar hreyfi­höml­uðum þar sem venju­legur fatn­aður hentar ekki fólki sem er í hjóla­stól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara