Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkalíf Sæþórs

Einkalíf Sæþórs

Upp­risu­deild Sós­í­alista­flokks Íslands, sem náði öllum sætum í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins á aðal­fundi um helg­ina, er nú að kynn­ast veru­leika stjórn­mál­anna.

Sæþór Benjamín Randals­son, nýkjör­inn for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, sem tekur við stöðu Gunnars Smára Egils­sonar, er kom­inn í frétt­irnar vegna skjá­skota af meintum kyn­ferð­is­legum sam­skiptum hans við yfir­lýstan 16 ára ung­ling á sam­fé­lags­miðl­inum Grindr. Sæþór segir í sam­tali við vef­mið­il­inn Nútímann, sem birti fyrst frétt­ina og skjá­skotin, reynt að „rústa mann­orði hans“. Þá segir Nútíminn aðmið­ill­inn hafi fengið „nokkur slík send“. Hjá Nútím­anum kemur fram að Sæþór hafi orðið fyrir til­raun til fjár­kúg­unar, en sjálfur neitar Sæþór því í dag og segir það mis­skiln­ing blaða­manns Nútímans. Þá hefur Sæþór skipt um skoðun frá því hann svar­aði Nútím­anum og seg­ist nú ætla að kæra málið, en áður ætl­aði hann að láta það vera.

Sæþór sagði í sam­tali við DV, sem birti einnig frétt um málið, að dreif­ing skjá­skot­anna væri engin til­viljun, svo skömmu eftir átaka­mik­inn aðal­fund. Hann seg­ist ekki hafa vitað af skjá­skot­unum fyrr en í þess­ari viku.

Stað­reyndin er hins vegar sú að skjá­skotin fóru í dreif­ingu í mars, áður en það varð að hug­mynd að Sæþór yrði í helsta leið­toga­hlut­verki Sós­í­alista. Það sem hefur þó breyst er að nú er Sæþór í leið­andi hlut­verki í stjórn­mála­afli sem sæk­ist eftir umboði almenn­ings og því er óum­flýj­an­legt að meira gagn­sæi ríki um aðstæður og athæfi hans en venju­legra borg­ara, eins og dómafor­dæmi í lýð­ræð­is­ríkjum bera vott um.

Önnur stað­reynd er að dreif­ing skjá­skot­anna átti sér stað í svoköll­uðum tál­beitu­hópi á Telegram. Þar átti sér stað ógn­andi umræða um Sæþór og fjöl­skyldu hans. Það sem flækir málið er að tál­beitu­hópar, sem upp­haf­lega sner­ust um að afhjúpa meinta barn­a­níð­inga með því að lokka þá í gildrur, færðu sig yfir í hreina fjár­kúgun undir for­ystu fag­manna á sviði afbrota. Þessi við­snún­ingur virð­ist hafa tengst mann­dráps­máli manns frá Þor­láks­höfn í mars.

Þá virð­ast hafa verið birtir listar yfir alls kyns aðila í tál­beitu­hóp­unum, sem sumir hverjir eru ekki grun­aðir um nein brot. Aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn í kyn­ferð­is­brota­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi við Mannlíf í mars að dæmi væru um að menn væru hafðir fyrir rangri sök í tál­beitu­hóp­unum.

Það er ómögu­legt að full­yrða hvort Sæþór er fórn­ar­lamb eða sekur um ósæmi­leg sam­skipti við ung­ling, eða bæði, en eitt er þó sann­an­legt og það er að skjá­skotin fóru í dreif­ingu löngu áður en hann varð leið­togi Sós­í­alista, enda hafði Mannlíf þau undir höndum, og hitt að ann­ar­legir fjár­hags­legir hvatar voru að baki dreif­ingu slíkra skjá­skota. Eins og oft í erf­iðum málum í póli­tík mun nú mest reyna á hvort Sæþór segi satt og rétt frá í umræð­unni um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Slúður