Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

For­eldrar neydd­ust til að kæra kennar­ann til lög­reglu.

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara
Breiða­gerð­is­skóli Drengirnir kvört­uðu ítrekað yfir kenn­ar­anum. Mynd: reykjavik.is

Tólf ára drengur var ítrekað úti­lok­aður frá kennslu­stundum í Breiða­gerð­is­skóla eftir að hann kvart­aði yfir hegðun kenn­ara. Í stað þess að rann­saka kvörtun­ina var hann lát­inn dvelja á bóka­safni skól­ans og hafði ekki aðgang að kennslu í rúma tvo mán­uði.

Atvikið átti sér upp­haf þegar dreng­ur­inn og vinur hans ákváðu að skrifa skóla­stjór­anum bréf þar sem þeir lýstu óþægi­legri snert­ingu og fram­komu kenn­ar­ans. Fljót­lega eftir að bréfið var afhent voru báðir drengirnir fjar­lægðir úr tímum hjá umræddum kenn­ara. Eftir að annar dreng­ur­inn baðst afsök­unar fékk hann að snúa aftur í kennslu, en hinn þurfti að bíða vikum saman án þess að ásak­an­irnar væru rann­sak­aðar.

For­eldrar drengs­ins leit­uðu hjálpar hjá stjórn­endum, skóla- og frí­stunda­sviði og Land­steym­inu, án árang­urs. Að lokum kærðu þau málið til lög­reglu þar sem langvar­andi úti­lokun hafði veru­leg áhrif á líðan barns­ins.

„Ég vil bara að þetta hætti“

Í sam­tali við Heim­ild­ina síðla vors sagði dreng­ur­inn: „Ég vil bara að þetta hætti.“ Þá var hann að ljúka 7. bekk og þar með skóla­göngu sinni í Breiða­gerð­is­skóla. Hann hafði fylgt við­miðum borg­ar­innar um að til­kynna ofbeldi eða ein­elti til skóla­stjórn­enda, en í stað þess að fá vernd var honum vísað úr kennslu.

Þrátt fyrir að mennta­mála­ráðu­neytið hafi síðar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skól­inn hafi brugð­ist, var áfram nei­kvætt við­mót gagn­vart drengnum þegar hann sneri aftur í tím­ana. Honum var jafn­vel vísað úr kennslu­stundum án útskýr­inga.

Í síð­ustu viku fékk hann þó loks opin­bera afsök­un­ar­beiðni á fundi með skóla- og frí­stunda­sviði, ásamt vini hans sem einnig hafði lýst yfir óánægju með kennar­ann.

Ákveðnir í að segja frá

Kvart­anir vegna sama kenn­ara höfðu borist áður, þegar drengirnir voru í 6. bekk. Þá var und­ir­skriftum barna safnað sem lýstu því að kenn­ar­inn „haldi strákum og kitli þá“, en aðstoð­ar­skóla­stjóri stöðv­aði söfn­un­ina fljót­lega.

„Hann var að meiða okkur,“ segir annar drengur sem einnig gaf sig fram við Heim­ild­ina. Hann lýsir því hvernig kenn­ar­inn hafi „tekið þá upp og kitlað“ og „sett hnú­ana í rif­beinin“. Dreng­ur­inn leit­aði að lokum sjálfur til skóla­stjór­ans eftir eitt atvikið. „Ég var búinn að fá nóg og lang­aði að segja frá. Ég var í tíma og missti blý­ant á gólfið og var að taka hann upp. Þá greip hann um axl­irnar á mér, tók mig upp og hélt mér í góðar 10 sek­úndur. Þá meiddi ég mig mjög mikið. Ég gat ekki andað.“

Segist hann hafa ásamt tveimur öðrum, ætlað að hitta skóla­stjór­ann vegna máls­ins en hann ekki verið við. Skildu þeir þá eftir skila­boð á miða til hans um málið en fengu ekki að hitta hann fyrr en eftir ítrek­aðar beiðnir. Þá sagð­ist skóla­stjór­inn ætla að tala við kennar­ann.

Bréfið sem olli viðbrögðum

Þann 27. sept­em­ber fór annar drengur ásamt vini sínum að skrif­stofu skóla­stjóra, þar sem þeir skil­uðu inn bréfi með kvört­unum yfir því að kenn­ar­inn væri enn að snerta nem­endur án leyfis. Þeir minntu einnig á að ef þetta héldi áfram myndu þeir snúa sér til barna­verndar, sem þeir sögðu vera svar við hótun kenn­ar­ans um að til­kynna annan þeirra til barna­verndar.

Að morgni næsta mánu­dags fengu for­eldrar drengj­anna sím­tal frá skól­anum og voru boð­aðir á fund. Þar lýsti skóla­stjór­inn áhyggjum yfir því að strák­arnir hefðu „hótað að fara með málið til barna­verndar“. Móðir ann­ars drengs­ins lýsir því að skóla­stjór­inn hafi ein­blínt á afleið­ingar fyrir kennar­ann fremur en að hlusta á ásak­anir barn­anna.

„Er hann ekki hættur þessu?“

For­eldrar héldu áfram að reyna að fá skól­ann til að bregð­ast við. Á öðrum fundi lýsti dreng­ur­inn því hvernig kenn­ar­inn hafi meitt sig með því að þrýsta hnú­unum í rif­beinin. Skóla­stjór­inn svar­aði: „Er hann ekki hættur þessu?“, og vís­aði í fyrra sam­tal við kennar­ann. For­eldrar drengs­ins tóku þá fram að ekki væri nóg að biðja kennar­ann að hætta, það þyrfti að bregð­ast form­lega við.

Móðir hans bætir við: „Skóla­stjór­inn sagði þá að þetta gæti verið óvart, en syni okkar fannst erfitt að skilja hvernig það gæti verið. Fyrir utan að kenn­ari þarf ekki að snerta nem­anda.“

Kenn­ar­inn sem um ræðir vildi ekki tjá sig við Heim­ild­ina.

Skólastjóri gagnrýnir umfjöllun

Skóla­stjór­inn lýsti yfir efa­semdum um rétt­mæti þess að fjallað yrði um málið opin­ber­lega og sagði að fjöl­mið­ill­inn hefði ekki allar upp­lýs­ingar sem þurfi til að lýsa mál­inu rétt. Hann tók þó fram að skóla­stjórn­endur bregð­ist við kvört­unum og leiti lausna með aðkomu for­eldra. Hann sagði að í „lang­flestum til­vikum þar sem fólk er til­búið til sam­starfs er í sam­ein­ingu hægt að kom­ast að nið­ur­stöðu og sam­eig­in­legum skiln­ingi. Þegar ég segi í lang­flestum þá á það ekki við í öllum til­vikum.“

Hægt er að lesa mun ýtar­legri umfjöllun í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi