Í dagbók lögreglu frá því í gær og nótt er greint frá því að lögregla hafi haft afskipti af ökumanni sem var undir áhrifum fíkniefna, áfengis og lyfja.
Þá var maður vistaður í fangageymslu eftir ítrekuð afskipti. Hann var ölvaður og til ama að sögn lögreglu.
Maður var vistaður í fangageymslu eftir að hafa brotið rúðu í lögreglubifreið. Afskipti voru höfð af honum þar sem hann ætlaði ekki að greiða fyrir leigubíl en sá reikningur var upp á nokkra tugi þúsunda.
Tveir voru vistaðir vegna rannsóknar á líkamsárás og þá var tilkynnt um hóp drengja sem veittust að eldri manni. Einn þeirra var færður á lögreglustöð og kom barnavernd að málinu.





















Athugasemdir