Í tilkynningu frá yfirvöldum er greint frá því að á þjóðhátíðardaginn 17. júní fari fram hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík eins og venja er. Að henni lokinni hefst hátíðardagskrá á Austurvelli.
Athöfnin verður með breyttu sniði í ár eftir það samkvæmt stjórnvöldum þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra. Að auki verður tilhögun nú með þeim hætti að athöfnin verður sýnilegri almenningi en áður.
„Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð,“ segir í tilkynningunni





















Athugasemdir