Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð2+ og Stöð 2 Sport undir merki Sýnar en greint er frá þessu í tilkynningu frá fyrirtækinu. Um sögulega breytingu er að ræða en nafn Stöðvar 2 hefur verið notað frá 1986.
Sýn segir að þessi samruni sé mikilvægur þáttur í því að einfalda ásýnd og vöruframboð Sýnar í anda þeirrar stefnumörkunar sem félagið kynnti á mörkuðum í lok síðasta árs.
Mannlíf greindi frá þessum breytingum í febrúar en gengi fyrirtækisins á hlutabréfamarkaði hefur fallið mikið á undanförnum 18 mánuðum. Þá hafa hafa tugir starfsmanna hætt eða þeim verið sagt upp á sama tímabili.
Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 halda sínum nöfnum óbreyttum eins og fréttamiðillinn Vísir. Vörumerki þeirra verða þó aðlöguð að vörumerkjastefnu Sýnar samkvæmt tilkynningunni.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir