Tomasz Chrapek er nýr formaður innflytjendaráðs. Tomasz fæddist í Częstochowa í Póllandi árið 1981 og hefur búið í Reykjavík frá árinu 2007. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, skipar innflytjendaráð.
Tomasz Chrapek er með meistaragráðu í tölvunarverkfræði frá Tækniháskólanum í Częstochowa og meistaragráðu í félagsfræði frá Jan Długosz-akademíunni. Tomasz hefur brennandi áhuga á samfélagsmálum og var meðstofnandi bæði ProjektPolska.is og Pólska ljósmyndafélagsins á Íslandi (Pozytywni.is). Hann sat í Íþrótta- og Tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR) frá 2014 til 2018 og var formaður Fjölmenningarráðs Reykjavíkur frá 2015 til 2018.
Aðalfulltrúar í innflytjendaráði eru:
- Tomasz Paweł Chrapek formaður, án tilnefningar
- Hanna Guðmundsdóttir varaformaður, án tilnefningar
- Arnar Sigurður Hauksson, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti
- Pétur Örn Pálmarsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti
- Donata Honkowicz Bukowska, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
- Helena N. Wolimbwa, tilnefnd af Reykjavíkurborg
- María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga































Athugasemdir