Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reynir að stöðva varasamt fiskeldi í Eyjafirði

„Lífríki fjarð­ar­ins er í húfi,” segir Harpa Bark­ar­dóttir.

Reynir að stöðva varasamt fiskeldi í Eyjafirði
Eyja­fjörður Haf­rann­sókn­ar­stofnun varar við sjó­kvía­eldi í firð­inum. Mynd: Upplifðu Norðurland - Opinber ferðavefur um Norðurland.

Harpa Bark­ar­dóttir, sem situr í stjórn SUNN – Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, segir að stöðva verði áætl­anir um sjó­kvía­eldi í Eyja­firði.

Eyja­fjörður sker sig inn í mitt Norð­ur­landið og er einn af lengstu fjörðum Íslands. Eyja­fjörður er langur og mjór, alls um 60 kíló­metra frá mynni að botni og mesta breidd hans er 25 kíló­metrar á milli Siglu­ness og Gjög­urtáar í mynni fjarð­ar­ins. Yfir­leitt er fjörð­ur­inn á bil­inu 6 til 10 kíló­metra breiður og tveir minni firðir ganga út úr Eyja­firði vestan megin, Ólafs­fjörður og Héð­ins­fjörður.

Hörpu er umhugað um nátt­úru­vernd og rit­aði hún grein um áformin. Þar kemur fram að Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN, biðli til stjórn­valda að gera Eyja­fjörð að frið­un­ar­svæði fyrir sjó­kvía­eldi.

„Það eru blikur á lofti” segir Harpa og bætir því við að í far­vatn­inu séu áform Kleifa ehf. á Ólafs­firði um stór­fellt lax­eldi í Eyja­firði og á Trölla­skaga:

„Á ráð­stefnu Hring­borðs hafs og eldis og Arion banka í byrjun júní á þessu ári lét atvinnu­vega­ráð­herra, Hanna Katrín Frið­riks­son, í veðri vaka að Haf­rann­sókn­ar­stofnun skyldi hefja vinnu við burð­ar­þols­mat fyrir fisk­eldi í sjó­kvíum í Eyja­firði. Fyrir 5 árum var í burð­ar­liðnum ámóta verk­efni, 20.000 tonna fram­leiðsla á laxi í sjó­kvíum í Eyja­firði.”

Harpa ljær máls á því að á þeim tíma hafi bæj­ar­stjórn Akur­eyrar sam­þykkt að leggja til við þáver­andi ráð­herra atvinnu­vega og nýsköp­unar, Kristján Þór Júl­í­us­son, að Eyja­fjörður yrði frið­aður fyrir fisk­eldi í sjó­kvíum:

„Fleiri sveit­ar­fé­lög við fjörð­inn tóku í sama streng, afstaðan var nokkuð afdrátt­ar­laus. Í kjöl­farið óskaði ráð­herra eftir umsögn Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um hvort stofn­unin teldi að tak­marka skyldi eða banna fisk­eldi eða ákveðnar eld­is­að­ferðir í Eyja­firði. Skemst er frá því að segja að í svari stofn­un­ar­innar við erindi ráðu­neytis stendur meðal ann­ars: „Haf­rann­sókn­ar­stofnun telur tifefni til þess að banna fisk­eldi í sjó­kvíum í Eyja­firði. Ástæður þess eru staða villtra stofna lax­fiska, þá sér­stak­lega bleikju og hugs­an­leg nei­kvæð áhrif á líf­ríki fjarð­ar­ins.” Við hljótum að geta gengið út frá því að þessi afdrátt­ar­lausa nið­ur­staða Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar standi nú fimm árum síðar.”

Harpa færir í tal að í nýlegu lög­fræði­á­liti um stöðu sveit­ar­fé­laga með til­liti til burð­ar­þols­mats vegna fisk­eldis segir að lög­gjaf­inn hafi ekki tryggt sveit­ar­fé­lögum næga aðkomu að fram­kvæmd laga um fisk­eldi.

„Frum­skylda sveit­ar­fé­laga er að gæta hags­muna íbúa sinna og starf­ræksla sjó­kvía­eldis af þeirri stærð­argráðu sem um ræðir hefur mikil áhrif á hags­muni íbúa alls staðar í Eyja­firði, í dag og um ókomna tíð. Lífríki fjarð­ar­ins er í húfi.”

Hún segir einnig að „virkasta úrræði sveit­ar­fé­laga er að hafa áhrif á umræð­una áður en ráð­herra tekur ákvörðun um burð­ar­þols­mat. Tíminn er núna. Þótt ráð­herra sé ekki skylt að leita álits sveit­ar­fé­laga lögum sam­kvæmt skulum við treysta því að hann gangi mál­efna­lega til borðs og leiti eftir og taki til­lit til þess sem hlut­að­eig­andi sveit­ar­fé­lög og íbúar þeirra hafa um málið að segja.”

Harpa er á því að til þess að fisk­eldi eigi blóm­lega fram­tíð þurfi að vanda það hvernig áfram­hald­andi upp­bygg­ing muni eiga sér stað.

„Það er hægt að skapa sátt milli öfl­ugrar mat­væla­fram­leiðslu og vernd­unar á dýr­mætum vist­kerfum. Sú sátt næst með nútíma­legum lausnum, en ekki með tug­þús­unda tonna fram­leiðslu í opnum sjó­kvíum í Eyja­firði. Lær­dóm­ur­inn af átök­unum á Seyð­is­firði þarf að vera okkur víti til varn­aðar. Þar hafa íbúar mátt horfa upp á að áform um sjó­kvía­eldi eru keyrð áfram þvert á yfir­lýstan vilja mik­ils meiri­hluta íbúa.

Hún segir að lokum að „kerfið virð­ist hafa tekið völdin. Hver stofn­unin bendir á aðra og ábyrgðin týn­ist á milli stjórn­sýslu­stiga á meðan vilji heima­manna er virtur að vettugi. Slíka atburða­rás verðum við að stöðva í fæð­ingu hér í Eyja­firði. Tökum höndum saman, stöndum vörð um fjörð­inn okkar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil