Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjórar úthlutunarstöðvar fyrir tvær milljónir manna

Ísra­els­her hefur á síð­ustu vikum drepið fleiri en 400 manns sem voru að sækja neyð­ar­að­stoð á Gaza

Fjórar úthlutunarstöðvar fyrir tvær milljónir manna
Hryll­ing­ur­inn á Gaza heldur áfram Engin lausn virð­ist vera í sjón­máli og ekk­ert virð­ist geta stöðvað þjóð­ar­morðið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þjóð­ar­morðið á Gaza heldur áfram og nú er komið á dag­inn að meira en 400 manns hafa verið drepin við það að sækja sér og fjöl­skyldum sínum neyð­ar­að­stoð.

Ísra­els­her er að leggja aukna áherslu á árásir á Gaza eftir að vopna­hlé náð­ist við Íran fyrir skemmstu.

Í gær drap Ísra­els­her hátt í átta­tíu manns á Gaza. Síðustu vikur hafa fleiri en 400 fallið í val­inn - verið skotin til bana við úthlut­un­ar­stöðvar hjálp­ar­gagna.

Æðstu menn í Ísra­els­her segj­ast nú leggja aukna áherslu á árásir á Gaza eftir að vopna­hlé náð­ist við Íran.

Nú er svo komið að á hverjum ein­asta degi þurfa íbúar Gaza að velja á milli hung­ursneyðar og því að hætta lífi sínu við það eitt að sækja sér mat.

Thameen Al-Kheetan, sem er tals­maður Sam­hæf­ing­ar­mið­stöðvar Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA), segir að „Ísrael verður að hætta að skjóta fólk sem er að sækja sér mat“ en sam­kvæmt OCHA hefur her­inn í Ísrael drepið í það minnsta 410 manns frá því að banda­rísku sam­tökin GHF tóku við dreif­ingu hjálp­ar­gagna, en sú beiðni kom frá ísra­elskum stjórn­völdum í lok maí.

Þetta fyr­ir­komu­lag er alger hryll­ingur fyrir fólkið á Gaza og Sam­ein­uðu þjóð­irnar gagn­rýna fyr­ir­komu­lagið mjög harð­lega, segja það hrein­lega fárán­legt, and­styggi­legt og að það minni á hung­ur­leik­ana.

Þarna þarf fólk að koma sér sjálft á úthlut­un­ar­stöðvar, langoft­ast fót­gang­andi, afar langa leið fram og til baka, því það eru ein­ungis fjórar úthlut­un­ar­stöðvar fyrir tvær millj­ónir manna.

„Við getum ekki ætl­ast til að almennir borg­arar fari inn á víg­völl­inn til að rétt­læta að drepa þá þar. Við verðum vitni að slíku æ ofan í æ,“ segir Thameen Al-Kheetan.

Ísraelsk stjórn­völd skil­greina meira en 80 pró­sent af öllu svæði á Gaza sem hættu- eða átaka­svæði. Þau skipa íbúum Gaza að fara þaðan og það sem fyrst eins og orð for­sæt­is­ráð­herra Ísraels end­ur­spegla:

„Við eyði­leggjum sífellt fleiri heim­ili – þau hafa ekk­ert að hverfa að. Þá verður sjálf­gefið að íbú­arnir vilji flytja frá Gaza,“ sagði Benjamín Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra Ísraels í maí á lok­uðum fundi.

Ljóst er núna að mark­miðið hjá stjórn­völdum í Ísrael er núna að safna íbúm Gaza saman á einum þremur svæðum og eru þau við Gaza-borg, í flótta­manna­búðum um mitt Gaza sem og Al-Mawasi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta