Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ófullnægjandi viðbrögð af hálfu HÍ“

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent rektor erindi og fer fram á skól­inn upp­fylli ákvæði sam­keppn­islaga og til­mæli stjórn­valda með því að rekstur End­ur­mennt­unar HÍ verði bók­halds- og stjórn­un­ar­lega aðskil­inn öðrum rekstri skól­ans

„Ófullnægjandi viðbrögð af hálfu HÍ“
Félag atvinnu­rek­anda Vill skýr svör frá rektor H.Í. Mynd: FA

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent rektor Háskóla Íslands, Silju Báru Ómars­dóttur, erindi og farið fram á að rektor sjái til þess að HÍ upp­fylli ákvæði sam­keppn­islaga og til­mæli stjórn­valda með því að rekstur End­ur­mennt­unar HÍ verði bók­halds- og stjórn­un­ar­lega aðskil­inn öðrum rekstri skól­ans.

Segir að End­ur­menntun ástundi harða sam­keppni við einka­rekin fyr­ir­tæki á sviði endur- og símennt­unar, og að í erindi FA komi fram að vegna skorts á fjár­hags­legum aðskiln­aði hafi einka­reknir keppi­nautar End­ur­mennt­unar enga sönnun þess að rekst­ur­inn sé ekki í raun nið­ur­greiddur með fjár­fram­lögum skatt­greið­enda til HÍ.

Í erindi FA er vitnað til 14. greinar sam­keppn­islaga, sem „kveður á um að Sam­keppn­is­eft­ir­litið (SE) geti mælt“ fyrir um að sam­keppn­is­rekstur opin­berra stofn­ana sé aðgreindur frá öðrum rekstri. Hann sé ekki nið­ur­greiddur af starf­semi sem njóti einka­leyfis eða verndar og jafn­framt er vitnað til bréfs SE til þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis árið 2021, en eft­ir­litið mælt­ist þá til þess við ráðu­neytið að það færi þess á leit við opin­beru háskól­ana að þeir birtu opin­ber­lega upp­lýs­ingar um hvernig fjár­hags­legum aðskiln­aði er háttað á milli - ann­ars vegar þess rekstrar sem rek­inn er að hluta til eða öllu leyti af opin­beru fé - og hins vegar þeirrar starf­semi sem er í frjálsri sam­keppni við aðra aðila, sbr. áður­nefnda 14. grein sam­keppn­islaga:

„Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er eðli­legt að fagráðu­neyti mála­flokks­ins geri kröfu um þetta í sam­hengi við fjár­veit­ingar til við­kom­andi skóla,“ segir í erindi SE og þar er því jafn­framt lýst að einu við­brögð HÍ hafi verið þau - eftir ára­langan eft­ir­rekstur FA - að birta eft­ir­far­andi klausu á vef háskól­ans:

„Rekstur End­ur­mennt­unar HÍ byggir ein­göngu á eigin tekjum, þ.e. nám­skeiðs­gjöldum. End­ur­menntun HÍ nýtur engra opin­berra fjár­fram­laga.“

„Að mati FA eru þetta alls­endis ófull­nægj­andi við­brögð af hálfu HÍ,“ segir í erindi FA og enn­fremur að „End­ur­menntun er rekin á sömu kenni­tölu og HÍ, engin grein er gerð fyrir rekstri hennar sér­stak­lega í árs­reikn­ingi HÍ og ekk­ert sér­stakt rekstr­ar­yf­ir­lit er birt. Þegar sagt er að End­ur­menntun njóti engra opin­berra fjár­veit­inga vantar alveg að gerð sé grein fyrir því í rekstr­ar­yf­ir­liti, sem er aðgengi­legt fyrir keppi­nauta End­ur­mennt­unar, hvernig t.d. aðgangur hennar að hús­næði, yfir­stjórn, mark­aðs­setn­ingu og vöru­merki Háskóla Íslands er verð­lagður. Einka­rekin fræðslu­fyr­ir­tæki, sem End­ur­menntun keppir grimmt við, hafa þannig enga sönnun þess að rekst­ur­inn sé ekki í raun nið­ur­greiddur með fjár­fram­lögum skatt­greið­enda til HÍ.“

Þá segir einnig að umfang sam­keppn­is­rekstrar sé langt umfram við­mið stjórn­valda og vill FA vekja athygli rekt­ors á stefnu og leið­bein­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­ins um fjár­hags- og stjórn­un­ar­legan aðskilnað sam­keppn­is­rekstrar opin­berra aðila.

Í stefn­unni, er gefin var út árið 1997, segir:

„Ef tekjur stofn­unar af sam­keppn­is­rekstri eru hærri en 50 m.kr. eða mark­aðs­hlut­deild hans er meiri en 15% af skil­greindum mark­aði, skal eiga sér stað fjár­hags­legur og stjórn­un­ar­legur aðskiln­aður milli sam­keppn­is­rekstr­ar­ins og ann­arrar starf­semi stofn­un­ar­innar.“

Sé 50 millj­óna króna talan fram­reiknuð til dags­ins í dag eru það um 180 millj­ónir króna.

Í árs­reikn­ingi HÍ árið 2013 var sagt frá því í skýr­ingum að tekjur HÍ af end­ur­menntun það ár hefðu numið 470 millj­ónum, en engar slíkar upp­lýs­ingar hefðu verið birtar und­an­farin ár. þannig að ekki liggur því fyrir hvert umfang rekstr­ar­ins sé og „FA dregur þó í efa að tekj­urnar hafi dreg­ist saman og að grein­ar­góðar og sann­reyn­an­legar upp­lýs­ingar muni verða birtar.

Rifjað er upp að engin svör bár­ust frá rektor eða öðrum fram­bjóð­endum til rekt­ors­emb­ætt­is­ins þegar fram­kvæmda­stjóri FA skrif­aði þeim tvö opin bréf í febr­úar og mars síð­ast­liðnum, er rekt­ors­kjör stóð yfir, og óskaði eftir skýrri afstöðu þeirra til sam­keppn­is­hátta HÍ:

„FA leyfir sér engu að síður að trúa því ekki að óreyndu að rektor vilji hunza sam­keppn­is­lög­gjöf­ina, til­mæli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og stefnu og leið­bein­ingar stjórn­valda um fjár­hags­legan og stjórn­un­ar­legan aðskilnað sam­keppn­is­rekstrar frá öðrum rekstri,“ segir í erind­inu. Því fer „FA þess ein­dregið á leit við rektor að hún beiti sér fyrir því að grein­ar­góðar og sann­reyn­an­legar upp­lýs­ingar um rekstrar- og stjórn­un­ar­legan aðskilnað End­ur­mennt­unar HÍ frá annarri starf­semi skól­ans verði birtar opin­ber­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi