Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Systir Michael Madsen opnar sig um skyndilegt andlát hans

„Hann var þrumur og flauel. Ólík­inda­tól vafið inn í mildi.“

Systir Michael Madsen opnar sig um skyndilegt andlát hans
Michael Madsen Madsen lést á dög­unum úr hjarta­á­falli. Mynd: JEROD HARRIS/Getty Images via AFP

Fjöl­skylda leik­ar­ans Michael Madsen syrgir eftir að hann fannst lát­inn á heim­ili sínu í Malibu þann 3. júlí, aðeins 67 ára gam­all.

Systir hans, leik­konan Virginia Madsen, birti til­finn­inga­þrungna kveðju til bróður síns sama dag í yfir­lýs­ingu til Variety:

„Bróðir minn Michael hefur yfir­gefið sviðið,“ skrif­aði hún. „Hann var þrumur og flauel. Ólík­inda­tól vafið inn í mildi. Ljóð­skáld í dul­ar­gervi útlaga. Faðir, sonur, bróðir, mót­sagna­kenndur í eðli sínu, en fullur af ást sem skildi eftir sig spor.“

Virginia, sem er þekkt fyrir hlut­verk sitt í Candyman, lagði áherslu á að Michael, sem lætur eftir sig sjö börn, hafi verið miklu meira en bara kvik­mynda­stjarna.

„Við erum ekki að syrgja opin­bera per­sónu,“ sagði hún áfram. „Við syrgjum ekki goð­sögn, heldur hold og blóð og óstöðv­andi hjarta. Hann storm­aði í gegnum lífið, hávær, skær og hálf­part­inn í ljósum logum. Hann skilur eftir sig berg­mál, hrjúft, snjallt og óend­ur­tak­an­legt, hálf goð­sögn, hálf vöggu­vísa.“

Þrátt fyrir að Michael Madsen hafi orðið þekktur fyrir hlut­verk sín í kvik­myndum Quentin Tar­antino, eins og Res­er­voir Dogs og Kill Bill: Vol. 2, segir Virginia að hún muni alltaf muna hann sem spaug­sama stóra bróð­ur­inn úr æsku.

„Ég mun sakna einka­brandar­anna okkar, skyndi­legs hlát­urs­ins, hljóð­anna í honum,“ skrif­aði hún að lokum. „Ég sakna drengs­ins sem hann var áður en hann varð goð­sögn. Ég sakna stóra bróður míns. Þökkum öllum sem hafa sent ást og minn­ingar. Með tím­anum munum við deila upp­lýs­ingum um hvernig við ætlum að minn­ast lífs hans, en í bili höldum við hvort öðru nær og leyfum þögn­inni að segja það sem orðin ná ekki.“

Yfir­lýs­ing Virginiu kom aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að umboðs­maður Madsens, Ron Smith, stað­festi and­lát hans við NBC News.

„Á síð­ustu tveimur árum vann Michael Madsen að ótrú­legum sjálf­stæðum kvik­mynda­verk­efnum, þar á meðal Resurrection Road, Concessions og Cookbook for Southern Housewives, og hann hlakk­aði mikið til næsta kafla í lífi sínu,“ sagði í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá umboðs­mönnum hans, Susan Ferris og Ron Smith, ásamt fjöl­miðla­full­trú­anum Liz Rodriguez.

Þar kom einnig fram að Madsen var að und­ir­búa útgáfu nýrrar ljóða­bókar, Tears For My Father: Outlaw Thoughts and Poems, sem nú er verið að fara yfir af rit­stjórn.

Lög­reglan var boðað á heim­ili Madsens í Malibu eftir að neyð­ar­línusím­tal barst að morgni 3. júlí. Hann var úrskurð­aður lát­inn á staðnum og Smith hefur stað­fest að dán­ar­or­sökin hafi verið hjarta­stopp.

„Michael Madsen var einn af eft­ir­minni­leg­ustu leik­urum Hollywood,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni. „Hans mun verða sárt saknað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta