Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísraelar kynna lokalausn fyrir Gaza-búa

„Glæpur gegn mann­kyn­inu“, segir ísra­elskur mann­rétt­inda­lög­maður

Ísraelar kynna lokalausn fyrir Gaza-búa
Net­anyahu og Katz Ísraelar ætla sér að reka Gaza-búa af landi sínu. Mynd: Menahem KAHANA / AFP

Varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels, Israel Katz, hefur kynnt áætlun um að flytja alla Palest­ínu­menn á Gaza inn í fanga­búðir á rústum borg­ar­innar Rafah, áætlun sem fræði­menn og lög­fræð­ingar hafa lýst sem grund­vall­a­r­á­ætlun um glæpi gegn mann­kyni.

Samkvæmt frétt Haaretz hefur Katz fyr­ir­skipað ísra­elska hernum að und­ir­búa stofnun svo­nefndrar „mann­úð­ar­borgar“ á rústum Rafah. Þar á að koma fyrir Palest­ínu­mönnum eftir að þeir hafa geng­ist undir „örygg­is­skimun“, og verður þeim bannað að yfir­gefa svæðið.

Ísra­elskar her­sveitir munu stjórna ytri mörkum fanga­búð­anna. Í fyrstu á að „flytja“ um 600.000 Palest­ínu­menn þangað, aðal­lega fólk sem nú þegar er á ver­gangi á svæð­inu al-Mawasi. Að end­ingu á öllum íbúum Gasa að vera komið fyrir þar, og Ísrael hyggst þá hrinda í fram­kvæmd því sem Katz kall­aði „flutn­ings­á­ætl­un­ina“, sem „mun verða að veru­leika“, að sögn Haaretz.

Þessi yfir­lýs­ing kemur í kjöl­far þess að Donald Trump hvatti í árs­byrjun til að „hreinsa“ Gaza-svæðið með því að láta stóran hluta Palest­ínu­manna yfir­gefa svæðið. Ísra­elskir ráð­herrar, þar á meðal for­sæt­is­ráð­herr­ann Benjamin Net­anyahu, hafa síðar tekið undir hug­mynd­ina og talað um hana sem „banda­rískt verk­efni“.

„Glæpur gegn mann­kyni“

Michael Sfard, einn virt­asti mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur Ísraels, segir að áætlun Katz brjóti alþjóða­lög. Hún stang­ist einnig beint á við yfir­lýs­ingu sem kom frá skrif­stofu hers­höfð­ingja Ísraels sama dag, þar sem full­yrt var að fólk væri aðeins flutt innan Gaza til eigin verndar.

„Katz lagði fram fram­kvæmda­á­ætlun fyrir glæp gegn mann­kyni. Þetta er ekk­ert minna en það,“ sagði Sfard. „Hér er verið að und­ir­búa fólks­flutn­inga suður á enda Gaza, með það að mark­miði að koma fólki end­an­lega út af svæð­inu.“

Hann bætti við að þó yfir­völd köllu þetta „sjálf­vilj­uga brott­flutn­inga“, þá séu Palest­ínu­menn í Gasa beittir því­líkum þving­unum að það sé rangt að tala um frjálsa ákvörðun.

„Að reka fólk úr heima­landi sínu í stríði er stríðs­glæpur. Ef það er gert í miklu mæli eins og hér er lagt upp með, verður það að glæp gegn mann­kyni.“

Leita að ríkjum til að „taka við“ Palest­ínu­mönnum.

Áætlun Katz var kynnt stuttu áður en Net­anyahu kom til Washington til fundar við Donald Trump, þar sem hann stendur frammi fyrir þrýst­ingi um að sam­þykkja vopna­hlé eftir 21 mán­aða stríð.

Varn­ar­mála­ráð­herr­ann sagði að vinna við svo­kall­aða „mann­úð­ar­borg“ gæti haf­ist á meðan vopna­hlé væri í gildi. Net­anyahu bætti við að Ísrael leit­aði að ríkjum sem væru til­búin að „taka við“ Palest­ínu­mönnum.

Í gær sagði Net­anyahu í Hvíta hús­inu að Banda­ríkin og Ísrael ynnu með öðrum ríkjum að því að skapa „betri fram­tíð“ fyrir Palest­ínu­menn:

„Ef fólk vill vera áfram, þá getur það það. En ef það vill fara, þá á það að geta farið,“ sagði hann, rétt áður en hann borð­aði kvöld­verð með Trump.

Ráð­herrar í Ísrael, eins og fjár­mála­ráð­herr­ann Bezalel Smotrich, hafa einnig talað fyrir nýlendu­svæðum Ísraels á Gaza.

Samkvæmt frétt Reuters hafði áætlun um bygg­ingu svo­kall­aðra „mann­úð­legra flutn­inga­svæða“, bæði innan og utan Gaza, verið kynnt fyrir rík­is­stjórn Trump og rædd í Hvíta hús­inu. Áætlaður kostn­aður væri 2 millj­arðar doll­ara, undir merkjum sam­tak­anna Gaza Human­it­arian Foundation (GHF). GHF neitar þó að hafa lagt fram slíka áætlun og sagði að glærur sem Reuters hafði undir höndum væru ekki skjöl frá þeim.

„Ekki borg, heldur úti­legur fyrir fólk á ver­gangi“

Lög­mað­ur­inn Sfard hefur áður tekið að sér að verja þrjá vara­liða sem kærðu fyr­ir­skip­anir hers­ins um að „safna saman“ og „flytja“ alla borg­ara Gaza, og krefj­ast þess að slík fyr­ir­mæli verði felld úr gildi. Í svar­bréfi við kærunni sagði her­for­ingja­stjórnin að það væri ekki mark­mið að flytja Palest­ínu­menn úr Gaza né að þröngva þeim saman á eitt svæði.

Þessi full­yrð­ing stang­ast beint á við orð Katz, segir sagn­fræð­ing­ur­inn Amos Goldberg, sér­fræð­ingur í hel­för­inni við Hebreska háskól­ann í Jer­úsalem.

„Varn­ar­mála­ráð­herr­ann lagði fram skýra áætlun um þjóð­ar­hreinsun á Gaza, og stofnun ein­hvers konar fanga­búða eða flutn­inga­búða fyrir Palest­ínu­menn áður en þeim verður vísað úr landi.“

„Þetta er hvorki mann­úð­legt né borg,“ bætti hann við.

„Borg er staður þar sem fólk getur unnið, aflað sér tekna, myndað tengsl og notið frelsis. Þar eru sjúkra­hús, skólar, háskólar og skrif­stofur. Það er ekki það sem Ísraelar hyggj­ast byggja.“

Goldberg spurði jafn­framt hvað myndi ger­ast ef Palest­ínu­menn neita að hlýða fyr­ir­skip­unum um að flytja inn í nýju búð­irnar:

„Hvað ger­ist ef Palest­ínu­menn hafna þess­ari „lausn“ og rísa upp? Því þeir eru ekki full­kom­lega hjálp­ar­lausir.“

The Guardian fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife