Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjössi í World Class segist eiga bílastæðin

Björn Leifsson og með­eig­endur hans að lík­ams­rækt­ar­stöðvum World Class krefj­ast þess að Reykja­vík­ur­borg borgi þeim fyrir að nýta bíla­stæðin við Laug­ar­dals­völl fyrir skóla­þorp.

Bjössi í World Class segist eiga bílastæðin
Björn Leifsson er eig­andi World Class Hagnast gríð­ar­lega á rekstri lík­ams­rækt­ar­keðj­unnar og telur sig hafa öðl­ast eign­ar­rétt á bíla­stæðum við Laug­ar­dals­völl. Mynd: Víkingur

Eigendur World Class í Laugum hafa notið þess að hafa aðgang að ókeypis bíla­stæðum í eigu Reykja­vík­ur­borgar í tvo ára­tugi. Nú segj­ast þau eiga bíla­stæðin vegna þess og vilja fá borgað fyrir að borgin noti þau í annað.

Lögmenn á vegum Björns Leifs­sonar, bróður hans og eig­in­konu, sem eiga lík­ams­rækt­ar­keðj­una World Class, hafa sent and­mæli við til­lögu Reykja­vík­ur­borgar í drögum að aðal­skipu­lagi um breytta nýt­ingu á bif­reiða­stæðum í Laug­ar­dal, við Laug­ar­dals­völl. Bíla­stæðin sem um ræðir eru í meira en 200 metra fjar­lægð frá World Class í Laugum.

Samkvæmt til­lögu borg­ar­innar verður lítil breyt­ing þó svo að hluti bíla­stæða við Laug­ar­dals­völl, sem liggur lengst frá World Class í Laugum, verði lagður undir skóla­þorp, eins og segir í til­lögu að aðal­skipu­lagi: „Svæðið er í dag að mestu leyti bíla­stæði sem þjónar þjóð­ar­leik­vang­inum og verður því lítið rask á núver­andi land­nýt­ingu.“

Þessu eru eig­endur World Class ósam­mála og telja að bíla­stæðin þjóni þeim og þeirra við­skipta­vinum.

Björn vill koma í veg fyrir að bíla­stæðin við Laug­ar­dals­völl verði notuð fyrir skóla­þorp, þar sem gestir World Class í Laugum þurfi að nota þau og það geti valdið tekju­tapi ef svo verði ekki áfram. Í kröfum lög­fræð­inga hans koma fram and­mæli við að bíla­stæðin við Laug­ar­dals­völl­inn „sem m.a. hefur verið notað undir bif­reiða­stæði gesta lík­ams­rækt­ar­stöðvar World Class, verði fram­vegis nýtt fyrir grunn­skóla“. Telur hann að World Class hafi öðl­ast „óbeinan eign­ar­rétt“ með því að hafa fengið að nota stæðin í tvo ára­tugi „ótíma­bundið og end­ur­gjalds­laust“.

Þá skiptir engu að enn verða á fjórða hund­rað stæða beint fyrir utan Laug­ar­dals­völl og til við­bótar stæði sem liggja næst stöð World Class í Laugum.

Skólaþorp þar sem er bílastæði

Í bréfi frá lög­fræð­ingi Björns og World Class kemur fram að þau séu með samn­ings­bund­inn rétt til stæð­anna.

Fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ungi - Þann 22. júlí árið 1999 - und­ir­rit­aði borgin vilja­yf­ir­lýs­ingu um stæðin og þar var því heitið að stæðin yrðu fram­vegis nýtt fyrir gesti inni­sund­laugar og heilsu­rækt­ar­stöð World Class og voru und­ir­rit­aðir samn­ingar bind­andi um stæðin milli umbjóð­anda Björns og borg­ar­innar þann 24. apríl árið 2002 og 26. nóv­em­ber 2002 sama ár.

Kemur fram í bréf­inu að í 4. grein samn­ing­anna var Birni veitt „ótíma­bundin og end­ur­gjalds­laus afnot“ af ómerktum almennum bif­reiða­stæðum við Laug­ar­dals­laug og Laug­ar­dals­völl, fyrir gesti stöðv­ar­innar, en rekstur heilsu­rækt­ar­stöðvar World Class hófst í Laug­ar­dalnum skömmu síðar, árið 2004 og allt frá þeim tíma hafa við­skipta­vinir World Class haft óheft og end­ur­gjalds­laus afnot af stæð­unum.

Einnig segir að áður­nefnd stæði hafa verið nýtt í fram­kvæmd með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í samn­ing­unum, í yfir tvo ára­tugi.

Að mati Björns og hans lög­fræð­inga mun fyr­ir­huguð breyt­ing á aðal­skipu­lagi fela í sér veru­legaa skerð­ingu á eigna­rétt­indum hans, þó bíla­stæðin séu við íþrótta­leik­vang í opin­berri eigu. „Í 72. gr. stjórn­ar­skrár segir að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenn­ings­þörf krefji, til þess þurfi laga­fyr­ir­mæli og fullt verð komi fyrir. Fyr­ir­huguð breyt­ing á aðal­skipu­lagi felur í sér veru­lega skerð­ingu á eigna­rétt­indum umbjóð­anda okkar. Þá er fyr­ir­sjá­an­legt að breyt­ingin mun valda umbjóð­anda okkar fjár­tjóni. Gestum mun fækka með fækkun bif­reiða­stæða og tekjur drag­ast saman,“ segir í lög­fræði­bréf­inu frá Laugum ehf.

Breyt­ingin á bíla­stæð­unumÁ teikn­ingu Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að bíla­stæðin við Laug­ar­dals­völl sem eru í nokk­urri fjar­lægð frá World Class verði notuð í skóla­þorp.

Segja hættulegt að minnka aðgengi að bílastæðinu

Segir í til­lögum Reykja­vík­ur­borgar að ein­göngu verði opin ein inn­keyrsla á bif­reiða­stæðið, að norð­an­verðu, en inn­keyrslu á bif­reiða­stæðið að sunn­an­verðu verði lokað.

Mótmæla lög­menn World Class einnig þessum fyr­ir­ætl­unum og til­tekið er að um sé að ræða svæði er þús­undir gesta sækja, til að mynda þegar stærri við­burðir eru á Laug­ar­dals­velli og ef margir yfir­gefa svæðið á sama tíma geti skap­ast örtröð ef ein­ungis er hægt að keyra út af því á einum stað og slíkt rýrir í senn upp­lifun gesta af því að sækja viõ­burði og getur bein­línis verið hættu­legt, til dæmis ef sjúkra­bílar eða við­bragðs­að­ilar þurfi að kom­ast til og frá svæð­inu.

Björn og með­eig­endur hans leggj­ast því ein­dregið gegn því að lokuð verði inn­keyrslu sunn­an­megin að svæð­inu.

Hagnast um 900 milljónir króna

Laugar ehf, sem reka World Class stöðv­arnar, hafa notið þess að geta boðið gestum sínum aðgang að almenn­ings­sund­laugum sam­hliða notkun á lík­ams­rækt­ar­stöðv­unum, sem eru í einka­eigu. Það á meðal ann­ars við Laug­ar­dals­laug, Lága­fells­laug í Mos­fellsbæ, og Sel­tjarn­ar­neslaug.

Á síð­asta birta rekstr­ar­ári, árið 2023, högn­uð­ust Laugar um 665 millj­ónir króna eftir skatt. Það segir ekki alla sög­una, því Laugar leigja hús­næði af félagi í sama eign­ar­haldi, sem hagn­að­ist um 235 millj­ónir króna til við­bóta. Það er ekki allt og sumt, því annað félag, í eigu Hafdísar Jóns­dóttur og Björns Leifs­sonar, hagn­að­ist um 15 millj­ónir króna í fyrra með leigu­tekjum frá World Class.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi