Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rifust á þingi And­rúms­loftið er þungt á Alþingi. Mynd: Samsett

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Skammist ykkar og biðjist afsökunar!“

Stór orð og harðar deilur á Alþingi.

Formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, Guðrún Haf­steins­dótt­ir, og Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra skipt­ust á nokkrum vel völdum orðum í þing­inu í dag.

Sagði Guðrún að lýð­ræði sner­ist fyrst og fremst um að minni­hlut­inn fái að hafa áhrif og sak­aði hún rík­is­stjórn­ina um þögg­un­ar­til­b­urði en undir það tók Kristrún svo sann­ar­lega ekki. Hún sagði hreint út að það virki ekki ein­fald­lega þannig að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir fái að ákveða hvar lín­an ligg­ur hverju sinni eða yfir­höfuð.

Þungt var yfir þing­inu og ansi hart haf­ur verið tek­ist á eft­ir að Kristrún flutti yf­ir­lýs­ingu í upp­hafi þing­fund­ar. Hún hélt því fram á fund­inum að það ástand sem upp er komið á þing­inu væri algjör­lega for­dæma­laust; að fram­ferði minni­hlut­ans ætti sér ekki nokkra hlið­stæðu í ís­lenskri stjórn­mála­sögu.

Kristrún gagn­rýndi harð­lega fram­ferði stjórn­ar­and­stöð­una., Sér­stak­lega fyr­ir mál­þóf vegna veiði­gjalda­frum­varps­ins og sagði hún stöð­una afar al­var­lega fyr­ir lýð­ræði og stjórn­skip­un Íslands: Að með fram­ferði sínu væri minni­hlut­inn ekki að viður­kenna meiri­hlutaræðið á Alþingi.

Í kjöl­far yf­ir­lýs­ing­ar­inn­ar var ljóst að leið­tog­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar eru afar ósátt­ir við að Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, sem er þing­flokks­for­maður Sjálf­stæðis­flokks og einnig fimmti vara­for­seti Alþing­is, hafi slitið þing­fundi í gær­kvöldi án sam­ráðs við for­seta þings­ins.

Hildur Sverr­is­dóttirÞing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins ákvað að slíta þing­fundi í gær­kvöldi án sam­ráðs við meiri­hlut­ann.

Guðrún sagði að lýð­ræði snú­ist ekki ein­ungis um að meiri­hlut­inn ráði:

„Lýðræði snýst líka um að minni­hlut­inn fái að tjá sig og minni­hlut­inn fái að hafa áhrif á Alþingi. Alþingi Íslend­inga bygg­ir á þeirri hugs­un, enda hafa full­trú­ar í meiri- og minni­hluta al­veg jafnt lýð­ræðis­legt umboð.“

Og hún tók und­ir með for­sæt­is­ráð­herra að for­dæma­laust ástand hafi skap­ast á Alþing­i, en það segir hún skrif­ast alfarið á rík­is­stjórn henn­ar:

„Það er þannig að alla tíð, í öll­um þeim erf­iðu mál­um sem Alþingi hef­ur tek­ist á við í gegn­um tíð­ina, þá hafa þing­menn sýnt þroska, virð­ingu og skiln­ing á því að þingið á að vera vett­vang­ur umræðu en ekki þögg­un­ar. Hingað til hef­ur meiri­hlut­inn stutt við þá hefð að leita sátta og samn­inga í stað þess að beita valdi til að þagga niður í minni hlut­an­um allt þar til rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur tók við,“ sagði Guðrún, sem að lok­um beindi orðum sín­um til for­seta þings­ins: Spurði af hverju hafi ekki verið upp­lýst um lengd þing­fund­ar í gær.

Kristrún svar­aði Guðrúnu full­um hálsi og sagði að henni þætti það „ótrú­legt að for­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins komi hér inn og lýsi því yfir að það sé eðli­legt, það sem gerð­ist hér í gær­kvöldi af hálfu þing­flokks­for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins af því að ein­hverj­ir hafi ekki verið upp­lýst­ir um stöðu mála,“ sagði Kristrún og bætti við:

„All­ir sem þekkja til þing­starfa vita að vara­for­set­ar slíta ekki fundi nema eft­ir sam­tal við for­seta“ og þykir Kristrúnu þetta vera al­var­lega „yf­ir­lýs­ingu frá for­manni flokks sem hef­ur í gegn­um tíð­ina talið sig vera ábyrg­an stjórn­tæk­an flokk sem hægt er að treysta á lýð­ræðis­leg­um grunni.“

Sagði for­sæt­is­ráð­herra einnig að „að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður stæðu ekki yfir“ og benti á að hlut­irnir virki ekki alltaf eins og fólk haldi að þeir geri eða vilji. „Það virk­ar ekki þannig eft­ir að ný rík­is­stjórn tek­ur til valda að fólk sest niður og for­menn Sjálf­stæðis­flokks, for­menn Mið­flokks og for­menn Fram­sókn­ar­flokks ákveða hvar lín­an er dreg­in og segja: Hingað en ekki lengra. Það sem hæst­virt­ur þing­maður er að verða vitni að er rík­is­stjórn sem treyst­ir sér til að stýra land­inu, treyst­ir sér til að virða lýð­ræðis­legt umboð og veit sann­ar­lega hvar lín­an ligg­ur,“ sagði Kristrún og bætti við. „Sú lína er ekki dreg­in af for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins.“

Ásmundur Frið­riks­sonFyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist atyrða flokks­systk­ini sín harka­lega.

Ástandið í þing­inu hefur verið mikið til umræðu að und­an­förnu og mörg stór orð hafa verið látin falla, sér­stak­lega þegar kemur að hinu umdeilda veiði­leyf­is­gjaldi.

Einn fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ásmundur Frið­riks­son, sem var þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis á árunum 2013 til 2024 og 4. vara­for­seti Alþingis árin 2023 til 2024, er langt í frá ánægður með stöðu mála á sínum gamla vinnu­stað.

Ásmundur hafði ekki hugsað sér að blanda sér í deil­urnar á Alþingi, en deilir frétt um að Bryndís Har­alds­dóttir þing­kona segir Hildi Sverr­is­dóttur hafa fylgt vinnu­reglum þegar hún sleit þingi.

„Ég ætl­aði ekki að hafa opin­bera skoðun á þing­stör­f­unum eftir að ég hætti á þingi“ segir Ásmundur og nefnir að fréttir og umræður síð­ustu daga „ná engri átt og nið­ur­læg­ing þings­ins nær nýjum hæðum“. Ásmundur stígur fast niður fæti. „Skammist ykkar og biðj­ist afsök­unar,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum