Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrum þingmaður segir Kristrúnu og Þorgerði hafa ákveðið að fórna baráttumálum Ingu Sæland

Fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill meina að Flokkur fólks­ins fái ekk­ert fyrir sinn snúð varð­andi þing­lokin dramat­ísku

Fyrrum þingmaður segir Kristrúnu og Þorgerði hafa ákveðið að fórna baráttumálum Ingu Sæland
Sigurður Kári Krist­jáns­son fyrrum þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins Gefur rík­is­stjórn­inni ráð er varða Flokk fólks­ins Mynd: Facebook

Fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sigurður Kári Krist­jáns­son, vill meina að Flokkur fólks­ins fái ekk­ert fyrir sinn snúð varð­andi þing­lok, sem voru með dramat­ískara móti þetta árið.

Sigurður Kári segir að ef það sé rétt að „samn­ingar um þing­lok hafi náðst á þeim nótum sem kynntir hafa verið í fréttum“ liggi það í augum uppi „að Flokkur fólks­ins fékk ekk­ert út úr þeim samn­ingum.“

Hann færir í tal að í þing­loka­samn­ingnum felist það að „Viðreisn fær að hækka skatta á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin í land­inu með dyggum stuðn­ingi Sam­fylk­ing­ar­innar.“

Bætir við:

„Frumvarp um jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga, sem ágæt sátt virð­ist vera um, verður klárað, auk þess sem fólki verður veittur rík­is­borg­ara­réttur, eins og alltaf við þing­lok“ og þess utan verður „fjár­mála­á­ætlun kláruð, eins og lög áskilja og allir hafa skiln­ing á. Önnur mál verða ekki kláruð. Þau falla niður dauð.“

Telur Sigurður Kári að „rík­is­stjórnin“ sé varla ánægð með „þennan samn­ing, enda eft­ir­tekjan ekki mikil“ og hann bætir því við að „rík­is­stjórnin fær í raun afar lítið út úr þessum samn­ingi miðað við allt sem lagt var í söl­urnar, sér­stak­lega með beit­ingu kjarn­orku­á­kvæðis þing­skapa. Allt var það á end­anum van­hugsað, gert af litlu til­efni og fyrir lítið.“

Hann telur „rík­is­stjórnin [hafi] fengið lítið út úr þessum samn­ingum“ og því hljóti „nið­ur­staðan að vera hreint áfall fyrir Flokk fólks­ins og kjós­endur hans, því Inga Sæland náði engum árangri í þessum samn­inga­við­ræðum.“

Sigurður Kári dregur saman nið­ur­stöðu sína út frá eigin pæl­ingum og stefnu:

„Nið­ur­staða samn­ing­anna þýðir að Kristrún og Þor­gerður hafa ákveðið að fórna helstu bar­áttu­málum Ingu Sæland og Flokks fólks­ins í samn­ingum um þing­lok, þ. á m. helstu kosn­inga­málum Ingu og co um strand­veiðar og breyt­ingar á líf­eyr­is­kerf­inu.“

Hann segir „kjós­endur Flokks fólks­ins hljóta að vera vonsviknir“ að þurfa að sjá að „sam­starfs­flokk­arnir, Sam­fylk­ingin og Viðreisn, umgang­ast flokk­inn frekar sem hækju og hjálp­ar­gagn í þessu stjórn­ar­sam­starfi, en sem raun­veru­legan og mark­tækan þátt­tak­anda í sam­starf­inu.“

Nefnir dæmi:

„Það sést á því að Sam­fylk­ingin og Viðreisn voru ekki lengi að fórna helstu bar­áttu­málum Flokks fólks­ins þegar það þjón­aði hags­munum þeirra“ og nefnir einnig að „for­ysta Flokks fólks­ins getur hins vegar ekki kennt sam­starfs­flokk­unum í rík­is­stjórn alfarið um ófarir sínar og stefna­mála sinna.“

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son.

Að mati fyrrum þing­manns­ins er fram­ganga ráð­herra og þing­manna Flokks fólks­ins hafi verið með þeim hætti á síð­ustu dögum að flestum ef ekki öllum ætti „end­an­lega að vera orðið ljóst að Flokkur fólks­ins er ekki stjórn­tækur. For­ystu­menn flokks­ins hafa hvorki burði til að koma að lands­stjórn­inni né virð­ast þeir vera í neinu jafn­vægi til að koma að henni. Það sást t.d. á furðu­legum yfir­lýs­ingum Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, mennta­mála­ráð­herra, um meint valda­rán stjórn­ar­and­stöð­unnar í vik­unni. Og ekki var hún mikið betri þvælan í Ingu Sæland um að stjórn­ar­and­staðan vildi koma á því fyr­ir­komu­lagi hér á landi að frá­far­andi vald­hafar yrðu dregnir undir hús­vegg og skotnir við stjórn­ar­skipti.“

Sigurður Kári segir einnig að lík­lega hafi þing­maður flokks­ins, Sigurjón Þórð­ar­son, klúðrað því síðan end­an­lega að Flokkur fólks­ins næði ein­hverjum af sínu málum fram við þessi þing­lok með van­hugs­uðum hót­unum um að kjarn­orku­á­kvæð­inu yrði aftur beitt ef þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar vog­uðu sér að taka aftur til máls um veiði­gjöld eða önnur umdeild frum­vörp í þing­inu.“

Hann segir að „nú liggur nið­ur­staðan fyrir. Flokkur fólks­ins, sem ekk­ert fékk fyrir sinn snúð, hlýtur að velta fyrir sér eigin stöðu í þessu stjórn­ar­sam­starfi eftir atburði dags­ins“ og nefnir einnig að „Kristrún og Þor­gerður“ hljóti líka að „velta því fyrir sér í ljósi atburða síð­ustu daga, vikna og mán­aða hversu lengi flokkar þeirra ætla halda áfram stjórn­ar­sam­starfi við stjórn­mála­flokk sem aug­ljós­lega er ekki stjórn­tækur.“

Sigurður Kári gefur Kristrúnu og Þorgerði Katrínu eitt ókeypis ráð að lokum - og tekur ekk­ert auka­lega fyrir það:

„Þær ættu a.m.k. að hafa í huga að þessar upp­á­komur og ruglið í tengslum við full­trúa Flokks fólks­ins eru að sínu leyti í boði Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar. Það eru tak­mörk fyrir því hvað hægt er að bjóða almenn­ingi upp á í þeim efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi