Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Upptökur úr Teslu notaðar sem sönnunargögn í Þorlákshafnarmálinu

Tennur fund­ust í aft­ur­sæti bíls­ins

Upptökur úr Teslu notaðar sem sönnunargögn í Þorlákshafnarmálinu
Gufunes Hjör­leifur fannst illa far­inn við stíg á Gufunesi í mars síð­ast­liðnum. Mynd: Google Maps

Upptökur úr mynda­véla­bún­aði Teslu-bif­reiðar eru meðal þeirra sönn­un­ar­gagna sem lögð hafa verið fram í hinu svo­kall­aða Þor­láks­hafn­ar­máli, að sögn Karls Inga Vil­bergs­sonar, sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem ræddi við RÚV um málið.

Þótt upp­tök­urnar sýni ekki beinar myndir af lík­ams­árásinni á Hjörleif Hauk Guð­munds­son, sem lést af völdum alvar­legs ofbeldis, segir Karl Ingi að þær varpi mik­il­vægu ljósi á gang atburða og hreyf­ingar sak­born­inga.

Að sögn ákæru voru hinir ákærðu, fjórir karl­menn og ein kona, með Hjörleif í bif­reið í um fimm klukku­stundir þar sem hann var beittur grófu ofbeldi. Hann var að lokum skil­inn eftir illa far­inn og nær­fata­laus á göngu­stíg í Gufunesi, þar sem hann fannst lát­inn.

Teslu-bílar eru með inn­byggðum mynda­véla­bún­aði sem tekur upp bæði þegar bíll­inn er í akstri og þegar hann stendur kyrr, sem varð til þess að upp­tökur úr bílnum komu lög­reglu í hendur.

Samkvæmt heim­ildum frétta­stofu fund­ust tennur í aft­ur­sæti bíls­ins en Karl Ingi stað­festir að sak­born­ing­arnir hafi farið með bif­reið­ina í bíla­þvott sama dag og þeir voru hand­teknir og að tennur hafi fund­ist í bílnum.

Í ákærunni kemur fram að fimm tennur hafi verið brotnar í Hjör­leifi og poki settur yfir höfuð hans til að þvinga hann til að gefa upp aðgangs­orð að heima­banka sínum. Þá segir einnig að sak­born­ing­arnir hafi haft í hyggju að hafa fé af konu Hjör­leifs með hót­unum um frekara ofbeldi.

Þrír karl­menn eru ákærðir fyrir mann­dráp, frels­is­svipt­ingu, rán og fjár­kúgun. Sá fjórði er ákærður fyrir pen­inga­þvætti vegna milli­færslu sem barst inn á hans reikn­ing úr heima­banka fórn­ar­lambs­ins. Konan í mál­inu er ákærð fyrir hlut­deild í frels­is­svipt­ingu og ráni, með því að hafa haft sam­band við Hjörleif.

Aðal­með­ferð máls­ins fer fram í lok ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi