Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrirmyndir Skjaldar Íslands

Örygg­is­gæslu­hópar hafa áður starfað á Íslandi sem vildu vernda Íslend­inga frá útlend­ingum. „Umræða á jaðr­inum sem þótti áður algjör skandall kom­inn í meg­in­straum­inn,“ segir stjórn­mála­fræð­ingur.

Fyrirmyndir Skjaldar Íslands
Meðlimir Skjaldar Íslands Hópurinn tekur örygg­is­gæslu íslenskra kvenna í sínar hendur Mynd: Facebook

Hópurinn Skjöldur Íslands vakti athygli um helg­ina eftir að félagar hóps­ins gengu saman í sam­stæðum og merktum peysum í mið­borg Reykja­víkur undir þeim for­merkjum að þeir vildu vernda Íslend­inga.

Meðlimir hóps­ins segj­ast vilja vernda íbúa Íslands frá inn­flytj­endum með örygg­is­gæslu svo sem „for­eldraröltum“.

Þetta er ekki fyrsti hóp­ur­inn af þessum toga en þeir tíðkast víða í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Á Íslandi var svip­aður hópur stofn­aður árið 2016 en var þá alfarið undir nafn­leynd.

Hermenn Óðins

Félags­skapur að nafni Hermenn Óðins var starf­andi á Íslandi árin 2016-2017. Sú hreyf­ing var íslenskur angi af finnskri hreyf­ingu sem var stofnuð í kjöl­far hryðju­verka­árásanna í Evrópu árið 2015. Hermenn Óðins höfðu það að sér­stöku mark­miði að vernda íbúa frá múslimum og héldu örygg­is­gæslu­göngur líkt og Skjöldur Íslands gerir nú. Víða um Norð­ur­löndin spruttu upp svæð­is­bundnir hópar af Her­mönnum Óðins og jafn­vel í Norður-Ameríku. Helsti mun­ur­inn á Skildi Íslands í dag og Her­mönnum Óðins á Íslandi er að árið 2016 þorðu með­limir ekki að koma undir nafni en í dag veifa með­limir Skjaldar Íslands því óspart á sam­fé­lags­miðlum að þeir séu hluti af hópnum og aðrir not­endur hvetja þá áfram í athuga­semdum.

„Það er áhyggju­efni að umræða á jaðr­inum sem þótti áður algjör skandall sé kom­inn í meg­in­straum­inn og þá verða hlutir hættu­legri, ef kyn­þátta­hatur er normalíserað,“ lýsir Íris Björk Ágústs­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur í við­tali við Mannlíf. Hún skrif­aði loka­rit­gerð­ina sína um afmennsk­andi orð­ræðu um útlend­inga undir leið­sögn frá Silju Báru Ómars­dóttur, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ings og nú nýs rekt­ors Háskóla Íslands. Í rit­gerð­inni tók hún fyrir orð­ræðu öfga-hægri flokka í þremur Evr­ópu­löndum og þar komu Hermenn Óðins í Svíþjóð við sögu. Í sam­tali við Mannlíf sagði hún að það kæmi henni ekk­ert gríð­ar­lega á óvart að slíkir hópar væru aftur komnir til Íslands miðað við þró­un­ina erlendis.

Bjargvættarþörf

„Þegar að mynd­ast ótti í sam­fé­lag­inu þá eru ákveðnir menn sem líta á það sem sitt hlut­verk að vera vernd­arar þjóð­ar­innar. Þeir tala mikið um til dæmis konur og börn, það er alltaf verið að vernda konur og börn af því að það er litið á þau sem „passíva“ hópa og útlensku menn­irnir eru „aggresors“,“ segir Íris í sam­tal­inu við Mannlíf. „Þetta eru eig­in­lega alltaf hvítir karl­menn, rosa­lega margir þeirra á saka­skrá. Þetta er þjóð­ern­is­hyggja falin sem vernd­ar­hyggja.“

Merki Skjaldar Íslands og merkið á stefnu­yf­ir­lýs­ingu Breiviks

Merkið sem Skjöldur Íslands notar er rauður ridd­ara­kross, merki krist­inna kross­fara frá 12. öld sem vernd­uðu Jer­úsalem og drápu múslima. Þessi sami kross var not­aður af norska hryðju­verka­mann­inum Breikvik í stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni árið 2011. Í dag, 22. júlí, eru 14 ár síðan að Breikvik myrti 77 manns. Hann not­aði kross­inn til að upp­hefja hetju­dýrkun á fólki sem hafði drepið múslima í nafni krist­inna gilda. Skjöldur Íslands fetar því í vafasöm spor með notkun ridd­ara­koss­ins.

Verndarar kvenna?

Markmið hóps­ins hefur verið mikið í umræðu á sam­fé­lags­miðlum. Einn með­lima hóps­ins, Einn með­li­manna, Gylfi Jóns, vís­aði til þess að um væri að ræða bar­áttu gegn nauðg­unum.„Við þurfum að hafa hátt ! Hátt fyrir margar af þeim stúlkum sem hefur verið nauðgað, en þora ekki að segja frá. Við viljum þetta allt upp á yfir­borðið því við ætlum að hafa hátt - mjög hátt!“ sagði hann í Facebook-færslu. Þá segir hann hóp­inn hafa fengið til­kynn­ingar frá „fórn­ar­lömbum nauð­gaunar sem m.a. þora ekki að segja frá“. „Dæmi er um konur sem neyð­ast til að taka strætó til að kom­ast á milli staða sem hafa verið slegnar upp úr þurru og kall­aðar t.d. upp­nefndar sem feitar tussur!“

Margar konur furða sig á hvar þessi metn­aður hafi verið öll þessi ár í bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi á Íslandi.

„Hvar voru þessir hópar öll þessi ár sem við höfum verið áreittar af Íslend­ingum en eng­inn trúði eða hlust­aði eða bara var skít­sama,“ skrif­aði Anita Da Silva Bjarna­dóttir í umræðu­þræði í Facebook-hópnum BeautyTips.

„Ætla þessir menn að vera „judge and jury“ um hvað þeir telja vera ofbeldi gegn konum. Hvað gera þeir þegar þeir sjá það? Hvað ef þeir sjá Gunna sem þeir vinna með vera gera eitt­hvað? Munu þeir virki­lega verja konur jafn hvort sem það er útlend­ingur eða íslend­ingur. Eða alla útlend­inga, eða sleppa þeir hvítu en bara ráð­ist gegn brúnum aug­ljós­lega útlend­ing­unum,“ skrif­aði Veiga Gríms í öðrum umræðu­þræði í Facebook-hópnum Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu.

Helstu ógnir hér á landi vegna hryðju­verka tengj­ast ofbeld­is­fullum hægri öfga­hópum, sam­kvæmt hættu­mats­skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra sem var gefin út fyrr á árinu. Helstu skot­mörk árása eru meðal ann­ars ein­stak­lingar sem tengj­ast minni­hluta­hópum vegna kyn­ferðis, kyn­hneigðar, upp­runa eða trú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi