Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kári Stefánsson ósáttur við sjálfan sig og Stefán Einar

„Það var óvar­legt af mér og býsna óheið­ar­legt“

Kári Stefánsson ósáttur við sjálfan sig og Stefán Einar
Kári Stef­áns­son Fyrr­ver­andi for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar hefur verið til umfjöll­unar eftir við­tal þar sem hann gaf í skyn njósnir lyfj­aris­ans Amgen.

Kári Stef­áns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna við­tals hans við Stefán Einar Stef­áns­son spjall­þátt­ar­stjórn­anda í Spurs­málum á mbl.is.

Yfir­lýs­ing Kára virð­ist vera svar hans við frétt á mbl.is upp úr við­tal­inu, þar sem segir frá því að Kári hafi ótt­ast að lyfj­aris­inn Amgen, sem á Íslenska erfða­grein­ingu, njósni um starfs­fólk sitt. Kári dregur í land orð sín í við­tal­inu um mögu­legar njósnir Amgens á starfs­fólki Íslenskrar erfða­grein­ingar. Kári lét orðin falla á sviði „fyrir framan 200 íhalds­menn“ í svoköll­uðum bóka­klúbbi Spurs­mála um bók George Orwell, 1984, sem fjallar um dystópískt alræð­is­sam­fé­lag.

„Stefán Einar Stef­áns­son hringdi í mig fyrir nokkrum vikum og bað mig að koma í bóka­klúbb sem hann stjórnar að ræða 1984 eftir George Orwell,“ segir Kári í yfir­lýs­ing­unni.

„Ég féllst á að koma að mestu fyrir sakir for­vitni en líka vegna þess að mig grun­aði að þessi vet­vangur yrði nýttur til þess að gagn­rýna sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda á tímum Covid 19 sem og varð raunin. Ég end­aði á því að sitja uppi á sviði með Stefáni fyrir framan allt að 200 íhalds­menn. Umræð­urnar voru líf­legar og að ég held nokkuð skemmti­legar og eng­inn, hvorki Stefán né fólk út í sal sýndi gamla sós­í­alist­anum annað en kurt­eisi sem jaðr­aði við hlý­leika. Umræð­urnar voru býsna mál­efna­legar fyrir utan nokkrar mis­hepn­aðar til­raunir und­ir­rit­aðs til þess að vera fynd­inn og óheppi­legt orða­lag mitt þegar ég reyndi að beina athygl­inni að þeim mögu­leikum sem fyr­ir­tæki og stof­anir hafa til þess að fylgj­ast með starfs­mönnum sínum á þann máta að lík­ist því sem lýst er í 1984.“

Kári hafði sagt í við­tal­inu frá skil­yrðum fyr­ir­tæk­is­ins að tölvu­bún­aður kæmi frá Amgen.

„En eitt af því sem þeir kröfð­ust til dæmis sem ég mót­mælti var að all­ir starfs­menn Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar hefðu svo­kall­aða Am­gen-tölvu. Og þegar ég spurði, hvað eru Am­gen-tölv­ur? Og ég fékk ekk­ert svar. Og nú eru all­ir starfs­menn í Sturlu­götu 8, með tölvu frá Am­gen, meira að segja kon­urn­ar sem vinna við að þrífa, í eld­hús­inu og svo fram­veg­is. Og hvað er þetta. Þetta eru tölv­ur sem eru með njósna­bún­aði. Þetta eru tölv­ur sem eru með „spyware.“ Og þetta eru ekki bara tölv­ur, þetta eru míkra­fón­ar. Það er hægt að hlusta á allt sem talað er í kring­um þess­ar tölv­ur. Og þá geta menn sagt, er þetta ekki bara sjálf­sagt, þetta er tæki sem þeir nota við vinnu sína í vinn­unni. Er eitt­hvað sem á sér stað í vinn­unni sem fyr­ir­tækið má ekki vita um og svarið við því er auð­vitað nei. Auðvitað eiga þeir að fá að vita um allt. En þarna ertu kom­inn al­veg upp að lín­unni...“

„Það var óvar­legt af mér og býsna óheið­ar­legt“
Kári Stef­áns­son

Hann útskýrir orð sín í yfir­lýs­ing­unni.

„Þegar ég á sínum tíma spurði hvaða eig­in­leika Amgen tölvan hefði umfram aðrar tölvur fékk ég engin svör. Þegar ég dróg í efa að svona tölva myndi gagn­ast þeim sem í eld­hús­inu vinna var þaggað niður í mér og sagt að allir starfs­menn, án und­an­tek­ingar, yrðu að hafa slíka tölvu. Það var óvar­legt af mér og býsna óheið­ar­legt í ann­ars góðum sam­ræðum að gefa það í skyn að Amgen gæti notað tölv­urnar til þess að njósna.“

Þá hrósar hann Amgen fyrir að hafa gefið Land­spít­al­anum jáeindaskanna og seg­u­l­ómun­ar­tæki, auk þess að hafa aðstoðað yfir­völd í covid-far­aldrium.

„Ég vil benda á að Amgen hefur gert mjög vel við starfs­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar og hefur hagað sér eins og fyr­ir­tæki með háa sið­ferð­is­staðla og mikla sam­fé­lags­lega ábyrgð,“ segir Kári nú.

Kári er þó ósáttur við þann fjölda frétta sem mbl.is hefur skrifað upp úr orðum hans.

„Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að ekk­ert í sam­ræðum mínum við Stefán benti til þess að hann mydi skreyta mbl.is með bitum af bók­spjall­inu á hverju degi í heila viku og hann bar enga af frétt­unum sem hann skrif­aði upp úr því undir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi