Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hugurinn leitar til Helfararinnar“

Gunnari Hólm­steini Ársæls­syni, sem er stjórn­mála­fræð­ingur og kenn­ari við FG, verður tíð­rætt um það sem hann kallar: „Hið tæra illa“

„Hugurinn leitar til Helfararinnar“
Gunnar Hólm­steinn Ársæls­son segir ástandið á Gaza vera mun verra en nokkur orð geti lýst Hann talar um „hið tæra illa“ Mynd: Aðsend

Gunnar Hólm­steinn Ársæls­son segir í aðsendum pistli á Vísi, að hið illa sé á sveimi um þessar mundir og honum verður tíð­rætt um það sem hann kallar: „Hið tæra illa.“

Hann er klár á því að mað­ur­inn sé án alls vafa „grimmasta dýrið á jörð­inni“ og segir einnig að „engin önnur teg­und hefur fundið upp þann urmul af vopnum og ger­eyð­ing­ar­tólum sem smíðuð hafa verið í gegnum tíð­ina.“

Gunnar nefnir einnig að engin önnur teg­und hafi fundið upp álíka aðferðir og „Homo Sapiens“ til þess eins að kvelja fólk; valda því „sárs­auka og van­líðan.“

Hann segir að „þessi stað­reynd“ skeri okkur alger­lega frá öðrum teg­undum á jörð­inni.

Haustið sem öllu breytti

Gunnar segir að allt frá haustinu 2023 hafi almenn­ingur hér á landi og út um allan heim líka, orðið „vitni að atburðum sem nán­ast eiga sér enga hlið­stæðu, sökum mann­vonsku og níð­ings­skapar.“

Hann nefnir dæmi, Svíþjóð:

„Eflaust hafa ein­hverjir sem lesa þennan grein­ar­stubb komið til Stokk­hólms í Svíþjóð. Þar búa um tvær millj­ónir manna með úthverfum með­töldum. Ímyndaðu þér, les­andi góður, að það væri búið að jafna um 80-90% af Stokk­hólmi við jörðu og það væru aðeins nokkrir staðir þar sem hægt væri að nálg­ast mat­væli, en þau væru af mjög skornum skammti. Þannig er staðan á Gaza.“

Byrjunin

Hann spyr að því hvernig þessi hryll­ingur á Gaza hafi byrjað:

„Jú, með árásum hryðju­verka­sam­tak­anna Hamas, sem sögu­lega séð hafa verið dyggi­lega studd af Íran, þann 7.októ­ber, á Ísrael.“

„Meðal ann­ars var ráð­ist á tón­list­ar­há­tíð, þar sem ungt, sak­laust fólk var að skemmta sér“ og bendir hann líka á að í árásinni voru hátt í „1300 manns drepin og á þriðja hund­rað tek­inn í gísl­ingu, ástand sem enn stendur yfir og er eitt helsta þrætu­epli þess­ara átaka, þar sem nokkrir tugir er enn í gísl­ingu.“

Gunnar nefnir að Hamas hafi stjórnað á „Gaza frá 2007“ og vill hann taka það hér „skýrt fram að ég for­dæmi alger­lega hryðju­verka­árásir sem þessar“ sem hann segir bitna ávallt mest á „almennum borg­urum, enda helsta mark­mið slíkra árása að vekja ótta og skelf­ingu.“

Eft­ir­leik­ur­inn

Og Gunnar vill tjá sig um eft­ir­leik­inn - einn þann versta, ef ekki þann allra versta í sögu mann­kyns svo vitað sé til um og hér er ekki verið að gera lítið úr hel­för nas­ista gegn gyð­ingum og öðrum er Adolf Hitler var kansl­ari Þýska­lands.

Gefum Gunnari bara orðið:

„En eft­ir­leik­ur­inn var á þessa leið: Þessi árás - sem var gerð meðal ann­ars til þess að skemma fyrir batn­andi sam­skiptum Ísraels og Arabaríkj­anna, sér­stak­lega Sádí-Árabíu - vakti hressi­lega ein­hverja mestu og best skipu­lögðu hern­að­arma­sk­ínu sem til er, Ísra­els­her.“

Hann segir að her­inn í Ísrael hafi yfir að ráða nán­ast öllum bestu og þró­uð­ustu „vopnum sem til eru í heim­inum.“

Stuðn­ingur Banda­ríkj­anna skiptir sköpum og Kín­verjar taka við kefl­inu

Gunnar færir einnig í tal að allt frá árinu 1950 hafi „landið fengið tugi millj­arða doll­ara í beinan hern­að­ar­stuðn­ing frá Banda­ríkj­unum“ en und­an­farin ár hafi þessi tala verið um „3,3 millj­arðar á ári, tvö­fald­að­ist reyndar á milli áranna 2023 til 2024, í um 6.6 millj­arða doll­ara“ sem Gunnar segir að sé álíka mikið og öll „þjóð­ar­fram­leiðsla Íslands og að auki fær Ísrael enn meiri stuðn­ing frá Banda­ríkj­unum, sem ekki er not­aður til hern­aðar.“

Hann telur klárt að Ísrael sé í algerum sér­flokki í þessu til­liti „en eins og þeir sem fylgj­ast með fréttum vita, eru Banda­ríkin almennt að skera niður nán­ast alla aðra þró­un­ar­að­stoð til ann­ara ríkja, segja sig frá alþjóða­stofn­unum og álíka.“

Telur Gunnar að það tóma­rúm sem muni mynd­ast verði að „öllum lík­indum fyllt af Kín­verjum og mun því að öllum lík­indum efla stöðu þeirra í alþjóða­kerf­inu, á kostnað Banda­ríkj­anna. Svo grunn­hyggin eru stjórn­völd í Washington um þessar mundir.“

Kvik­myndin þessi er bönnuð öllum

„Gaza-stríðið hefur birst okkur í gegnum fréttir í formi skelfi­legra mynda og mynd­skeiða“ sem Gunnar segir að séu í raun „svo hrylli­leg að þau eru í raun ekki birt­ing­ar­hæf“ og hann segir einnig að „væru þessi mynd­skeið kvik­mynd, þá væru þau senni­lega bönnuð innan 18 ára, jafn­vel dæmd óbirt­ing­ar­hæf.“

Hann segir að slík mynd­skeið séu tekin af íbúum á Gaza, en bætir því við að „lýð­ræð­is­ríkið Ísrael neitar erlendum fjöl­miðlum aðgang að Gaza“ og að „tugir blaða­manna frá Gaza hafa verið drepnir við störf sín.“

Gunnar vill helst ekki lýsa „þessum hryll­ingi sem flæðir um alla miðla“ og þá segir hann að „hug­ur­inn“ leiti til „versta atburða síð­ustu aldar, Helfar­ar­innar“ þegar við sjáum myndir af „börnum sem eru að lát­ast af hungri á Gaza. Og ef ein­hverjir ættu að skilja hið hrylli­lega eðli þeirra atburða, þá eru það einmitt Ísra­els­menn og gyð­ingar. Eru þeir komnir í hring?“ spyr hann.

Ísraelar við­ur­kenna þjóð­ar­morð

Gunnar bendir á að það hafi vakið mikla athygli fyrir skömmu að „tvenn mann­rétt­inda­sam­tök í Ísrael“ hafi gefið það út að þau telja að Ísrael stundi það sem kall­ast „þjóð­ar­morð“ á íbúum Gaza og að einnig hafi verið „gefin út alþjóð­leg hand­töku­skipun á Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísrael vegna átak­anna.“

Hann segir að „ein­hverjar ömur­leg­ustu fréttir úr þessum átökum hingað til“ hafi verið birtar á RÚV fyrr á þessu ári en þær „sýndu almenna borg­ara í Ísrael sem voru að ferð­ast, sem túristar, að landa­mærum Gaza og virða fyrir sér eyði­legg­ing­una og sýna börnum sínum“ líkt og þegar „við förum til Grinda­víkur og út í hraun, til þess að virða afleið­ingar eld­gos­anna fyrir okkur.“

Segir Gunnar að að það hafi gjarnan fylgdt með hjá þessum „stríðstúristum“: „Drepum þau öll, þetta eru hvort eð er allt saman hryðju­verka­menn.“

Segir Gunnar að þarna hafi hann fyrst orðið alger­lega „kjaft­stopp“ og segir að í raun og veru sé „erfitt að ímynda sér hið botn­lausa hatur sem virð­ist vera þarna á ferð­inni, það er bara mjög erfitt að skilja það. Það er engu að síður stað­reynd.“

Sextíu þús­und verið myrt

Gunnar segir að honum hafi dottið það hrein­lega í hug að valda­menn í „Ísrael séu með ein­hverjum hætti gjör­sam­lega hel­teknir“ af því sem mögu­lega mætti kalla „stríðsst­urlun“ og líka hluti „ísra­elsku þjóð­ar­innar með.“

Honum virð­ist sem „öfga­menn innan stjórnar Ísrael“ virð­ist nán­ast „ráða ferð­inni“ en þá er einnig grunur um að „Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra“ noti þetta svo­kall­aða „stríð til að að halda sér á lífi póli­tískt séð“ en mál gegn for­sæt­is­ráð­herr­anum er í gangi meðal ann­ars vegna meintrar spill­ingar, í dóms­kerfi Ísraels.

Samkvæmt yfir­völdum á Gaza er nú búið drepa um það bil 60.000 manns á svæð­inu og eins og staðan er núna veit eng­inn hvað marga er að finna í rúst­unum - en Gaza er svipað stórt land­svæði og Reykja­nesskag­inn og mögu­legt að hund­ruð eða þús­undir líka séu enn undir rúst­unum.

Hann segir að hin mikla „hefnd Ísra­els­manna vegna árása Hamas“ sé löngu komin „út fyrir öll mörk og í raun má velta því upp hvort þetta blóð­bað sem er í gangi, hafi í raun öðl­ast sitt eigið líf? Eða eru það stjórn­lausir ráð­menn sem keyra stríðið áfram, blind­aðir af hatri? Ráðamenn sem kunna sér engin sið­ferði­leg mörk?“

Gunnar segir að „rökin“ séu þau að landið sé að „verja sig“ en að svo langt sé um liðið síðan að það sé öllum það „alger­lega“ ljóst að það er fyrir langt um liðið síðan „hefndin“ hætti að vera hin raun­veru­lega ástæða fyrir þjóð­ar­morð­inu sem nú fer fram á Gaza með vit­neskju allrar heims­byggð­ar­innar.

Öll hjálp­ar­kerfi lömuð

Segir hann að mark­mið Ísraels virð­ist vera það að gera líf íbúa á Gaza „alger­lega óbæri­legt“ og einnig að „allt þetta væri að sjálf­sögðu ekki hægt, nema án ríku­legs fram­lag frá Banda­ríkj­unum:

„Það er í raun skelfi­legt að hugsa til þess að landið sem einu sinni kenndi sig við frelsi og leit að ham­ingju skuli leggja blessun sína yfir það sem á gengur fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs.“

Gunnar bendir á abyrgð vald­hafa vest­an­hafs og segir hana vera mikla í þessum efnum:

„Þessi stefna Banda­ríkja­manna hefur verið í gangi allt frá stofnun Ísraels og er yfir­leitt með fyrstu verkum nýs for­seta Banda­ríkj­anna að ítreka hana með einum eða öðrum hætti.“

Og Gunnar færir í tal „alþjóða­kerfið“ - Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Örygg­is­ráðið og „já, öll þessi kerfi“ standi núna alger­lega „van­máttug frammi fyrir þeirri grimmd sem á sér stað á Gaza, þar sem öllum tólum er beitt til að gera líf íbú­anna að hel­víti á jörð; allt frá eld­flaugum til skrið­dreka og jarð­ýtna, sem not­aðar eru til þess að jafna hús við jörðu. Þetta eru sömu jarð­ýtur og við notum hér á landi til þess að byggja varn­ar­garða gegn eld­gosum.“

Hann vill meina að „gagns­leysið sem birt­ist okkur frá höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna“ sé ótrú­lega slá­andi og mikið „umhugs­un­ar­efni“ og að „allar yfir­lýs­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna virð­ast sem sem hjóm eitt.“

Segir að stóra spurn­ingin sé þessi:

„Hversu lengi á þessi tæra ill­mennska að við­gang­ast gegn alger­lega varn­ar­lausum hópi fólks, sem á það á stöðugt á hættu að vera skotið í tætlur í mat­ar­röðum, eða vera sprengt í loft upp í tjöld­unum sem það býr í?“

Mátt­ur­inn og dýrðin að eilífu og amen á eftir efn­inu

Það er á máli Gunnars að finna að það verði með ein­hverjum hætti að finna ráð til þess að stöðva þetta „brjál­æði sem er í gangi þarna og víðar í heim­inum um þessar mundir“ og segir hann að honum líði „því miður eins og maður sé staddur í Star Wars kvik­mynd, þar sem Svart­höfði er með und­ir­tökin“ og að „Mátt­ur­inn“ sé far­inn út í hafs­auga og það sé „vond til­finn­ing og það hvíla óvenju dimmir skuggar yfir heims­byggð­inni nú um stundir og ógn­irnar sem við stöndum frammi fyrir eru margar.“

Hann nefnir sem dæmi um stríðs­hrjáð svæði og á þá við „Úkraínu, stríð í Súdan, sem nán­ast ekk­ert er fjallað um, umhverf­is­á­hrif og fleira. Það eru sögð vera um 60 átök eða stríð í gangi um þessar mundir.“

Hjálp­ar­gögn í hafið

Gunnar við­ur­kennir fús­lega að hann sé ekki að „teikna upp bjart­sýna sviðs­mynd“ en að skepnan „Homo Sapiens“ hafi líka getu til að „breyta hlutum til hins betra.“

Hann færir í tal að „ein­hverjum hjálp­ar­gögnum var varpað úr lofti síð­ustu helg­ina í júlí“ en segir að það hafi ein­fald­lega verið „sýnd­ar­mennska“ og að það „magn sem varpað var úr lofti er á við einn til tvo flutn­inga­bíla“ en eins og flestir vita hafa þús­undir flutn­inga­bíla verið stað­settir og algjör­lega til­búnir við landa­mæri Gaza mán­uðum saman með hjálp­ar­gögn sem kom­ast ekki til skila fyrir skot­hríð Ísra­els­manna á hungruð börn og alls­lausar konur sem hafa það eitt á sinni sam­visku að hafa fæðst inn í þennan heim hryll­ings og algjörrar illsku.

Gunnar segir það algjör­lega öllum ljóst og engum raun­veru­lega hulið að „tvær millj­ónir manna þurfa auð­vitað heil­mikið magn af mat­vælum, hrein­læt­is­vörum og lyfjum“ og að „öllu þessu hefur íbúum Gaza nán­ast alfarið verið neitað um und­an­farin miss­eri.“

Einnig bendir hann á að þá stað­reynd að vitað er að tals­verður hluti hjálp­ar­gagn­anna lenti til dæmis í haf­inu undan ströndum Gaza, sem og tjöldum íbúa þar sem fólk særð­ist:

„Hvaða gagn er að því að varpa hjálp­ar­gögnum í hafið?“

Frakkar og Bretar geta ráðið úrslitum

Nýverið til­kynntu Frakkar að þeir muni bæt­ast í sístækk­andi hóp þeirra þjóða sem við­ur­kenna Palest­ínu sem sjálf­stætt ríki í sept­em­ber næst­kom­andi; bæt­ast þá í hóp um það bil 150 ríkja er gert hafa slíkt hið sama og það er gott að mati Gunnars; sem segir þó að betur þurfi að gera eigi ein­hver raun­veru­legur árangur að nást, og það sem allra fyrst:

Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti

„Keir Stramer for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands til­kynnti svo þann 29. júlí síð­ast­lið­inn að Bretar myndu við­ur­kenna til­vist palest­ínsk ríkis, einnig í sept­em­ber, ef að Ísra­els­menn myndu ekki bæta fram­komu sína gagn­vart íbúum Gaza“ segir Gunnar og bendir á að þetta hafi verið „eins­konar hótun“ um ein­hvers­konar „við­ur­kenn­ingu gagn­vart Ísrael“ sem vill ekki að Bretar né aðrar þjóðir „við­ur­kenni til­vist ríkis Palest­ínu.“

Keir Starmer for­sæt­is­ráð­herra Breta

Gunnar býst við því að fljót­lega muni málið allt saman „skýr­ast á næstu vikum, en við­ur­kenn­ing Breta myndi vega þyngra heldur en Frakka, vegna sögu­legra ástæðna sem ekki verða raktar hér.“

Flókið frið­ar­ferli framundan

Hann segir að end­ingu að hann vilji ekki „trúa á að það birti upp um síðir – eins og við Íslend­ingar segjum“ og að lausnin sé að „sjálf­sögðu að stoppa stríðið sem allra fyrst og setj­ast að samn­inga­borð­inu, en allar slíkar til­raunir hafa fram að þessu ekki borið árangur“ og það finnst honum vera „mjög sorg­legt.“

Gunnar bendir á að frið­ar­ferli sé flókið sem og tíma­frekt, en að á meðan malli „hið tæra illa“ áfram „eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn“ og það „með skelfi­legum afleið­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi