Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán S. varð vitni að drukknun á Tenerife

Saxa­fón­leik­ar­inn lýsir átak­an­legum atburði sem átti sér stað á Playa del Bobo í dag, þegar líf­laus maður var dreg­inn upp úr sjónum fyrir framan fjölda strand­gesta.

Stefán S. varð vitni að drukknun á Tenerife
Playa del Bobo Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir tókst ekki að bjarga mann­inum Mynd: Aleksandar Todorovic / Shutterstock

Saxa­fón­leik­ar­inn og skóla­stjóri Tónskóla Árbæjar, Stefán S. Stef­áns­son, varð vitni að hræði­legum atburði á Tenerife, þar sem hann er nú í fríi.

Stefán lýsir átak­an­legum atburði sem átti sér stað á Playa del Bobo í dag, þegar líf­laus maður var dreg­inn upp úr sjónum fyrir framan fjölda strand­gesta.

„Ég eins og svo margir aðrir íslend­ingar nýt þess í botn að vera á Tenerife. Dagurinn í dag var ekki einn af þeim,“ skrifar Stefán á Facebook rétt í þessu. Hann segir að hann og eig­in­kona hans, Anna Steinunn Ólafs­dóttir, hafi verið í sól­baði í flæð­ar­mál­inu þegar hún benti honum á að eitt­hvað væri að ger­ast.

Hann lýsir hvernig líf­vörður stökk út í sjó­inn og dró líf­lausan mann á land. Strax hófust lífg­un­ar­til­raunir í flæð­ar­mál­inu og fleiri aðilar komu að aðstoð­inni, aðrir líf­verðir, lög­reglu­menn og síðar sjúkra­flutn­inga­menn.

„Allt kom fyrir ekki, þrátt fyrir hetju­lega bar­áttu lækna, bráðaliða og ann­arra sem komu að, lést mað­ur­inn,“ segir Stefán og bætir við að örvingl­aðir aðstand­endur hafi ráfað um á meðan bar­áttan stóð yfir.

Hann lýsir því sem „súr­r­eal­ísku ástandi“ þegar líkið lá í hvítum poka á strönd­inni í heila þrjá klukku­tíma. „Innan um börn með skóflur og bolta, nýir gestir á strönd­inni sem horfðu á þetta hvíta fyr­ir­bæri. Ströndin smám saman skipt­ist, ákveð­inn rad­íus utan um líkið og svo aðrir hlutar strand­ar­innar.“

Um klukkan fimm mætti loks útfar­ar­þjón­usta sem flutti líkið í svartan lík­poka og tók það af strönd­inni. Á meðan líkið var borið burt sigldi skemmti­bátur fram­hjá og skip­stjór­inn hróp­aði:

„This is Tenerife ya-all! Count your bless­ings!“

Stefán endar færsl­una á að hann muni gera einmitt það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi