Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Piporé Yerba Mate te samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni. Teið er frá Argentínu og er það Istanbul market sem flytur það inn til landsins. Varan er innkölluð vegna þess að það greindist of hátt magn af leifum af varnarefninu anthraquinone. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Tilkynningin um innköllunina kom í gegnum RASFF evróska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður.

Hið innkallaða te
Mynd: MAST































Athugasemdir