Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Norrænu læknafélögin: Hrun heilbrigðiskerfis á Gaza er neyðarástand

Sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing nor­rænu lækna­fé­lag­anna um ástandið á Gaza

Norrænu læknafélögin: Hrun heilbrigðiskerfis á Gaza er neyðarástand
Frá Gaza Norrænu lækna­fé­lögin lýsa yfir miklum áhyggjum yfir ástand­inu á Gaza

Lækna­fé­lög á öllum Norð­ur­löndum hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þau lýsa yfir miklum áhyggjum af versn­andi mann­úð­ar­krísu á Gaza.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem birt var í dag 18. ágúst, segir að fjöldi óbreyttra borg­ara hafi orðið fyrir barð­inu á átök­unum og að heil­brigð­is­stofn­anir og starfs­fólk hafi ítrekað orðið fyrir árásum. „Hrun heil­brigð­is­kerf­is­ins á Gaza er neyð­ar­á­stand sem kallar á taf­ar­laust og sam­ræmt alþjóð­legt við­bragð,“ segja for­setar lækna­fé­lag­anna í Danmörku, Finn­landi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð sem und­ir­rita yfir­lýs­ing­una.

Þau benda á að sjúkra­hús séu orðin óstarf­hæf, heil­brigð­is­starfs­fólk vinni við ómögu­legar aðstæður og börnum og öðrum við­kvæmum hópum sé synjað um bráða­þjón­ustu. Skortur á nauð­syn­legum lækn­inga­vörum og hindr­anir á flutn­ingi mann­úð­ar­að­stoðar hafi skilið fjölda fólks eftir án grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Lækna­fé­lögin hvetja rík­is­stjórnir Norð­ur­landa til að beita sér taf­ar­laust í mál­inu. Þau vilja að gripið verði til aðgerða sem tryggi að sjúk­lingar á Gaza fái nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu, bæði á staðnum og með flutn­ingi til með­ferðar erlendis ef þurfa þykir. Þá krefj­ast þau öruggra mann­úð­ar­ganga fyrir afhend­ingu lækn­inga­vara og að alþjóð­leg mann­úð­ar­lög verði virt með vernd heil­brigð­is­starfs­fólks, stofn­ana og flutn­inga. Einnig hvetja þau til diplómat­ískra aðgerða til að koma á var­an­legu vopna­hléi.

„Í stríði verður hlut­verk lækna­stétt­ar­innar að vera skýrt: að verja líf og reisn – og að láta rödd sína heyr­ast þegar þessu er ógnað,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild, í íslenskri þýð­ingu:

Sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing nor­rænu lækna­fé­lag­anna um Gaza

  1. ágúst 2025

Við, lækna­fé­lög Dan­merkur, Finn­lands, Íslands, Noregs og Sví­þjóðar, lýsum yfir djúpri áhyggju vegna áfram­hald­andi og vax­andi mann­úð­ar­krísu á Gaza.

Sem heil­brigð­is­starfs­fólk höfum við miklar áhyggjur af þeim fjölda óbreyttra borg­ara sem hafa orðið fyrir barð­inu og af end­ur­teknum árásum á heil­brigð­is­stofn­anir og starfs­fólk heil­brigð­is­kerf­is­ins. Eyði­legg­ing heil­brigð­is­kerfis Gaza, ásamt áfram­hald­andi hindr­unum á flutn­ingi mann­úð­ar­að­stoðar – þar með talið nauð­syn­legra lækn­inga­vara – hefur leitt til þess að ótelj­andi mann­eskjur hafa ekki aðgang að grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu eða lífs­nauð­syn­legri með­ferð. Sjúkra­hús hafa verið gerð óstarf­hæf, heil­brigð­is­starfs­menn vinna við ómögu­legar aðstæður og börnum og öðrum við­kvæmum hópum er synjað um bráða­þjón­ustu. Hrun heil­brigð­is­kerf­is­ins á Gaza er neyð­ar­á­stand sem kallar á taf­ar­laust og sam­ræmt alþjóð­legt við­bragð.

Við hvetjum nor­rænu rík­is­stjórn­irnar til að grípa til áþreif­an­legra aðgerða til að draga úr þess­ari kreppu, þar á meðal:

  • Að knýja á um að gripið verði til aðgerða til að tryggja að allir sjúk­lingar á Gaza fái nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu – með því að tryggja með­ferð á staðnum og auð­velda skjótan flutn­ing sjúk­linga til með­ferðar erlendis þegar þörf krefur.
  • Að styðja afhend­ingu nauð­syn­legra lækn­inga­vara og mann­úð­ar­að­stoðar með var­an­legum og öruggum mann­úð­ar­göngum.
  • Að stuðla að virð­ingu fyrir alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum og vernd heil­brigð­is­starfs­fólks, stofn­ana og flutn­inga.
  • Að beita diplómat­ískum aðgerðum til að stuðla að var­an­legu vopna­hléi.

Við stað­festum jafn­framt mik­il­vægi lækn­is­fræði­legs hlut­leysis og hvetjum allar fylk­ingar til að virða rétt­indi sjúk­linga og heil­brigð­is­starfs­fólks, óháð póli­tísku eða hern­að­ar­legu sam­hengi.

Norrænu lækna­fé­lögin eru reiðu­búin að styðja þessar aðgerðir og vinna með við­eig­andi inn­lendum og alþjóð­legum aðilum til að tryggja aðgengi að lífs­nauð­syn­legri lækn­is­þjón­ustu.

Í stríði verður hlut­verk lækna­stétt­ar­innar að vera skýrt: að verja líf og reisn – og að láta rödd sína heyr­ast þegar þessu er ógnað.

Und­ir­ritað:

Camilla Noelle Rathcke, for­seti Lækna­fé­lags Dan­merkur
Steinunn Þórð­ar­dóttir, for­seti Lækna­fé­lags Íslands
Niina Koivu­viita, for­seti Lækna­fé­lags Finn­lands
Anne-Karin Rime, for­seti Lækna­fé­lags Noregs
Sofia Rydgren Stale, for­seti Lækna­fé­lags Sví­þjóðar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta