Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu ára drengur illa útleikinn: „Dekkið hafði verið losað á hjólinu hans“

Sonur Lindu er illa útleik­inn eftir að reið­hjól hans brást og hann datt illa og telur móðir hans að ein­hver hafi átt við hjólið

Tíu ára drengur illa útleikinn: „Dekkið hafði verið losað á hjólinu hans“
Slæmt slys Móðirin telur að átt hafi verið við hjólið Mynd: Linda Pálsdóttir

Linda K. Páls­dóttir er móðir tíu ára drengs sem datt af hjól­inu sín. Í gær vakti hún athygli með Facebook-færslu þar sem hún sagði mál­inu.

„Í gær­morgun fór 10 ára sonur minn á fót­bolta­æf­ingu eins og svo oft áður í sumar. Veðrið var fínt svo hann ákvað að fara á hjóli og allt í góðu með það,“ segir Linda en aðeins „rúmum klukku­tíma seinna opn­ast hurðin heima og hann kemur inn hágrát­andi og ein­hver kona sem ég þekki ekki, með honum.“

Dreng­ur­inn hafði dottið á hjól­inu og „konan hjálp­aði honum heim - og er ég mjög þakk­lát henni.“

Linda náði „strax í blautan þvotta­poka til að þurrka alblóð­ugt and­litið á honum og spyr hann hvað hafi eig­in­lega komið fyrir“ og sagð­ist dreng­ur­inn hafa „verið að hjóla heim og verið að fara niður af gang­stétt þegar hann datt bara skyndi­lega, lenti á and­lit­inu og hjólið end­aði ofan á honum.“

Lindu var eðli­lega brugðið mjög og gerði sér strax grein fyrir því að það þyrfti að sauma ein­hver spor í and­litið á syni hennar.

„Ég þurrka á honum and­litið og sé að það þarf að sauma hann. Þegar við erum á leið­inni út í bíl til að fara á slysó segir hann mér að það sé eitt­hvað að hjól­inu sínu, eða dekk­inu nánar til­tekið.“

Linda spurði þá son sinn „hvort það hafi sprungið á dekk­inu og hann dottið við það. Nei sagði hann.“

Linda ákvað að „skoða hjólið snögg­lega og sé að það er í „skralli“ að framan og virk­aði eins og það hefði bara farið í sundur.“

Linda og sonur hennar héldu ferð­inni áfram og fengu á slysó frá­bæra þjón­ustu „og milli þess sem ég hug­hreysti hann fór um í hausnum á mér, hvernig í ósköp­unum hjólið gat bara „hrokkið“ í sundur við að fara niður af gang­stétt. Ég fékk móral yfir því að hafa ekki verið nógu dug­leg að impra á því við dreng­inn að setja hjólið alltaf inní geymslu á nótt­unni, því það eru komnir nokkrir ryð­blettir á það. En hugs­aði samt líka að þetta væri ekki nema 3ja ára gam­alt hjól og það ætti nú ekki að detta bara í sundur útaf nokkrum ryð­blettum.“

Seinna um dag­inn skoð­aði Linda hjólið og velti því fyrir sér „hvernig í ósköp­unum það gat bara dottið í sundur. Allar skrúfur og boltar voru á sínum stað og ekk­ert beyglað eða brotið. Það var þá sem það rann upp fyrir okkur að dekkið hafði verið losað á hjól­inu hans og skrúfum/boltum komið aftur fyrir á sínum stað svo allt liti sem eðli­leg­ast út.“

Linda ætl­aði „varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi, þar sem ég veit að þetta var mikið í gangi fyrir nokkrum árum síðan. Og það er ekki séns að þetta hafi losnað bara að sjálfu sér, því hjólin á heim­il­inu eru tekin í tjékk reglu­lega, pumpað í dekk, smurðar keðjur og allt hert sem hægt er að herða og það eru innan við 2 vikur síðan það var gert síð­ast. Þar að auki ef eitt­hvað hefði losnað eða brotnað þá myndi senni­lega vanta ein­hverjar skrúfur/bolta en svo er ekki. Það var allt á sínum stað.“

Hún bætir þessu við:

„Þar sem dreng­ur­inn var á hjól­inu sínu allan mánu­dag­inn og um kvöldið og hjólaði svo á æfingu þá tel ég lík­legt að dekkið hafi verið losað fyrir aftan Reykja­nes­höll­ina á meðan hann var á æfingu. Það eru sem betur fer mynda­vélar þar og er lög­reglan komin í málið.“

Linda segir að til­gangur hennar með því að segja frá þessu atviki ekki endi­lega vera það að „finna söku­dólg­inn - þó það væri gott að geta rætt við hann og for­eldra hans - en að vekja athygli á þessu og biðja alla for­eldra um að brýna fyrir börnum sínum að þessi „hrekkur“ sem á eflaust að vera fynd­inn er það bara alls ekki og er hrein­lega stór­hættu­legur.“

Hún segir einnig afar mik­il­vægt að „skoða hjólin sín áður en farið er á þau, til að full­vissa sig um að það sé ekk­ert búið að eiga við þau. Dreng­ur­inn minn datt á and­litið og hjálm­ur­inn hans er ónýtur og það þarf varla að spyrja að leikslokum hefði hann ekki verið með hjálm­inn. En þrátt fyrir að hafa verið með hann þá var hann saum­aður - fjögur spor í hök­una - sem var erfitt því hakan var svo tætt - efri vörin var límd saman og fjórar fram­tennur losn­uðu, en brotn­uðu sem betur fer ekki, ræt­urnar eru í lagi en það var ekki hægt að skoða taug­arnar þar sem hann getur ekki opnað munn­inn almenni­lega - hann er allur tættur á efri vör­inni að inn­an­verðu og í gómnum, miklir áverkar á vefjum í munn­holi og miklar inn­vortis blæð­ingar í kjálka, en hann er sem betur fer ekki kjálka­brot­inn. Hann er mar­inn og risp­aður í and­liti, á höndum, bringu og annarri öxl­inni -hann getur ekki borðað neitt nema fljót­andi -hann getur ekki tann­bur­stað sig og þarf ég að þrífa tennur og sárin í munn­inum með eyrnap­inna. Hann getur ekki talað eðli­lega“

Linda biðlar til for­eldra að „ræða við börnin ykkar og brýna fyrir þeim hversu hættu­legt þetta er og alls ekki fynd­inn hrekkur. Og einnig að vera vak­andi yfir sínum eigin hjólum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi