Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Atla Vikari Jónssyni. Hann er 32 ára og sást síðast til hans við Landspítalann í Fossvogi.
Atli er snöggklipptur og með skegg og var hann íklæddur grárri peysu, í gráum joggingbuxum og var í svörtum skóm með hvítum sóla, er síðast sást til hans.
Allir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Atli eru beðnir að hafa samband strax við lögregluna í síma 112.
Uppfært:
Atli Vikar er fundinn, heill á húfi.































Athugasemdir