Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Að búa um lítið barn í kistu er eitthvað sem skilur eftir sig spor“

Óhætt er að segja að Stefán Einar Stef­áns­son sé umdeildur maður sem virð­ist vita hvert hann langar að fara og hvers vegna. Hann er afar skoð­a­naglaður og er lík­lega einn af þeim sem fólk elskar að hata og hatar að elska

„Að búa um lítið barn í kistu er eitthvað sem skilur eftir sig spor“
Stefán Einar Stef­áns­son Umdeildur maður með sterkar skoð­anir og alveg ófeim­inn við að tjá þær Mynd: Facebook

Segja má með sanni að Stefán Einar Stef­áns­son sé umdeildur og um leið afar virkur maður sem virð­ist alltaf vita hvert hann langar að fara og hvers vegna. Ekki er annað hægt en að segja að Stefán Einar sé skoð­a­naglaður og hann er lík­lega einn af þeim Íslend­ingum sem fólk elskar að hata og hatar að elska.

Pat­reks­fjörður, Borg­ar­nes, amma og afi

Stefán Einar Stef­áns­son fædd­ist þann 22. sept­em­ber árið 1983. Hann ólst upp á Pat­reks­firði til tíu ára ald­urs, er fjöl­skylda hans flutti í Borg­ar­nes. Stefán Einar sagði í Einka­lífs­við­tali á Vísis í fyrra að það hafi verið „mikil for­rétt­indi að hafa fengið að alast upp úti á landi í eins ólíkum sam­fé­lögum og raun ber vitni.“

Á ung­lings­ár­unum flutti Stefán Einar frá for­eldrum sínum til afa síns og ömmu eftir að hafa ákveðið að sækja sér menntun í Versl­un­ar­skóla Íslands. Stefáni Einari fannst ekki erfitt að yfir­gefa for­eldra þína er hann fór af möl­inni og lóð­beint inn á mal­bikið; flutti til afa og ömmu:

„Ég var síð­asta barnið á heim­il­inu þannig að þá voru þau loks­ins laus. En ég naut þeirra for­rétt­inda að flytja til afa míns og ömmu sem var fólk um sjö­tugt á þeim tíma og kynn­ist þeim þá öðru­vísi með því að búa hjá þeim. Það eru hlutir sem maður kann líka að meta og lærir að meta seinna meir þegar þau eru löngu fallin frá og maður á þá meiri og dýpri sam­fylgd með þeim heldur en ella hefði orðið.“

Áfall í Versló

Stefán Einar blómstr­aði í Versló, og þá sér­stak­lega í félags­líf­inu - var til að mynda í Gettu betur og ýmsu öðru tengt félags­líf­inu í skól­anum. Honum sótt­ist námið ágæt­lega þótt mik­ill tími færi í félags­lífið og hann talar um Versló af hlýju og virð­ingu. En þótt Stefáni Einari hafi gengið vel heilt yfir í Versló náði hann þó ekki að útskrif­ast á réttum tíma því hann féll í tveimur fögum í prófum til stúd­ents; lét það þó ekki trufla sig neitt mikið. Útskrif­að­ist að hausti í stað vors. Hann sagði fallið hafa verið for­eldrum sínum tölu­vert áfall er hann féll á stúd­ents­próf­inu, og þá sér­stak­lega móður hans er búin var að skipu­leggja stúd­ents­veisl­una og hann sagði eft­ir­far­andi í við­tals­þætt­inum Einka­lífið:

„Það var nú eig­in­lega svona þrá­kelkni, mér þótti þýska mjög leið­in­leg og ég nennti ekki að læra stærð­fræði þó hún hafi legið þokka­lega fyrir mér. Þannig ég féll í þýsku og óles­inni stærð­fræði.“

Um fallið sagði hann að það hafi verið „for­eldrum mínum tals­vert áfall, þau höfðu alltaf staðið í trú um það að ég væri voða­lega klár og gæti leyst þetta vel úr hendi. Ég man að þegar mamma fékk frétt­irnar, hún var búin að skipu­leggja stúd­ents­veisl­una mína og ætl­aði að fara að bjóða öllum vin­konum sínum úr MR upp í Borg­ar­nes og hún fékk frétt­irnar um að það yrði ekki, að þá fór hún og stakk upp allan kart­öflu­garð­inn heima. Ég hef aldrei séð konu um sex­tugt taka eins hressi­lega til hend­inni í einum kart­öflu­garði og þetta síð­degi.“

Guðfræði og sið­fræði

Stefán Einar fór í guð­fræði eftir útskrift úr Versló, og hefur hann við­ur­kennt að mörgum hafi þótt það hafa verið und­ar­leg ákvörðun. Hann fór í Versló vegna áhuga á við­skiptum og lög­fræði og „eðli máls­ins sam­kvæmt kom guð­fræðin því mörgum á óvart“ og hann bætti því við að „fólk hélt bara að ég hefði dottið á höf­uðið.“

Stefán Einar segir ástæðu þess að hann hafi valið guð­fræði vera sá að hann sé krist­innar trúar, en segir for­eldra sína þó ekki hafa lagt mikla áherslu á trúna er hann var að vaxa úr grasi. „Þau voru bæði krist­innar trúar en ég fór í sunnu­daga­skól­ann sjálfur, að eigin frum­kvæði og með systrum mínum fyrst á Pat­reks­firði og svo í Borg­ar­nesi og var í KFUM, fór í Vatna­skóg á sumrin og annað. Þetta voru hlutir sem voru mér mjög eðl­is­lægir og eðli­legir og ég hef lengi haft áhuga á starfi kirkj­unnar og ég hefði alveg getað hugsað mér að ger­ast prestur. Á tíma­bili velt ég því fyrir mér og gerði reyndar til­raun til þess en það varð ekki og ég held reyndar að það hafi bara verið blessun, bæði fyrir mig og kirkj­una.“

Stefán Einar hefur sagt kirkj­una ekki kalla á hann eða til hans þó hann hafi ávallt verið „trú­aður og haft áhuga á störfum kirkj­unnar.“ Hann hefur sagt frá því að stundum er hann hittir gamla félaga úr guð­fræði­deild­inni spyrja þeir hann hvenær hann ætli að reyna að kom­ast að hjá kirkj­unni.

Og skyldi það koma til greina?

„Nei. En ég hef reyndar sagt það að lífið er þannig að maður á aldrei að úti­loka neitt og hver veit nema maður endi sem prestur í ein­hverju hrökk­brauði í ein­angr­uðum dal þar sem maður er best geymdur, með fáum sálum til að sinna. En eins og staðan er núna þá kemur það ekki til greina.“

Stefán Einar „trúir því sem lúth­erska kirkjan boðar, það er á hinn almenna prest­dóm. Að allir kristnir menn séu prestar í þeim skiln­ingi að þeir eigi að sinna náung­anum og láta gott af sér leiða.“

Hin ýmsu störf: Dán­ar­fregnir og jarð­ar­farir

Stefán Einar hefur rætt opin­ber­lega um óvenju­lega og krefj­andi reynslu af því að starfa á útfar­ar­stofu á meðan hann var í háskóla­námi; starfið fólst í að sinna útköllum er and­lát bar að garði: Í heima­húsum sem og á stofn­unum; og að sjá um und­ir­bún­ing fyrir útfarir.

„Á vet­urna var ég reglu­lega kall­aður út á næt­urnar til að sækja látna, koma þeim í lík­hús og und­ir­búa frek­ari útför. Það var ekki óal­gengt að ég hefði verið á bak­vakt alla nótt­ina og mætti svo beint í tíma í háskól­anum. Þetta er starf sem krefst virð­ingar og umhyggju, ekki bara gagn­vart þeim látnu heldur einnig gagn­vart aðstand­endum,“ sagði hann og benti á að hlut­verk útfar­ar­stjóra væri ekki ein­ungis að sjá um að ferlið færi fram á réttan hátt heldur einnig að hlusta á óskir aðstand­enda.

„Mik­il­vægur þáttur starfs­ins er að tryggja að fólk fái að kveðja á sínum for­sendum. Það þarf að ákveða hvernig hinn látni er klæddur, hvernig útförin fer fram og hvaða siðum er fylgt. Þetta eru hlutir sem skipta fólk miklu máli.“

Hann ræddi einnig um sam­fé­lags­legar breyt­ingar í tengslum við and­lát; færði í tal að sjálfs­víg, bráða­kvilli og jafn­vel morð væru hluti af starf­inu, þó þau síð­ast­nefndu væru sjald­gæf:

„Þetta er hluti af líf­inu, en við höfum í raun fjar­lægt dauð­ann frá sam­fé­lag­inu. Flestir deyja á stofn­unum í dag, en áður var það mun algeng­ara að fólk léti lífið heima hjá sér, innan um sína nán­ustu.“

Stefán Einar sagði eitt sinn að erf­ið­asta verk­efnið væri þegar börn deyja og slíkt væri eitt­hvað sem eng­inn vegur væri að gleyma eða hrein­lega að sætta sig við.

„Það er ekk­ert sem venst við það. Að und­ir­búa lítið barn fyrir útför er eitt­hvað sem maður gleymir aldrei. Það er eitt­hvað svo óhugs­andi við það að for­eldrar þurfi að fylgja barni sínu til grafar. Það er ein­fald­lega ekki eðli­legt. Það er eitt­hvað sem maður gleymir ekki. Að búa um lítið barn í kistu er eitt­hvað sem skilur eftir sig spor.“

Á meðal ann­arra starfa sem Stefán Einar hefur tekið sér fyrir hendur á lífs­leið­inni hingað til eru fram­kvæmda­stjóri Hins íslenska bibl­íu­fé­lags, stunda­kenn­ari í sið­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík og blaða­mennska hjá Morg­un­blað­inu síðan 2015. Þá hefur hann einnig sinnt „ráð­gjafa­störfum fyrir hin ýmsu fyr­ir­tæki, stofn­anir og félög vegna setn­ingar siða­reglna og sam­fé­lags­á­byrgrar stefnu.“

Stefán Einar hefur „kennt sið­fræði hjá fyr­ir­tækjum og stofn­unum, meðal ann­ars við end­ur­menntun Háskól­ans á Akureyri og Þekk­ing­ar­net Aust­ur­lands“ og haldið fyr­ir­lestra „hér á landi og erlendis um hrun banka­kerf­is­ins og þá lær­dóma sem af því má draga“ segir Stefán Einar sem er með MA próf í við­skiptasið­fræði og emb­ætt­is­próf í guð­fræði, BA.

Og sið­fræði og sið­ferð­is­leg spurs­mál eru Stefáni Einari eðli­lega hug­leikin, enda leit­aði hann sér mennt­unar á því sviði.

„Ég vitna stundum í fræga ræðu sem Robert Kennedy flutti í Suður-Afríku fyrir ára­tugum síðan, 1966 ef ég man rétt, þar sem hann segir að sið­ferð­is­legt hug­rekki, það er að segja hug­rekki til þess að tala máli þess sem rétt er og satt er í sam­fé­lag­inu, það er fágæt­ari eig­in­leiki heldur en hug­rekki í orr­ustu. Vegna þess að fólk er svo hrætt við að kalla yfir sig dóm eða reiði sam­fé­lags­ins eða sam­starfs­manna sinna.“

Þá hefur Stefán Einar þó nokkra reynslu af „félags­störfum“ og var hann meðal ann­ars „for­maður Varð­bergs, sam­taka ungs áhuga­fólks um vest­ræna sam­vinnu 2009-2010. Gegndi trún­að­ar­störfum á vett­vangi Sjálf­stæð­is­flokks­ins“ og sat í stjórn „Guð­fræði­stofn­unar HÍ 2007-2009“ og var for­maður „Félags guð­fræði­nema við Háskóla Íslands árin 2005 til 2007.“

Kjörinn for­maður VR

Árið 2011 var Stefán Einar kjör­inn for­maður VR og hlaut hann 20,6 pró­sent atkvæða í kosn­ingu, sem dugði til sig­urs, en alls voru sjö í fram­boði og var kjör­sókn sautján pró­sent.

Hann hefur greint frá því að til­viljun hafi orðið til þess að skorað hafi verið á hann af stjórn­ar­mönnum í félag­inu að bjóða sig fram, er hann sinnti ráð­gjöf fyrir stjórn­ina vegna vinnu hans í Háskól­anum í Reykja­vík.

„Lífið er bara þannig. Við vitum það öll þegar við horfum yfir lífs­hlaupið sem er að baki, þá sjáum við að það eru ótrú­lega margar til­vilj­anir sem valda því að við erum á þeim stað sem við erum á í dag. Það að við skulum sitja hér saman á móti hvor öðrum er í raun röð kannski millj­óna til­vika og ein­hverra ákvarð­ana sem eru ekk­ert endi­lega mjög með­vit­aðar.“

Stefán Einar segir að það hafi verið gengið hart á eftir honum að bjóða sig fram. „Ég þurfti nú að ganga úr skugga um það að þetta væri ekki falin mynda­vél og ég vissi að það væri ekki verið að steggja mig því ekki var ég að fara að ganga í hjóna­band og benti þeim á að ég var á þessum tíma 27 ára og óharðn­aður enn.“

Stefán Einar sat ein­ungis tvö ár sem for­maður, því í næstu kosn­ing­um um emb­ættið tap­aði hann stórt gegn Ólafíu B. Rafns­dótt­ur; hlaut hún 76 pró­sent atkvæða en Stefán Einar fékk 24 pró­sent.

„Ég er 27 ára, þannig að þegar ég tapa kosn­ingum þá er ég 29 ára atvinnu­laus fyrr­ver­andi verka­lýðs­for­ingi. Hugsaðu þér örlögin.“

Þegar Stefán Einar tók slag­inn árið 2011 og bauð sig fram sem for­mann VR voru hans „helstu áherslur“ að taka harðar á því „sið­ferð­is­lega vanda­máli sem launa­munur kynj­anna er“ og sagði að það sé „ólíð­andi að 10% munur mælist milli kynj­anna. Ég kynni nýjar leiðir til þess að sporna gegn þessu vanda­máli. Forysta VR þarf að þrýsta á um auk­inn kraft í atvinnu­sköpun. Íslenskt sam­fé­lag þolir ekki að atvinnu­leysi mælist yfir 8%. VR ber skylda til að láta til sín taka í þessum efnum! Kanna þarf mögu­leik­ann á því að VR ráð­ist í stofnun fast­eigna­fé­lags sem geri félags­mönnum kleift að leigja sér hús­næði á við­ráð­an­legum kjörum. Margir hafa lent í erf­ið­leikum með fast­eignir sínar og nauð­syn­legt er að fjölga búsetu­úr­ræðum fólks á kom­andi árum.“

Þrátt fyrir hið stóra tap gegn Ólavíu lagð­ist Stefán Einar eigi í bælið og breiddi alls ekki yfir sig; hélt áfram sinn veg og fann tæki­færin hér og þar. Var lítið að barma sér og sneri kompás sínum annað kok­hraustur og með engin kíló af kvíða í kvið­inum. Svo vitað sé.

Hefur gagn­rýnt Sjálf­stæð­is­flokk­inn harð­lega

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heill­aði Stefán Einar fyrir margt löngu síðan og hefur hann haldið tryggð við flokk­inn þótt ýmis­legt hafi gengið á. Þótt Stefán Einar hafi lengi verið með­limur í flokknum og auð­vitað gall­harður stuðn­ings­maður hans - þá hefur hann eigi ávallt verið sáttur með yfir­stjórn hans og hefur hann í raun alltaf verið ófeim­inn við að gagn­rýna eigin flokk.

Árið 2009 sagði hann sig úr stjórn Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, SUS. Varðandi ástæð­una sagði Stefán Einar að Geir H. Haarde hafi brugð­ist sem for­maður þegar hann tók við styrkjum frá FL Group og Lands­bank­anum. Þá sé ályktun SUS, þar sem lof er borið á fram­göngu Geirs í mál­inu, úr öllum takti við raun­veru­leik­ann.

Árið 2023 sagði Stefán Einar Sjálf­stæð­is­flokk­inn vera gagns­lausan, getu­lausan og þurfa frí frá völdum. Hann gagn­rýndi flokk­inn harð­lega í ræðu sem hann hélt á laug­ar­dags­fundi Sjálf­stæð­is­fé­lags Kópavogs. Í ræð­unni sagði Stefán Einar til að mynda að ekk­ert væri að marka kosn­inga­lof­orð flokks­ins og að báknið sem flokks­menn segj­ast hata hafi orðið til undir stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Stefán Einar kall­aði eftir því að flokk­ur­inn færi í stjórn­ar­and­stöðu, þó svo að hann ótt­að­ist að með því myndi flokk­ur­inn missa tök sín og völd og yrði mögu­lega ekki lengur miðja íslenskra stjórn­mála.

„Nú er að nýju raun­veru­leg hætta á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missi sinn sess sem burða­rás stjórn­mála núna, skil­greindur út frá þing­styrk eða atkvæða­vægi. Það ger­ist á sama tíma og nú stytt­ist í að einn og hálfur ára­tugur verði lið­inn frá því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leiddi síð­ast rík­is­stjórn, ef und­an­skildir eru fáir mán­uðir á árinu 2017 þegar furðu­stjórn flokks­ins með Viðreisn og Bjartri fram­tíð var við lýði.“

Stefán Einar við­ur­kenndi að báknið hafi orðið til á vakt flokks­ins, eitt­hvað sem Sjálf­stæð­is­menn hafa ekki viljað við­ur­kenna.

„Nýfram­kvæmdum sé furðu­lega for­gangs­raðað, til dæmis ný skrif­stofu­bygg­ing Alþingis, ný skrif­stofu­bygg­ing fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið og utan­rík­is­ráðu­neytið taki yfir drjúgan hluta Lands­banka­hall­ar­innar. Þetta ger­ist þrátt fyrir að þjón­ustan auk­ist ekki. Fólk finni ekki fyrir bættri þjón­ustu. Biðlistar stytt­ist ekki og Land­spít­al­inn virð­ist sífellt fjársveltur. Flokk­ur­inn hefur ekki burði til þess að breyta kerf­inu,“ sagði Stefán Einar og benti á að það hafi verið Sjálf­stæð­is­menn er hækk­uðu skatta á fyr­ir­tæki en dældu fjár­munum í ýmsa styrki.

„Stjórn­mála­flokkar eru komnir á full­komið fram­færi rík­is­ins. Fjöl­miðl­arnir einnig á sama tíma og 6,2 millj­örðum er dælt í RÚV. Bóka­út­gáfan er sífellt háð­ari opin­berum styrkjum. Meira að segja bíla­leig­urnar þiggja nú styrki frá rík­inu. Bara Bíla­leiga Akur­eyrar hagn­að­ist um 1,8 millj­arða króna í fyrra,“ sagði Stefán Einar sem við­ur­kenndi einnig að „krísan í útlend­inga­málum“, sem flokks­menn kvört­uðu sáran yfir, væri Sjálf­stæð­is­flokknum að kenna.

„Við höfum brugð­ist í mál­efnum landamær­anna þar sem algjört stefnu­leysi og and­lits­laus nefnd hefur opnað fyrir flóð­gáttir fólks­flutn­inga til lands­ins á skökkum for­sendum. Ekkert annað ríki Evrópu hefur haldið svo slæ­lega á sínum málum,“ sagði hann. „Allt eru þetta dæmi sem þreyta Sjálf­stæð­is­menn, og það sem verra er – margt það fólk sem væri lík­legt til þess að kjósa flokk­inn ef það tryði því að það væri eitt­hvað að marka lof­orðin sem hann gefur. Er það sjálf­stæð­is­stefnan sem hefur misst erindi sitt? Eða höfum við brugð­ist?“

Stefnt vegna verk­falls­brots

Stefán Einar lenti í harðri rimmu við Blaða­manna­fé­lag Íslands er verk­fall blaða­manna stóð yfir fyrir sex árum síðan. Þá var honum stefnt af Blaða­manna­fé­lag­inu fyrir að hafa gengið í störf vef­blaða­manna. Hann segir að á þessum tíma, hafi hann gengið í sín eigin störf líkt og yfir­menn megi gera til að halda uppi lág­marks­starf­semi og hann hafi „litið svo á að þar hafi verið um örygg­is­mál fyrir þjóð­ina að ræða.“

Stefán Einar rifj­aði upp í áður­nefndu Einka­lífs­við­tali Vísis „eitt eft­ir­minni­leg­asta atvikið frá þessum tíma“ sem hann sagði hafa verið þegar „núver­andi frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu kall­aði mig og kollega minn stéttsvik­ara, það er svona hug­tak sem maður hafði ekki heyrt bara síðan í Gúttó­slagnum, úr gamla Sovétinu. Við fengum yfir okkur hol­skeflur, líka frá sam­starfs­mönnum sem töldu að við stæðum ekki nægi­lega með okkar kol­legum.“

Krefj­andi spyrill

Það þykir ekki heiglum hent að fara í við­tal hjá Stefáni Einari sem seg­ist taka alla sömu tökum er koma til hans í við­tal.

„Ég get bara full­yrt að ég legg mig allan fram um það að beita menn sömu hand­tökum hvaðan sem þeir koma. Ég held hins vegar að það sé miklu dýr­mæt­ara fyrir áhorf­endur og þá sem neyta þeirra frétta eða upp­lýs­inga sem ég ber á borð að vita hvaðan ég kem. Menn vita bara nákvæm­lega fyrir það hvað ég stend og hver mín lífs­skoðun er.“ Sagði hann þetta í marg­um­töl­uðu Einka­lífs­við­tali.

Hann segir ekki fara fyrir því sama í fram­göngu ýmissa ann­arra fjöl­miðla­manna er taki fólk í við­töl og „þyk­ist vera ofboðs­lega heilagir og hlut­lausir. Jafnvel þannig að það sé líkt og þeir hafi ekki skoðun á nokkrum sköp­uðum hlut. Og það er fals. Það er ekki heið­ar­legt í mínum huga. Af því að svo sjáum við þetta sama fólk taka með mjög mis­mun­andi hætti á við­mæl­endum sínum.“

Stefán Einar rifjar upp er hann fékk Katrínu Jak­obs­dóttur sem gest í Spursmál, fyrst allra for­seta­fram­bjóð­enda fyrir síð­ustu for­seta­kosn­ingar. Þá var hann af ein­hverjum sak­aður um til­raunir til að fella Katrínu, en síðar hafi komið í ljós að allir fram­bjóð­endur hafi fengið sömu með­ferð­ina, krefj­andi og ágengar spurn­ingar.

„En það laukst upp fyrir mér á einum tíma­punkti þegar ég var að gera upp þetta mál að Katrín Jak­obs­dóttir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafði aldrei lent í krefj­andi við­tali í íslenskum fjöl­miðli fram að þessu við­tali. Hún hafði alltaf fengið allt aðra með­ferð í við­tölum heldur en aðrir stjórn­mála­menn. Og það segir manni að það er eitt­hvað brogað í kerf­inu að einn stjórn­mála­maður virð­ist fá frípassa í umræð­unni á meðan aðrir eru ein­hvern veg­inn alltaf settir í vörn og stillt upp við vegg. Þar get ég bara nefnt mann eins og Bjarna Bene­dikts­son en það er hægt að nefna fleiri í því sam­bandi.“

Sorgin og sökn­uð­ur­inn

Stefán Einar var alinn upp á heim­ili þar sem borin var „mikil virð­ing fyrir bók­menntum“ og segir Stefán Einar að for­eldrar hans hafi átt „geysi­legt bóka­safn“ - en þau lét­ust bæði með stuttu milli­bili.

„Þau voru á átt­ræð­is­aldri þannig þau höfðu lifað langa og góða ævi en hefðu svo sem átt að lifa lengur. Pabbi féll frá vegna krabba­meins og svo var mamma bráð­kvödd átta mán­uðum síðar og það er auð­vitað dálítið sér­stakt. Ég ætla ekki að setja mig í hlut­verk fórn­ar­lambs, ég er fer­tugur og fékk að njóta for­eldra minna í öll þessi ár en það er auð­vitað sér­stakt að bera kistu for­eldra sinna og leggja þau til hinstu hvílu. Ég held að flestir sem hafi átt góða for­eldra sem þau gátu leitað til lendi í því mjög reglu­lega að finna fyrir þörf til þess að heyra í þeim og leita til þeirra og leita ráða hjá þeim.“

Stefán Einar seg­ist sjálfur vera að kljást við það í dag að geta ekki lengur leitað ráða hjá þeim. Það hafi hann verið dug­legur að gera, ekki síður hjá mömmu sinni en pabba. Nú geti hann ekki lengur leitað ráða, heldur bara nýtt sér vel reynsl­una af því að hafa leitað til þeirra.

„Það er svo eft­ir­minni­legt og svaka­legt að það gerð­ist nokkrum sinnum á þessum fjöru­tíu árum og eftir að ég varð full­orð­inn í raun, að ég leit­aði ráða hjá pabba og fylgdi ekki ráðum hans. Semsagt, ég leit­aði til hans en ákvað svo að taka aðra leið og í öll skiptin var ég rek­inn til baka og átt­aði mig á því að ég hefði átt að taka ráðum hans.“

Möguleg fram­tíð í stjórn­málum

Ein­hverjir hafa velt því fyrir sér hvort þing­fram­boð sé framundan hjá fjöl­miðla­mann­inum Stefáni Einari sem hefur nú þegar meira en nóg fyrir stafni; auk þess að vinna sem fjöl­miðla­maður rekur hann inn­flutn­ings­fyr­ir­tækið Kampa­vins­fjelagið og þá er hann með­eig­andi í bóka­út­gáfu.

„Ég veit ekki hvað morg­un­dag­ur­inn ber í skauti sér. Ég veit það hins­vegar að það eru margir að velta þessu fyrir sér og það er ekk­ert óeðli­legt af því að ég er að tjá mig mikið um sam­fé­lags­mál og er óhræddur við það,“ segir Stefán Einar við Vísi.

„Svo er stóra spurn­ingin: Hvort kem­urðu því frekar til leiðar með því að fara í fram­boð, ná kjöri á þing og setj­ast í hóp þess­ara 63 þing­manna sem setja okkur lög, mis­gáfu­leg, eða ger­irðu það með því að hafa áhrif á umræð­una með því að halda stjórn­mála­mönn­unum við efnið, með því að gefa út barna­bækur sem auka læsi og kannski gleðja einn og einn mann yfir góðu kampa­víns­glasi? Ég veit ekki alveg svarið við þess­ari spurn­ingu en sumir halda ein­hvern veg­inn að það hljóti að vera að menn sem hafi áhuga á sam­fé­lags­málum hljóti að vilja kom­ast inn á þing eða í borg­ar­stjórn. Það er ekki hinn aug­ljósi far­vegur í mínum huga.“

Ástin og einka­lífið

Stefán Ein­ar var í þrettán ára löngu sam­bandi með Söru Lind Guðbergs­dótt­ur lög­fræð­ingi - voru gift í ell­efu ár og eign­uð­ust saman tvö börn - en þau skildu nýverið og sagði Stefán Einar þetta af því til­efni í sam­tali við mbl.is.

„Sum­ar tek­ur við af vetri og það minn­ir á að allt er breyt­ing­um háð. Fyr­ir nokkru síðan til­kynnt­um við fólk­inu sem stend­ur okk­ur næst að við höf­um ákveðið að halda hvort í sína átt­ina eft­ir þrett­án ára sam­band og ell­efu ára hjóna­band. Þar eru efst á baugi auð­vitað dreng­irn­ir okk­ar tveir sem eru það dýr­mæt­asta sem lífið hef­ur fært okk­ur en líka ferða­lög um ver­öld víða, 45 barna­bæk­ur, bóka­þýð­ing­ar og –skrif og svo margt, margt annað sem við varð­veit­um áfram sam­an og sitt í hvoru lagi. Við lít­um hvorki á þetta sem strand eða skip­brot þótt vissu­lega sé þung­ur sjór þegar ákvörðun af þessu tagi er tek­in. Það eru skugga­skil. Í þeim aðstæðum má velja á milli þess að horfa á dökku hliðarn­ar eða þær ljósu. Við vit­um hvoru meg­in okk­ar augu enda. Þannig höf­um við alltaf haft það.“

Samband Stefáns Einars og Söru var nokkuð áber­andi á sínum tíma og fjall­aði DV um þau á þann hátt að þeim mis­lík­aði mjög; sem leiddi til þess að bæði Stefán Einar og Sara höfð­uðu mál á hendur miðl­inum.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur gerir spurn­ing­una um hver sé opin­ber per­sóna að mik­il­vægu atriði í dómi sem féll í gær. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur sýknað DV í meið­yrða­máli Stefáns Einars Stef­áns­sonar fyrrum for­manns VR. Stefán Einar stefndi DV fyrir 15 ummæli sem birt­ust í blað­inu vegna ráðn­ingar Söru Lindar Guð­bergs­dóttur, sem þá var laga­nemi, í yfir­manns­starf hjá VR, segir í frétt DV um þessi mála­ferli. Blaðið bendir enn fremur á að Sara Lind hafi stefnt blað­inu vegna sömu ummæla og fengið tvö af ummæl­unum 15 dæmd ómerk þar sem hún er ekki opin­ber per­sóna. Ummælin sem hér um ræðir eru: Ólga vegna ást­konu og Laganemi gerður að yfir­manni.

Sam­sær­is­kenn­inga­smið­ur­inn og allar ósönn­uðu full­yrð­ing­arnar

Stefán Ein­ar hefur sagt eitt og annað opin­ber­lega í gegnum tíð­ina er stuðað hefur fólk en jafn­framt því hefur hann mjög lík­lega glatt tals­vert marga með orðum sínum. Hann hefur full­yrt að Ís­lend­ing­ar hafi fjár­magn­að hern­að­ar­mann­virki Ham­as með fram­lagi til mann­úð­ar­hjálp­ar; hvatti hann til þess að með­lim­um sam­tak­anna yrði hrein­lega „eytt af yf­ir­borði jarð­ar“ í þeim til­gangi að verja óbreytta borg­ara um víða ver­öld - líka hér á Ís­landi.

Ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið var lítt hrifið af kenn­ing­u Stefáns Einars þess efnis að flótta­manna­hjálp Palest­ínu renni til hern­að­ar Ham­as-sam­tak­anna. Hafnaði utan­rík­is­ráðu­neytið alfarið kenn­ingu hans um það að fjár­fram­lög Íslands til flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna gagn­vart Palest­ínu séu notuð til þess að fjár­magna hryðju­verka­starf­semi Hamas.

„Fjár­magnið sem góða fólkið á Íslandi lætur af hendi rakna frá öðrum, svo það geti sjálft sofið betur og hossað sér. Það er alltaf þægi­legra að gera það á ann­arra kostnað, fremur en sinn eigin,“ sagði Stefán Einar á sínum tíma á Facebook-síðu sinni. Gekk hann enn lengra í annarri færslu; þá deildi hann frétt mbl.is þess efnis að Hamas-liðar væru grun­aðir um að hafa und­ir­búið árásir í Evrópu og var­aði hann við áhrifum þess að hægja á aðgerðum til að upp­ræta Hamas-liða á Gasa­svæð­inu.

„Næst koma þeir á eftir okkur. Og eina vonin er sú að hægt sé að eyða þeim af yfir­borði jarðar. Takist það ekki munu sak­lausir borg­arar í Evrópu, jafn­vel á Íslandi, liggja í valnum.“

Stefán Einar var spurður um heim­ildir fyrir því að fjár­mögn­unin sé með þeim hætti er hann full­yrti um. Svaraði hann með því að birta vefslóð á síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins; þar sem til­kynnt var um að Ísland hafi tvö­faldað fram­lag sitt til mann­úð­ar­að­stoðar á Gasa. Má af þessu svari skilja að Stefán telji fé sem lagt er til Palest­ínu­flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna fari beint í að fjár­magna starf­semi Hamas-sam­tak­anna.

Hann lagði orð í belg um mál­efni Ísraels og Palest­ínu undir Facebook-færslu Karenar Kjart­ans­dóttur almanna­teng­ils - lýsti hann áhyggjum sínum af mót­mælum almenn­ings gegn við­skiptum íslenskra fyr­ir­tækja við ísra­elska færslu­hirða­fé­lagið Rapyd, en for­stjóri og eig­andi félags­ins hefur opin­ber­lega hvatt til útrým­ingar allra Hamas-liða, eins og Stefán Einar hefur gert.

„Hvar halda blá­bján­arnir að þetta endi?“ spurði Stefán Einar í tengslum við snið­göngu á ísra­elska félag­inu Rapyd: „Þetta er orðið gjör­sam­lega geð­trufluð slauf­un­ar­menn­ing.“

Ljóst er að „kenn­ing­arnar“ í yfir­lýs­ingum Stefáns hafa komið áður fram; stofn­anir eins og UNRWA hafa verið sak­aðir um að styðja við hernað Palest­ínu­manna um langt skeið - með beinum eða óbeinum hætti. Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna gagn­vart Palest­ínu hefur gefið út yfir­lýs­ingu þar sem slíkum ásök­unum er algjör­lega hafnað; þær sagðar órök­studdar. Þá kall­aði stofn­unin eftir því að blaða­menn, líkt og Stefán Einar, er birt hafa slíkar full­yrð­ingar, færi rök fyrir sínu máli eða dragi til baka ásak­an­irnar. Það hefur Stefán Einar ekki gert. Ekki enn í það minnsta.

Land­spít­al­inn og andúð á inn­flytj­endum

Stefán Einar Stef­áns­son fór mik­inn í við­tali hjá Sölva Tryggva­syni um inn­flytj­enda­mál nýverið og ræddi ansi frjáls­lega um meinta fram­göngu múslima í íslensku sam­fé­lagi: Hélt því bein­línis fram að á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans væri „stand­andi vanda­mál“ vegna kven­fyr­ir­litn­ingar sem og miklum yfir­gangi frá hópi karl­manna.

„Gríð­ar­lega ljót fram­koma gagn­vart starfs­fólki og mjög ljót fram­koma gagn­vart kon­unum með nýfædd börn, vegna þess að þetta eru hópar manna sem fyr­ir­líta konur,“ sagði Stefán Einar meðal ann­ars.

Fjallað var um frá­sagnir Stefáns Einars af fæð­ing­ar­deild­inni í fjöl­miðlum, meðal ann­ars á Mannlífi.

„Þetta er veru­leik­inn, en heil­brigð­is­starfs­fólkið myndi aldrei mæta í svona við­tal og ræða opin­skátt um það. Það ætlar ekki að lenda í þessum hnífa­mönnum eða þessum yfir­gangs­seggjum, sem telja að þeir geta komið hér eins og fínir menn og vaðið yfir sam­fé­lagið á skítugum skónum.“

Hann sagði einnig um þetta mál er varðar spít­ala og inn­flytj­endur.

„Það ríkir þögg­un­ar­menn­ing innan spít­al­ans um þetta mál. Og þetta er af sama toga. Ég hef líka rætt við lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga sem koma að bráða­mót­tök­unni og fleiri deildum spít­al­ans sem lýsa gríð­ar­legu álagi af völdum inn­flytj­enda­straums­ins, hæl­is­leit­enda­straums­ins.“

Það var eng­inn sem steig fram og tók undir með Stefáni Einari af starfs­fólki spít­al­ans og var heil­brigð­is­starfs­fólki hrein­lega brugðið við þessi orð Stefáns Einars:

„Þessi ummæli komu starfs­fólki kvenna­deildar sem ég hef rætt við í opna skjöldu. Þau kann­ast ekki við þessar lýs­ingar. Afar sjald­gæft er að aðstand­endur sýni hegðun sem telja má ógn­andi og ekki hefur verið tekið eftir aukn­ingu á slíkum til­vikum,“ sagði Hulda Hjart­ar­dóttir, sem er yfir­læknir á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans, en hún og fleiri úr heil­brigð­is­stétt kann­ast ein­fald­lega ekki við það sem kom fram í máli Stefáns Einars um inn­flytj­endur og það er hrein­lega ekk­ert sem fram hefur komið sem rök­styður orð Stefáns Einars um karl­kyns inn­flytj­endur á íslenskum spít­ölum sem eru vondir við konur með nýfædd börn.

Stefán Einar hefur tjáð sig um meint kyn­þátta­hatur múslima gegn hvítum Íslend­ingum og hefur tekið fyrir dæmi, bæði í Breið­holts­skóla og á Kvenna­deild Land­spít­al­ans. En það vantar yfir­leitt rök­stuðn­ing og heim­ildir í orð­ræðu Stefáns Einars um inn­flytj­endur.

Hann gagn­rýndi nýverið Reykja­vík­ur­borg fyrir að hafa dregið fána Palest­ínu að húni fyrir utan ráð­húsið - en það var gert til að sýna sam­stöðu með íbúum Palest­ínu. Sagði hann að fán­inn sé fáni ríkis er lýtur stjórn hryðju­verka­sam­taka og hóps manna er hafa það að mark­miði að láta óvini sína drepa sem flesta af þeirra eigin þjóð. Í kjöl­farið - ein­hverra hluta vegna - beindi Stefán Einar orðum sínum sér­stak­lega að Alexöndru Briem borg­ar­full­trúa.

„Þarna sést meðal ann­arra Alex­andea Briem á mynd­inni. Hún er kyn­skipt­ingur.“

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræð­ingur og fyrrum for­maður Trans Ísland, hefur sagt opin­ber­lega að slíkt sé röng orða­notkun og ýti undir for­dóma. Og enn er ekki vitað hvers vegna Stefán Einar beindi orðum sínum að borg­ar­full­trú­anum Alexöndru í þessu sam­hengi.

En Stefán Einar hélt áfram í mál­flutn­ingi sínum um flöggun palest­ínska fán­ans við ráð­húsið og var hvergi bang­inn.

„Þeir myrða það fólk köldu blóði. Einnig sam­kyn­hneigða og jafn­vel konur sem grun­aðar eru um fram­hjál­hald eða laus­læti. Óvina­þjóðin sem hún hatar eru Ísraelar. Í Tel Aviv er eitt frjáls­lyndasta og stór­kost­leg­asta lýð­ræð­is­sam­fé­lag sem heim­ur­inn hefur kynnst. Hún [Alex­andra Briem, inn­skot blm] óskar þess að Hamas-dauða­sveit­irnar hafi sigur á því sam­fé­lagi!“

Að þessu sögðu er óhætt að segja að Stefán Einar sé maður sem er til í að láta í sér heyra og forð­ast ekki átök. En það sem er að miklu leyti ein­kenn­andi fyrir Stefán Einar þegar á heild­ina er litið er það að mað­ur­inn er alltaf umdeildur og alltaf áhuga­verður - sama hvaða sjón­ar­horn er notað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi