Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pétur lætur Þorgerði Katrínu hafa það óþvegið

„Ísland stendur með og styrkir Ísrael í þjóð­ar­morði, það er skýrt, þó að gas­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar séu metn­að­ar­fullar þá stendur raun­veru­leik­inn eftir.”

Pétur lætur Þorgerði Katrínu hafa það óþvegið
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Margir telja að loka­stig þjóð­ar­morðs­ins sé að hefj­ast Mynd: Víkingur

Pétur Eggerz Pét­urs­son, aðgerð­ar­sinni, tón­list­ar­maður og hreyfi­hönn­uður lætur Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra, hafa það óþvegið í Facebook-færslu sem hann birti í gær.

Í færslu sinni gagn­rýnir Pétur orð Þor­gerðar Katrínar um að mik­il­vægt væri að koma á vopna­hléi á Gaza, sem hún lét falla í fyrra­dag, sem og að Hamas liðar verði að sleppa öllum gíslum sínum. Segir Pétur að land­hreins­anir Ísraela og þjóð­ar­morð komi þessu ekk­ert við og bendir einnig á að sjálfir hafi Ísraelar þús­undir Palest­ínu­manna í gísl­ingu.

„Í dag er 21 ágúst og Ísrael, ólög­lega nýlenda vest­urs­ins sem hefur slátrað hund­ruðum þús­unda óbreyttra borg­ara, aðal­lega barna, sein­ustu tvö árin ofan á ára­tugi af land­ráni og þjóð­ern­is­hreins­unum sem á undan komu er að þurka út Palest­ínu fyrir framan okkur.

Í gær, 20 ágúst sagði utan­rík­is­ráð­herra Íslands að “Brýnt væri að koma á vopna­hléi”, eins og þetta sé stríð en ekki þjóð­ar­morð á loka stigi og í sömu yfir­lýs­ingu segir hún líka “Hamas must rel­e­ase all hosta­ges. The current situation cannot last any lon­ger,”.

Eins og það sé ástæðan fyrir land­hreyns­unum og þjóð­ar­morði Ísraela, á sama tíma og ísr­ael er með þús­undir Palest­ínu manna í gísl­ingu.“

Þá segir Pétur það skjóta skökku við að Þor­gerður Katrín hafi í yfir­lýs­ing­unni stað­fest að staðið verði áfram við við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi á sama tíma og ekk­ert er minnst á aðgerðir gegn Ísrael. Bendir hann á ábyrgð utan­rík­is­ráð­herr­ans og flokks­manna hans, á hagn­aði ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem stutt hefur Ísra­els­her með beinum hætti.

„Skrítið var að í sömu yfir­lýs­ingu er stað­fast staðið við við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi en ekki orði minnst á afleið­ingar fyrir Ísrael.

Þor­gerður Katrín og hennar flokks­menn eru nefn­in­lega líka ábyrgir fyrir því að Ísra­elska fyr­ir­tækið Rapyd, tækni­fyr­ir­tæki sem hefur hjálpað IDF beint, sér um og hagn­ast á öllum greiðslum og hefur beinan aðgang að þeim upp­lýs­ingum rík­is­ins. (Btw stærsti brestur í þjóðar­ör­ygg­is­málum sem ég hef séð, afhverju segja CERT-IS ekk­ert um það?).“

Að lokum stað­hæfir Pétur að Ísland standi bæði með og styrki Ísrael í þjóð­ar­morð­inu, þrátt fyrir gas­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar. Hvetur hann fólk til þess að mót­mæla sem aldrei fyrr, snið­ganga vörur Ísraels og berj­ast á móti.

„Ísland stendur með og styrkir Ísrael í þjóð­ar­morði, það er skýrt, þó að gas­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar séu metn­að­ar­fullar þá stendur raun­veru­leik­inn eftir. Og þar höfum við staðið með nýlendu­stefnu, land­ráni og þjóð­ar­morði.

Það verður að stoppa núna.

Mætið á mót­mæli sem aldrei fyrr, snið­gangið, truflið, miðlið, skipu­leggið ykkur, berj­ist á móti.

Og fyrir ykkur með sam­kennd og fún­ker­andi fram­heila sem eruð eflaust mörg mjög von­laus þessa dag­ana eins og ég, þá vil ég deila þessu með ykkur sem ég hef notað sem mön­tru und­an­farið.

"You should never ever succumb to nihil­ism. If you can't main­tain revolutionary optim­ism, just do it out of spite." - Hasan Piker.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi