Aðstoð lögreglu á veitingastað var óskað vegna ferðamanns er þverneitaði að greiða reikning sinn að aflokinni máltíð.

Mynd: Víkingur
Er lögreglu bar að garði þá neitaði viðkomandi að framvísa persónuskilríkjum og hótaði að kýla og drepa lögreglumann og streittist mikið á móti. En að dugði ekki og var ferðamaðurinn handtekinn í þágu rannsóknar málsins; hann er grunaður um fjársvik og brot á lögum um útlendinga sem og brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg og að endingu, ofbeldi gagnvart lögreglumanni.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Allt í allt voru 70 mál skráð og fimm aðilar fengu ókeypis gistingu í fangaklefa.





















Athugasemdir