Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brennandi bifreið við matvöruverslun fannst ekki

Það er alltaf dag­skrá hjá lög­regl­unni og þar ger­ist eitt og annað gott og slæmt og lík­lega allt þar á milli

Brennandi bifreið við matvöruverslun fannst ekki
Í dag­bók­inni er hitt og þetta að frétta Alls­konar alls­konar og meira alls­konar Mynd: Víkingur

Lög­reglu­menn höfðu afskipti af aðila sem var sjá­an­lega í ann­ar­legu ástandi að angra veg­far­endur með köllum og öskrum. Þegar lög­regla hafði afskipti af við­kom­andi brást hann illa við og var með ógn­andi til­burði í garð lög­reglu. Var hann hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð sökum ástands þar sem hann var vistaður í fanga­klefa þar til rynni af honum.

Þjófn­aður var til­ynntur á veit­inga­stað í mið­borg­inni og til­kynnt var um aðila sem var til ama við félags­legt úrræði. Er lög­reglu bar að garði þekkti lög­regla hann vegna fyrri afskipta. Við örygg­is­leit á aðil­anum fund­ust tveir hnífar í fórum hans. Hann fluttur á lög­reglu­stöð þar sem skýrsla var tekin af við­kom­andi fyrir vopna­laga­brot og hann laus að skýrslu­töku lok­inni.

Höfð voru afskipti af ung­menni í ann­ar­legu ástandi í strætó­skýli og brást við­kom­andi illa við afskiptum við lög­reglu og fór að veit­ast að lög­reglu með höggum og hrákum. Og var við­kom­andi færður á lög­reglu­stöð þar sem málið var afgreitt með aðkomu for­ráða­manna.

Lögregla hafði einnig afskipti af aðila er var að veit­ast að veg­far­endum með höggum fyrir utan skemmti­stað. Aðilinn var hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð enda í ann­ar­legu ástandi; vistaður í fanga­klefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Höfð afskipti af manni sem var sof­andi í fram­sæti í bif­reið. Þegar lög­regla ræddi við við­kom­andi vakn­aði grunur um að hann væri undir áhrifum vímu­efna og að hugs­an­lega væru meint vímu­efna að finna í bif­reið­inni. Heim­il­aði við­kom­andi leit og fannst mikið magn af meintum vímu­efnum og fjár­munum í fórum hans. Við­kom­andi var vistaður í fanga­klefa fyrir rann­sókn máls­ins.

Tilkynnt var um umferð­ar­slys þar sem bíll end­aði utan vegar og var öku­maður fluttur á slysa­deild vegna minni­háttar eymsla og drátta­bíll var kall­aður til að flytja bif­reið­ina af slys­stað.

Tilkynnt var um hugs­an­legan ölv­aðan öku­mann. Sú til­kynn­ing reynd­ist á rökum reist er lög­regla stöðv­aði við­kom­andi við akstur. Við­kom­andi var færður í við­eig­andi ferli og laus að blóð­sýna­töku lok­inni.

Tilkynnt um bif­reið sem var rásandi - lög­regla stöðv­aði bif­reið­ina við akstur og reynd­ist öku­maður ölv­aður við akstur og akandi án rétt­inda. Þar að auki var við­kom­andi ung­menni og var málið leyst með aðkomu for­ráða­manna. Að blóð­sýna­töku lok­inni var við­kom­andi laus úr haldi lög­reglu.

Þá var til­kynnt um lík­ams­árás; en óljóst hverjir væru ger­endur í mál­inu; við­kom­andi fluttur á slysa­deild með minni­háttar áverka og er málið í rann­sókn.

Tilkynnt var um eld í bif­reið við mat­vöru­verslun og þegar lög­regla kom á vett­vang var enga bif­reið að sjá sem pass­aði við brenn­andi lýs­ing­una.

Heilt yfir gekk menn­ing­arnótt frið­sam­lega og vel fyrir sig. Að flug­elda­sýn­ingu lok­inni voru leiðir greiðar frá mið­bænum er fólk hélt heim á leið. Mikið mann­líf í miðbæ Reykja­víkur í kringum dag­skrá menn­ing­ar­nætur og sýni­leg lög­gæsla víðs­vegar um mið­bæ­inn í takt við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi