Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við Íslendingar viljum sterkt og opinbert heilbrigðiskerfi“

Alma Möller land­læknir segir að ýmsar breyt­ingar muni eiga sér stað í heil­brigð­is­kerf­inu á næst­unni og að ekki hafi verið van­þörf á

„Við Íslendingar viljum sterkt og opinbert heilbrigðiskerfi“
Alma Möller Land­læknir Mynd: Heimildin/Golli

Alma D. Möller land­læknir talar um heild­stætt heil­brigðis­kerfi og segir að það sé hagur okkar allra sem hér búum.

„Við Íslend­ingar viljum sterkt opin­bert heil­brigð­is­kerfi, það sýna fjöl­margar rann­sóknir. Einka­að­ilar bera þó uppi umtals­verðan hluta heil­brigð­is­kerf­is­ins í gegnum samn­inga við Sjúkra­trygg­ingar Íslands“ og segir Alma enn­fremur að sam­spil einka­rekst­urs og opin­bers rekst­urs í heil­brigð­is­þjón­ustu sé flókið úrlausn­ar­efni sem huga þurfi mun betur að:

„Kostir þess að útvista þjón­ustu til einka­að­ila eru til dæmis aukið aðgengi að þjón­ustu, val­frelsi sjúk­linga og starfs­fólks auk þess sem nýta má einka­rekstur til að létta álagi af opin­bera kerf­inu, for­gangs­raða og hag­ræða.“

Alma segir að „meg­in­hættan við útvistun heil­brigð­is­þjón­ustu er veik­ing opin­bera kerf­is­ins, til dæmis þegar einka­rekstur dregur til sín sér­hæft starfs­fólk“ og segir hún einnig að „ein af meg­in­reglum við samn­ings­gerð Sjúkra­trygg­inga er að gæta þess að ekki sé dregið úr hæfni opin­berra stofn­ana til að veita þjón­ustu. Þetta ákvæði er tekið alvar­lega og leita Sjúkra­trygg­ingar leiða til að lág­marka áhrif samn­inga við einka­að­ila á starf­semi heil­brigð­is­stofn­ana rík­is­ins“ og segir Alma líka að þetta sé ekki ein­falt „enda leiðir af sjálfu sér að þjón­ustu­veit­endur keppa um sama starfs­fólkið.“

Hún segir að við útvistun sé ákveðin hætta á óhag­ræði; þegar þjón­ustan dreif­ist á of marga aðila auk þess sem dæmin sýna að umfangs­mik­ill einka­rekstur í heil­brigð­is­kerfi eykur ójöfnuð:

„Mik­il­væg­ast er að útvistun sé á for­sendum hins opin­bera þegar þjón­ustan er greidd með skattfé og mark­mið laga um heil­brigð­is­þjón­ustu númer 40/2007 er að lands­menn allir eigi kost á full­komn­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar heil­brigði.“

Að mati hennar er afar mik­il­vægt að veita rétta þjón­ustu - á réttan hátt og á réttum tíma:

„Víða hefur vantað á að þjón­ustan sé veitt tím­an­lega. Biðlistar hafa verið allt of langir, bæði eftir skurð­að­gerðum sem og annarri þjón­ustu“ og þegar þannig háttar til „finna hlutir sér far­veg og hætta er á að þjón­ustan þró­ist með til­vilj­ana­kenndum hætti, án stýr­ingar af hálfu hins opin­bera sem þó greiðir fyrir þjón­ust­una. Þessu vil ég breyta.“

Alma segir að það verði að „skipu­leggja kerfið í heild, horfa til langs tíma og sér­stak­lega þarf að horfa til sam­spils opin­bera og einka­rekna kerf­is­ins.“

Hún nefnir að nýverið „und­ir­rit­uðu Sjúkra­trygg­ingar Íslands, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoð­kerfi ehf. í sam­starfi við Lækna­húsið DEA Medica, samn­inga um fram­kvæmd skurð­að­gerða til þriggja ára. Samn­ing­arnir fela í sér 1.000 aðgerðir á ári, þar af um 600 lið­skipta­að­gerðir, um 170 bak­að­gerðir, 170 kvið­sjárað­gerðir og 60 brjóstaminnk­un­ar­að­gerðir.“

Hún segir frá meg­in­mark­mið­inu með samn­ing­unum sem er að „stytta bið sjúk­linga eftir aðgerðum en bið­tími hefur verið of langur þrátt fyrir umfangs­mikla umbóta­vinnu innan opin­bera kerf­is­ins. Í samn­ing­unum er nú sú nýlunda að sér­stak­lega er kveðið á um að almennt skuli þeir sem fram­kvæma aðgerðir á grund­velli samn­ings­ins ekki gera sams konar aðgerðir án greiðslu­þátt­töku sjúkra­trygg­inga. Þannig er leit­ast við að koma í veg fyrir að hér mynd­ist tvö­falt kerfi.“

Hún segir að einnig verði lögð aukin áhersla á að „tryggja jafn­ræði gagn­vart sjúk­lingum, mið­lægan biðlista og aukna skil­virkni biðlista­fyr­ir­komu­lags sem og umfangs­mikil og sam­ræmd gæða­við­mið. Útvistun þess­ara aðgerða mun létta undir með sjúkra­hús­unum þar sem álag er mikið.“

Land­læknir segir að sam­ráð við Land­spít­ala sé hryggjar­stykkið í íslenskri skurð­þjón­ustu og að þar hafi „afköst auk­ist en anna þó ekki þörf. Til dæmis var ráð­ist í átak til að efla getu og skil­virkni er varðar lið­skipti innan opin­bera kerf­is­ins: Á Land­spít­ala, Sjúkra­hús­inu á Akureyri og Sjúkra­hús­inu á Akranesi - en þrátt fyrir það er bið­tími enn of langur.“

Hún færir í tal að Land­spít­ali, heil­brigð­is­ráðu­neyti og Sjúkra­trygg­ingar Íslands eigi „reglu­bundna sam­ráðs­fundi meðal ann­ars um mál sem varða aðgerðir utan sjúkra­húsa. Sum þeirra verk­efna sem samið var um eiga sér bein­línis rætur í óskum Land­spít­ala um að biðlistar verði styttir og álagi létt af spít­al­anum með því að færa ákveðin verk­efni frá honum, til að mynda bak­að­gerðir.“

Segir Alma að nýju samn­ing­arnir séu að mestu leyti í „sam­ræmi við sjón­ar­mið Land­spít­ala. Vissu­lega eru uppi álita­efni en ég mun leggja áherslu á að auka og dýpka sam­vinnu milli Sjúkra­trygg­inga, Land­spít­ala og ann­arra stofn­ana eftir atvikum, um þessi atriði. Samkvæmt 28. grein laga númer 40/2007 ann­ast Sjúkra­trygg­ingar samn­ings­gerð um heil­brigð­is­þjón­ustu. Samkvæmt 31. greins sömu laga er opin­berum heil­brigð­is­stofn­unum þó heim­ilt að gera samn­inga um afmörkuð rekstr­ar­verk­efni. Þannig getur til dæmis Land­spít­ali samið við einka­að­ila í afmörk­uðum til­vikum, til dæmis ef tíma­bund­inn vandi væri uppi vegna aðstöðu­leysis, tækja­bil­ana eða skamm­tíma skorts á starfs­fólki.“

Alma ljær máls á því að nýverið hafi komið út „skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Þó margt hafi áunn­ist er varðar gæði í kaupum á heil­brigð­is­þjón­ustu hefur stofn­unn­inni aldrei verið gert kleift að ná nauð­syn­legum styrk til að verða sá sterki samn­ings­að­ili sem að var stefnt frá setn­ingu lag­anna árið 2007. Á þetta hafa allir for­stjórar bent, án þess að brugð­ist hafi verið nægi­lega við. Bæta þarf afl Sjúkra­trygg­inga er varðar þarfa­grein­ingu, kostn­að­ar­mat, samn­inga­gerð og eft­ir­lit.“

Alma bendir á að áður en skýrslan kom út hafði hún „tekið ákvörðun um að styrkja stjórn­sýslu stofn­un­ar­innar um 60 millj­ónir króna en kostn­að­ar­meta þarf frek­ari þörf vegna þeirra umbóta­verk­efna sem nauð­syn­legt er að fara í.“

Segir einnig að innan heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins sé hafin mark­viss vinna í sam­ræmi við „nið­ur­stöður skýrsl­unnar og mun utan­að­kom­andi sér­fræð­ingur veita mér ráð um hvernig styrkja megi stefnu­mót­unar- og eft­ir­lits­hlut­verk ráð­herra sem og varð­andi verka­skipt­ingu og ábyrgð­ar­skil milli ráðu­neytis og Sjúkra­trygg­inga.“

Annar sér­fræð­ingur mun einnig vinna með ráðu­neyt­inu og Sjúkra­trygg­ingum að inn­kaupa­stefnu og bættum inn­kaupa­ferlum og segir Alma að það sé „löngu tíma­bært að styrkja stofn­un­ina til að end­ur­nýja tölvu- og upp­lýs­inga­kerfi sín. Loks þarf að fara yfir lög og breyta þannig að stofn­unin hafi þær heim­ildir sem hún þarf til að fá rækt hlut­verk sitt.“

Hún vekur máls á því að við gerð „samn­inga við einka­að­ila skulu hags­munir sjúk­linga, gæði þjón­ustu, skil­virkni og hag­kvæmni vera í fyr­ir­rúmi og áhersla lögð á sam­vinnu og sam­hæf­ingu milli opin­bera og einka­rekna kerf­is­ins“ og segir líka að í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar „Kristrúnar Frosta­dóttur segir um heil­brigð­is­þjón­ustu:

„Áfram verður stuðst við fjöl­breytt rekstr­ar­form þó að þunga­miðja þjón­ust­unnar verði í opin­berum rekstri“

„Það er hagur okkar allra“ voru loka­orðin land­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi