Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rudy Giuliani slasaðist alvarlega í umferðarslysi

Hafði stoppað bíl­inn til að aðstoða konu í neyð

Rudy Giuliani slasaðist alvarlega í umferðarslysi
Rudy Giuliani Borg­ar­stjór­inn fyrr­ver­andi er að jafna sig á spít­ala Mynd: MICHAEL M. SANTIAGO / Getty Images via AFP

Fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York, Rudy Giuliani, var fluttur á sjúkra­hús eftir að hafa lent í bílslysi í New Hamps­hire 20. ágúst. Samkvæmt fréttum var ekið aftan á hann á hrað­braut eftir að hann hafði stöðvað til að aðstoða konu sem var fórn­ar­lamb heim­il­is­of­beldis.

„Áður en slysið átti sér stað veif­aði kona, sem var þol­andi heim­il­is­of­beldis, á eftir honum,“ skrif­aði Michael Ragusa, yfir­maður örygg­is­mála Giuliani, í yfir­lýs­ingu sem hann birti á Instagram 31. ágúst. „Borg­ar­stjór­inn brást sam­stundis við, veitti aðstoð og hringdi í 112.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir enn fremur að Giuliani hafi beðið á vett­vangi þar til lög­regla mætti til að tryggja öryggi kon­unnar. „Í kjöl­farið, þegar hann hélt áfram ferð sinni á hrað­braut­inni, var ekið aftan á bif­reið hans á miklum hraða.“

Giuliani, sem er 81 árs, var fluttur á nálæga áverka­mið­stöð og greind­ist þar með brot á brjóst­hrygg, fjöl­mörg skurð- og höggá­verka auk meiðsla á vinstri hand­legg og neðri útlim.

„Strax var haft sam­band við við­skipta­fé­laga hans og lækni sem komu und­ir­eins á sjúkra­húsið til að fylgj­ast með með­ferð hans,“ sagði Ragusa. „Að svo stöddu eru engar frek­ari fréttir til­tækar.“

Í færsl­unni bætti Ragusa við að Giuliani, sem á börnin Andrew (38) og Caroline (35) með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, Donnu Hanover, væri í góðu skapi þrátt fyrir meiðslin. „Hann hlaut alvar­lega áverka en er við góða líðan og jafnar sig afar vel. Við þökkum öllum fyrir áfram­hald­andi bænir og stuðn­ing.“

Í sér­stakri færslu á X (fyrrum Twitter) tók Ragusa fram að um að slys væri að ræða en ekki ræða mark­vissan árás og hvatti fólk til að „forð­ast að dreifa órök­studdum sam­sær­is­kenn­ingum.“

Í sam­tali við New York Post sagði Ragusa að Giuliani – sem hlaut við­ur­nefnið „borg­ar­stjóri Banda­ríkj­anna“ fyrir leið­toga­hlut­verk sitt í New York eftir hryðju­verkin 11. sept­em­ber 2001, muni lík­lega dvelja á sjúkra­húsi í tvo til þrjá daga til við­bótar. Að því loknu þurfi hann að nota spelku vegna brots­ins á hryggnum.

„Borg­ar­stjór­inn er í frá­bæru skapi,“ sagði Ragusa. „Hann er sann­kall­aður harð­jaxl – hann lifði af 11. sept­em­ber.“

Sonur hans, Andrew Giuliani, tjáði sig einnig á X og þakk­aði fyrir allar hlýjar kveðjur sem fjöl­skyldan hefur fengið eftir slysið. „Takk til allra sem hafa haft sam­band eftir að fréttir bár­ust af föður mínum,“ skrif­aði hann. „Bænir ykkar þýða allt fyrir okkur. Sem sonur get ég sagt að það er mér heiður að eiga pabba sem er harð­asti maður sem ég hef nokkurn tím­ann kynnst!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife