Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Boðar málsókn á hendur TikTok fyrir að stofna lífi í hættu

Nefnd franskra þing­manna hefur lagt til að sam­fé­lags­miðlar verði bann­aðir hjá börnum

Boðar málsókn á hendur TikTok fyrir að stofna lífi í hættu
Arthur Dela­porte ætlar að setja bann Þjóð­verjar og Frakkar vilja tak­marka tíma barna og ung­linga á sam­fé­lags­miðlum Mynd: Wikipedia

Nefnd franskra þing­manna hefur nú lagt til að sam­fé­lags­miðlar verði bann­aðir hjá börnum sem eru yngri en 15 ára; og þá megi ung­lingar á aldr­inum 15-18 ára ekki nota sam­fé­lags­miðla að næt­ur­lagi.

Telja ýmsir franskir þing­menn efni á TikTok vera skað­legt börnum og hafa aðrar þjóðir einnig tekið í sama streng; til dæmis hefur Ursula Von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, íhugað tak­mark­an­ir á sam­fé­lags­miðla­notk­un barna.

Þing­manna­nefndin franska hefur nú lagt til að börnum yngri en fimmtán ára verði bannað að nota sam­fé­lags­miðla og að auki verði ung­mennum á aldr­inum fimmtán til átján ára meinað að nota þessa miðla frá klukkan tíu á kvöldin og til klukkan átta á morgn­ana.

Nefndin - sem var skipuð í mars síð­ast­liðnum, eftir að sjö fjöl­skyldur fóru í mál við TikTok vegna mynd­skeið þar sem hvatt var til sjálfs­víga og börn þeirra höfðu séð, hefur nú lokið könnun sinni.

Móðir stúlku sem framdi sjálfs­víg taldi sam­fé­lags­mið­il­inn TikTok ekki hafa staðið sig nægi­lega vel í eft­ir­liti með efni er þangað streymir inn; móð­irin telur þó TikTok ekki eiga beinan þátt í dauða dóttur sinnar.

Framska þing­nefndin ræddi við fjöl­skyldur ungra barna og for­svars­menn sam­fé­lags­miðla, lög­fræð­inga sem og áhrifa­valda.

Höfundar skýrsl­unnar segj­ast hafa fundið mjög mikið af skað­legu efni á TikTok; efni sem hvetti til sjálfs­víga sem og sjálfs­skaða og sýni oft­lega ýmiss konar ofbeldi.

Talað er um að TikTok sogi yngri not­endur að slíku efni í miklu magni með afar ávana­bind­andi hætti sem síðan aðrir sam­fé­lags­miðlar hafi svo tekið upp eftir þeim.

Telja þing­menn­irnir frönsku að með þessum ráð­stöf­unum séu send skila­boð til barna, ung­linga og for­eldra þess efnis að sam­fé­lags­miðlar séu alls ekki skað­lausir ungu fólki.

Forseti Frakk­lands, Emmanuel Macron, hefur talað fyrir slíku banni og vísar hann þar gjarnan í for­dæmi Ástrala er vinna nú að því að hörðum höndum að lög­festa sam­fé­lags­miðla­bann fyrir börn og ung­linga sem eru yngri en sextán ára.

Leggur nefndin til að sam­fé­lags­miðlar verði alfarið bann­aðir af öllum þeim sem eru yngri en átján ára, það er ef sam­fé­lags­miðl­arnir fylgja ekki evr­ópskum lögum.

Nefndin leggur einnig áherslu á að það þurfi og eigi að setja mun meiri kraft og fjár­magn í að bæta and­lega heilsu barna; bjóða upp á vit­und­ar­vakn­ingu í skólum lands­ins.

Arthur Dela­porte er for­maður nefnd­ar­innar er vann skýrsl­una hefur nú þegar boðað mál­sókn á hendur TikTok fyrir að stofna lífi not­enda í hættu með vís­vit­andi hætti og segir hann að mið­ill­inn viti alveg afar vel hver vanda­málin eru við það hvernig mið­ill­inn virkar í raun og veru; þá hafi stjórn­endur TikTok logið að franska þing­inu með því að segj­ast ekki hafa vitað af inn­an­hús­skýrslu um efni mið­ils­ins sem geti valdið skaða; en umræddri skýrslu var lekið út til bæði banda­rískra og franskra fjöl­miðla.

Tals­maður TikTok, sem er núna með um það bil 1,5 millj­arða not­enda um heim allan, sagði fyr­ir­tækið hafna með öllu þessum vill­andi og röngu full­yrð­ingum. Sagði að verið væri að gera TikTok að blóra­böggli fyrir sam­fé­lags­leg vanda­mál.

Hins vegar hefur sam­fé­lags­mið­ill­inn TikTok látið mikið af starfs­fólki er séð hefur um eft­ir­lit með efni á miðl­inum fara og segja for­svars­menn mið­ils­ins að ör tækni­þróun geri þeim þetta kleift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta