Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Múlaþing fordæmir líkamsárásina á barnaníðinginn

Múlaþing ítrekar skyldur sínar við úthlutun hús­næðis

Múlaþing fordæmir líkamsárásina á barnaníðinginn
Fellabær Múlaþing seg­ist þurfa að fara eftir lögum og reglum Mynd: YouTube-skjáskot

Í kjöl­far atburðar sem átti sér stað í Fellabæ í vik­unni, og mik­illar umræðu á sam­fé­lags­miðlum und­an­farna daga, hefur Múlaþing sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sveit­ar­fé­lagið ítrekar að það sé bundið af lögum og reglum þegar kemur að úthlutun félags­legs hús­næðis. Málið snýr að dæmdum barn­a­níð­ingi sem hefur verið úthlutað íbúð í Fellabæ en á hann var ráð­ist á mið­viku­dag en Mannlíf sagði frá árásinni fyrst fjöl­miðla.

„Sveit­ar­fé­lög eru bundin því að fram­fylgja settum lögum og reglum, til dæmis við úthlutun íbúða í þeirra eigu, út frá þeim for­sendum sem lögin til­greina að heim­ilt sé að hafa til hlið­sjónar, og ein­vörð­ungu þeim for­sendum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Múlaþing und­ir­strikar að við búum í rétt­ar­ríki þar sem ein­stak­lingar sem hafa tekið út dóm eiga rétt á að snúa aftur til sam­fé­lags­ins. „Mik­il­vægt er að hafa í huga að við búum í rétt­ar­ríki þar sem fólk fær dóm og tekur hann út, að honum liðnum hefur sama fólk til­veru­rétt og þarf að geta aðlag­ast sam­fé­lag­inu á ný,“ segir enn fremur.

Sveit­ar­fé­lagið for­dæmir með skýrum hætti árás­ina sem átti sér stað á tjald­svæð­inu í Fellabæ í vik­unni þar sem ráð­ist var á barn­a­níð­ing sem þar dvaldi, og minnir á að ein­stak­lingar séu ekki nafn­greindir í ákveðnum dómum til að vernda fórn­ar­lömb. Það sé því alvar­legt mál þegar nafn og myndir séu birtar á sam­fé­lags­miðlum.

„Við skiljum upp­nám og áhyggjur en málin verða hvorki leyst með ofbeldi né óvar­kárri umræðu á sam­fé­lags­miðlum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Múlaþing bendir jafn­framt á mik­il­vægi fræðslu, sam­hygðar og opins sam­tals, bæði innan fjöl­skyldna og sam­fé­lags­ins í heild. Sveit­ar­fé­lagið vísar einnig til þess að sept­em­ber­mán­uður sé til­eink­aður vit­und­ar­vakn­ingu um geð­heil­brigði og hvetur fólk til að sýna aðgát í nær­veru sálar.

Í til­kynn­ing­unni er að lokum bent á hvert hægt sé að leita eftir aðstoð, meðal ann­ars til lög­reglu, heil­brigð­is­þjón­ustu, Afliðs, Píeta-sam­tak­anna, Bjarma­hlíðar og hjálp­ar­síma Rauða kross­ins 1717.

Aust­ur­frétt sagði frá því í morgun að Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands hafi hafnað beiðni lög­regl­unnar um gæslu­varð­hald yfir mann­inum sem réð­ist á mann­inn en árásin er metin sem alvar­leg af lög­regl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi