Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir risastóra bylgju dauðsfalla verða þegar kólnar í vetur á Gaza

Samkvæmt Ragn­hildi er Gaza í dag dýr­asti staður á jörðu

Segir risastóra bylgju dauðsfalla verða þegar kólnar í vetur á Gaza
Ragn­hildur Hólm­geirs­dóttir Fer yfir hið hrylli­lega og mann­gerða ástand er ríkir á Gaza Mynd: Aðsend

Ragn­hildur Hólm­geirs­dóttir, sjálf­boða­liði í íslensku snið­göngu­hreyf­ing­unni segir að það sé „ekki ólík­legt fólk hér á landi hafi tekið eftir alls­konar fjár­söfn­unum fyrir fjöl­skyldur á Gaza. Í sumum til­vikum er söfn­unin á vegum palest­ínskra íbúa á Íslandi sem safna fyrir ætt­ingja sína en í öðrum er um að ræða barn­fædda Íslend­inga sem kynnt­ust fólk­inu yfir netið.“

Hún nefnir að hjálp­ar­sam­tökin Vonarbrú séu án efa þekktasta dæmi slíkra fjár­safn­ana sem eru orðnar helsta líf­lína fólks á Gaza.

Hún færir í tal að á þessum söfn­unum er „ákveðið sér­kenni: Upp­hæð­irnar sem þarf að safna til að halda fjöl­skyldu á Gaza réttu megin við hung­ur­mörk eru á allt öðrum skala en hingað til hefur þekkst í alþjóð­legu hjálp­ar­starfi.“

Vöru­skortur

Samkvæmt Ragn­hildi er Gaza í dag dýr­asti staður á jörðu enda ríkir þar ríkir hung­ursneyð sam­kvæmt form­legum úrskurði Sam­ein­uðu Þjóðanna, þann 22. ágúst 2025. Einnig nefnir hún að vöru­skortur sé á Gaza á áður óþekktum skala í sögu 21. ald­ar­innar, og pen­inga­skortur; með því á hún ekki við skorti á fjár­magni, heldur reiðufé, seðlum.

„Þessi skortur veldur því að fólk sem ætlar að taka út pen­inga þarf að greiða álag sem flöktir á milli 35-50%. Þegar kemur að því að nota það sem eftir er af pen­ing­unum blasir í senn við vöru­skortur og óða­verð­bólga. Það er næstum ekk­ert hægt að kaupa.“

Vöru­skort­ur­inn á Gaza í dag á sér sömu rætur og hann hefur haft síðan 2005, en það er algjör stjórn Ísraels - með hjálp frá Egypta­landi - á öllum inn- og útflutn­ingi á Gaza, segir Ragn­hildur og bætir því að „þetta ástand gerði íbúa Gaza háða hjálp­ar­gögnum. Um leið og loft­árásir Ísraels hófust á Gaza í októ­ber 2023 var klóin hert.“

Pínu­lítið land­svæði

Hún segir að í dag hafi flestum íbúum á Gaza verið þjappað á örlítið land­svæði og að sami skort­ur­inn ríki alls staðar. Í hvert sinn sem þetta vekur heims­at­hygli er slakað tíma­bundið á klónni, en aldrei nóg:

„Gaza er mjög lítið land­svæði, aðeins stærra en höf­uð­borg­ar­svæðið á Íslandi, og lands­lag þvælist ekki fyrir sam­göngum. Það er auð­velt að ráðskast með aðstæður innan svo lít­ils svæðis.“

Ragn­hildur spyr hvað það sé sem fólk á Gaza og vel­unn­arar þeirra eru að safna fyrir og til hvers?

Hún nefnir flutn­inga:

„Reglu­lega skipar Ísrael íbúum að rýma svæði. Ég hef séð frá­sagnir fólks sem hefur flúið innan Gaza 15-20 sinnum á þessum tæpum tveimur árum en þetta hlýtur að vera farið að renna saman í eitt fyrir flestum. Í hvert sinn sem þau flýja taka þau minna með sér. Líkurnar á að kom­ast heil á húfi frá Ísra­els­her og að geta dregið fram lífið í kjöl­farið aukast ef hægt er að leigja bíl eða kerru. Það eru ekki margir bílar eftir á Gaza, elds­neyti nær ekk­ert og akst­ur­inn hættu­legur.“

Þetta er þess vegna mjög dýrt, jafn­vel 120-180 þús­und krónur en algeng mán­að­ar­laun á Gaza, meðan þar var enn hægt að lifa til þess að gera eðli­legu lífi, var um 25 þús­und krónur segir Ragn­hildur og nefnir síðan vatnið næst:

Hættuleg hjálp­ar­sam­tök

„Það eru enn ýmis hjálp­ar­sam­tök sem geta dreift vatni á Gaza en margir þurfa samt að kaupa vatn. Jafnvel þó það sé hægt að finna ókeypis vatn er mikil vinna að ná í það, það þarf að ganga langar vega­lengdir, bera vatnið til baka og alltaf er hættan á því að verða að skot­marki.“

Hún ræðir einnig um skjól; staði til að vera á:

„Enn eru til skólar eða önnur almanna­rými þar sem ein­hverjir fá að leita skjóls. En þau eru ekki mörg og flestir á Gaza álíta þessa staði lík­legri til að vera sprengdir að nóttu til en aðra. Sumar fjöl­skyldur á Gaza eru heppnar og eru að safna fyrir svim­andi upp­hæðum til að leigja ein­hvers konar hús­næði. En þús­undir heim­ila eru eyðilögð í hverri viku, með jarð­ýtum eða flug­skeytum, og alltaf er hraðað á eyði­legg­ing­unni.“

Hún ljær máls á því að aðrar fjöl­skyldur séu að safna fyrir „leigu á nokkrum fer­metrum“ til að tjalda á. En það séu hins vegar ekki margir að reyna að „safna fyrir tjaldi af því að í dag er varla tjald að fá á Gaza og þau sem eru í boði kosta á bil­inu 100 til 180 þús­und krónur.“

Inn­flutn­ingur á tjald­búðum

Ragn­hildur bendir á að inn­flutn­ingur á öruggum fram­tíð­ar­tjald­búðum hafi verið lyk­il­at­riði í vopna­hléssamn­ingnum í byrjun árs; og eitt af þeim er fyrst var rofið. Segir einnig að margar fjöl­skyldur hafi glatað tjöld­unum sínum í eilífum rým­ingum, aðrar hír­ast í tjöldum sem eru morkin og slitin eftir tvö ár af sterku sól­skini og rign­ingu:

„Jafnvel þó Ísrael myndi hætta að sprengja og skjóta í dag þá er þetta eitt nóg til að valda risa­stórri bylgju dauðs­falla þegar það kólnar í vetur.“

Ragn­hildur bendir á að matur fyrir fólkið á Gaza er meira en af skornum skammti; þarna ríki mann­gerð hung­ursneyð og „áætlað er að Ísrael hafi eyði­lagt 86% rækt­ar­lands á Gaza. Í lok júlí lagði Ísrael svo bann við fisk­veiðum Gazabúa. Íbúarnir þurfa því að reiða sig alger­lega á inn­flutn­ing.“

Á Gaza var nokk­urs konar vopna­hlé í byrjun árs sem form­lega varði frá 19. jan­úar til 18. mars. Þann 2. mars var hins vegar lagt á algert inn­flutn­ings­bann og það ríkti í 11 vikur eða til 19. maí. Þá þegar voru íbúar orðnir mátt­vana eftir meira en ár af skorti. Þegar inn­flutn­ingur var loks leyfður aftur eftir 19. maí var öllum alþjóð­legum hjálp­ar­sam­tökum enn bannað að aka vistum inn á Gaza og sjá um dreif­ingu þeirra, bendir Ragn­hildur á og bætir þessu við:

Upphlaup vest­rænna fjöl­miðla

„Sá litli matur sem hefur verið fluttur inn á Gaza síðan þá er ann­ars vegar hefð­bund­inn vöru­inn­flutn­ingur sem greitt er fyrir með pen­ingum og svo vistir sem dreift er af banda­rísk-ísra­elsku sam­tök­unum GHF. Þau eru bæði afar dýr í rekstri og leggja kapp á að skjóta ein­hvern á hverjum degi, en nærri 2500 manns hafa verið skotin til bana við úthlut­un­ar­stöðv­arnar og 17.800 hafa særst.“

Hún bendir á að það sem sé í þessum fáu vöru­bílum sem hleypt er yfir landa­mærin eru aðal­lega kol­vetni og segir að fólkið á Gaza sé því að safna fyrir hveiti, hrís­grjónum, pasta, jurta­olíu og dósa­mat:

„Eftir upp­hlaup vest­rænna fjöl­miðla í sumar yfir svelt­andi börnum birt­ust aftur um stund hlutir eins og súpu­ten­ingar og ávextir og kjöt í dósum en allt var þetta rán­dýrt. Stundum er hægt að kaupa fersk eggaldin, sterkan pipar, tómata og gúrkur, kart­öflur eða lauk. Sömu­leiðis rán­dýrt. Fæðu­flokkar á borð við ban­ana, jógúrt og egg eru ekki í boði. En, af því að þetta er mann­gert ástand sem ekk­ert mál er að leysa, þá sjáum við kannski til skiptis mynd af svelt­andi nýbura og aðra af tötra­legum krökkum að drekka safa í fernu með röri. And­stæður sem ekki myndu sjást á nokkru öðru svæði í heim­inum sem líður skort.“

Það ætlar aldrei neinn að flytja þetta fólk til Úganda

Ragn­hildur ræðir að „reglu­lega birt­ast fyr­ir­sagnir í fjöl­miðlum um að ísra­elskur stjórn­mála­maður eða jafn­vel Banda­ríkja­for­seti hafi gefið í skyn að ætl­unin með öllu þessu sé að kvelja íbú­ana þar til þeir sam­þykkja glaðir að láta flytja sig til Úganda eða ann­ars ótil­greinds lands.“

Bætir við:

„Ég er bara venju­leg kona á Íslandi og ég bý ég ekki yfir neinum hæfi­leika til að sjá fyrir fram­tíð­ina. Ég get bara dregið álykt­anir af því sem ég sé og les, rétt eins og hver annar, og þær eru þessar:

Það ætlar aldrei neinn að flytja þetta fólk til Úganda. Það á að veikja það þar til það gengur af fúsum og frjálsum vilja í átt að ísra­el­skri skyttu, ákveður að hlaupa ekki þegar það fær sms um að bygg­ingin verði sprengd eftir 15 mín­útur, sé orðið svo illa haldið að það deyji úr kulda innan um húsa­rústir, týni sím­anum sínum og geti ekki lengur tekið á móti pen­inga­send­ingum fyrir hveiti eða veik­ist af umgangspest sem vannærður lík­ami þeirra ræður ekki við.“

Ísrael hefur eyði­lagt svæðið var­an­lega

Hún segir að það séu margar leiðir fyrir fólk sem ekki hefur borðað sig satt, ekki drukkið nægju sína, ekki sofið fullan næt­ur­svefn, ekki getað þvegið sér, ekki átt sér skjól inn­an­dyra, allt í næstum tvö ár, til að láta undan dauð­anum“ og segir hún ein­fald­lega að hún hafi „enga trú á Ísraelum og Banda­ríkja­mönnum sem tala um að inn­lima Gaza í Ísrael eða Tony Blair sem ætlar að byggja þar gervi­greind­arpara­dís.“

Ragn­hildi finnst ólík­legt að Ísraelar ætli sér að eign­ast svæðið og nýta það:

„Ef ætl­unin væri að eign­ast svæðið og nota það þá væri eyði­legg­ingin ekki svona alger og eina fram­tíðin sem ég sé er eitruð auðn sem við verðum öll í fram­tíð­inni skikkuð til að heim­sækja grát­andi til að horfast í augu við blinda illsku í sinni tær­ustu mynd.“

Beinar aðgerðir það eina sem dugar

Hún segir að við okkur blasi tvenns konar fram­tíð; ann­ars vegar sú þar sem þetta gerð­ist og við sam­þykktum það þegj­andi. Hins vegar sú þar sem þetta gerð­ist og „við sögðum nei.“

Að mati hennar er önnur þess­ara leiða að lok­ast hratt og hún vill beinar aðgerðir gegn Ísrael:

„Hættum að keppa í Eurovision við Ísrael. Hættum að keppa í íþróttum við Ísrael. Hættum að kaupa vörur og þjón­ustu frá Ísrael.“

Að lokum minnir Ragn­hildur á að á „laug­ar­dag­inn milli tvö og fimm verður mót­mæla­gangan Snið­gangan haldin í annað sinn, bæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í Reykja­vík og á Akureyri“ og verður gengið saman til að vekja athygli á vöru­merkj­unum sem eru í brennid­epli snið­göng­unnar fyrir Palest­ínu á Íslandi og þrýsta á stjórn­völd að beita sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helförin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi